11.12.2006

Jólin 2005





















Eins og mörg ykkar vita eyddum við fjölskyldan, ásamt Agga og ömmu & afa, jólunum 2005 í Suður-Frakklandi. Reyndar ekki bara þar, við fórum einnig saman í Tívolí í Köben, skíðaferð upp í frönsku Alpana og jóladag eyddum við í Mónakó. Með öðrum orðum þá létum við okkur verða hrikalega kalt í Danmörku, sátum í sólinni á ströndinni í Nice, pökkuðum inn jólagjöfunum út í garði (engar yfirhafnir og rauðvínsglas í hönd) í Vallauris, krakkarnir duttu á rassinn í Ölpunum og reyndu að skauta niður litla krakka í Mónakó ;) Ég fór fyrr heim en restin en ég held þau hafi líka skroppið yfir til Ítalíu. S.s. jólafrí í 4 löndum?
Benedikta var loksins að setja e-ð af sínum myndum á netið. Ég fékk leyfi til að setja hluta þeirra hér á bloggið en restina getið þið skoðað á síðunni sem þær eru hýstar á, merkisteinn.is

Ég átti ekki digital myndavél þegar þessi ferð var farin en tók e-ð smá af myndum á gömlu myndavélina mína en þær má sjá hér (ásamt myndum sem teknar voru í SingStar partýi sem ég hélt í Víðihvamminum).

3 ummæli:

Unknown sagði...

Tkk gaman að rifja þetta upp :)Ma

Nafnlaus sagði...

Hæ Salóme!
Ertu ekki að koma heim á klakan núna um jólin? Hvenær kemurðu?? :)

Salóme Mist sagði...

Hæ Edda =)
Kem á klakann 27.des og verð til 6.jan ;) Hlakka til að sjá þig!