Því lengra sem líður á milli færslna því erfiðara verður að hafa sig í að blogga. Núna t.d. eru tveir mánuðir frá síðustu almennilegu bloggfærslu - ég er búin að lofa að blogga um milljón hluti og síðan það loforð var gefið hafa milljón aðrir hlutir bæst við til að blogga um. Ég get ómögulega staðið undir því. Í fyrsta lagi því ég nenni því ekki og í öðru lagi því ég hef ekki tímann í það. Það yrði auk þess á lengd við ágætis skáldsögu og það myndi enginn nenna a lesa það. Ætla samt að láta af því verða núna að skrifa allavega um e-ð :P Þetta verður svona hoppa-úr-einu-í-annað færsla.
Þetta ár hefur liðið hrikalega fljótt hingað til. Sem er gott, bara merki um að maður hafi nóg fyrir stafni. Eina sem ekki er svo gott við það er að það styttist óðum í 15.mars! Þá þarf ég að vera búin að sækja um í háskólanámið sem ég ætla í næsta haust. Vandamálið er að ég veit ekki ennþá hvaða nám það á að vera. Get vel sagt ykkur að þessi óvissa er mikill stressvaldur í mínu lífi þessa dagana! :S
Tónleikar, byrjum á tónleikum. Tvennir eftirminnilegir sem vert er að nefna:
Fór að sjá Women and Children í Turbinehallerne með Russell. Þau komu skemmtilega á óvart (hafði aldrei heyrt þeirra getið fyrr). Endilega tékkið á laginu þeirra Oranges.
Nýja ástin í lífi mínu er svo The Magic Numbers og fór ég að sjá þau á Vega. Þó svo að mér hafi ekki tekist að fá neinn til að koma með mér (vesen á öllu þessu blanka fólki) þá kom ekki til greina að fara ekki. Ég sá smá eftir því á meðan upphitunarbandið var að spila en svo voru tónleikarnir bara svo yndislega frábærir að mér hefði ekki getað staðið meira á sama. Endilega tékkið á fyrstu plötunni þeirra (sem er samnefnd bandinu), hef sjálf ekkert hlustað á seinni plötuna og spiluðu þau lítið af henni. Yndislegt popp.
- Óh, hey... sá líka Pétur Ben spila í 12 tónum... það var mega mega flott. Varð barasta að kaupa diskinn eftir að hafa séð hann spila... finnst hann reyndar so far betri live en á plötunni.
Fyrir þremur vikum síðan fór ég í "helgarferð" til suðurhluta Sjálands en þangað hef ég aldrei komið áður (svo ég muni...). Josef vinur minn var svo frábær að bjóða mér með í heimsókn til ömmu hans og afa sem búa í Mern. Við tókum lestina niður til Voldingborg og þangað kom afi hans (sem er 80 og e-ð) og sótti okkur. Þetta var nú held ég bara hressasta 80+ par sem ég hef nokkurn tímann hitt! Fyrir utan að sjá um slatta af geitum, hænsnum og fleiri dýr þá veiða þau sjálf í matinn (fiska í net og skjóta fasana, dádýr og fleira), höggva eldivið og bara allt. Mega yndisleg bæði tvö líka og var þetta frábær helgi. Smakkaði ál og er það bara einn besti matur sem ég hef nokkur tímann fengið! Hundinum á bænum (sem er btw e-ð geðveikur) leist þó ekki á mig og reyndi ítrekað að komast að mér til að éta mig fyrsta daginn. Hann róaðist þó þegar við fórum með hann í langan göngutúr í skóginum á laugardeginum og ég mútaði honum með fullt af illalyktandi hundakexi.
Stutt kvikmyndagagnrýni og view-blogg:
"...bíómyndir (Das Leben der Anderen, The Queen, 200 cigarettes, Eragon, James Bond, Rocky Horror Picture Show, Happy Feet),..."
- Das Leben der Anderen er mjög fín en ekki jafn stórkostleg og dómarnir benda til að hún sé. Dró Guðrúnu Ágústu og Isju með mér á þessa.
- The Queen kom mér skemmtilega á óvart og var ég flissandi eins og hálfviti mest allan tímann (grunar að öðru fólki í salnum hafi fundist ég heldur skrítin). Kannski ekki fyrir alla (maður þarf að geta séð húmorinn í litlu hlutunum) en ég mæli þó með henni. Minnir að það hafi verið með Isju sem ég fór að sjá þessa í Grand Teatret.
- 200 cigarettes, jájá, gömul mynd og ekki seinna vænna að sjá hana. Þetta er ein mesta feel good mynd sem ég hef nokkur tímann séð og hlakka ég til að sjá hana aftur! Svona mynd sem gott er að eiga á DVD og horfa á aftur og aftur (þunglyndis-, þynnku- og ástarsorgarmeðal?). Við Sara horfðum saman á hana e-r tímann í desember - mega kósí að hreiðra um sig upp í rúmi með pizzu og kók á meðan vindurinn baulaði úti með tilheyrandi rigningu og kulda.
- Eragon var drasl. Frekar sundurlaus, skrítinn uppbygging, söguþráðurinn samansull úr nokkrum öðrum myndum/bókum? Man ekki nógu mikið eftir henni til að geta gagnrýnt hana illilega en það hafði ég nú ætlað mér að gera. Ekki alslæm (heldur alveg athygli þinni) en það hefði verið hægt að gera mun betri mynd úr þessu... well.. allavega skárri. Við systkinin og Aggi sáum þessa í Lúxemborg rétt fyrir jól.
- Casino Royale/James Bond var barasta fín. Fannst nú reyndar ekki svo mikið gerast í henni miðað við hvað hún er löng en það er gaman að sjá hvernig persónan James Bond varð eins og hann er. Auk þess er minna lagt upp úr svona gadget rugli og því verður hún mun trúverðugari en aðrar James Bond myndir. Daniel Craig stendur sig vel en djöfull er hann ljótur þegar hann er kominn úr fötunum. Besta við myndina var atriðið á Bodyworld sýningunni. Enginn sem ég þekkti hafði áhuga á að sjá Bondinn þannig ég fór bara ein (plebbar :) ).
- Rocky Horror Picture Show - já, ég hafði virkilega aldrei séð hana áður. Fyndið hvað hún er bara gerð til að hneyksla fólk :) Ágætlega gaman af henni bara. Einar Valur var svo hneykslaður á að ég hefði ekki séð þessa mynd að hann bauð mér að koma og horfa á hana hjá sér í september. Busy little me varð að beila á því í þeirri Íslandsferð en ég kíkti til hans í staðinn núna eftir áramótin.
- Happy Feet. Jiii, já... þessi mynd. Ekki slæm... en... eh.. jáh, shite... rosalega verið að mata mann á fullu með alls konar boðskap út í gegn. Hefði alveg verið hægt að gera miklu betri mynd úr þessu... alveg fín atriði inná milli samt. Fór með Huldu, Sillu og sillukærasta að sjá þessa á Íslandi.
Jólin í Lúxemborg voru mega kósí - yndisleg í alla staði. Gísli guidaði okkur systrunum og Agga um næturlíf Lúxemborgar og var það óhugnalega troðið af rosalega ungum krökkum - sem orsakaði það að við flúðum yfir á hommabarina. (Btw Benedikta sendu mér myndirnar sem við tókum þegar við fórum þarna í bæinn seinna kvöldið :D Man það voru e-r mega fyndnar - langar að sjá og eiga!)
Áramótin og dagarnir þar í kring á Íslandi voru voða fínir. Fór í nýárspartý hjá Sölva sem var mega nice og hélt svo yfir í Hawaii partý hjá Dabba sem var ágætt (takk fyrir farið Tommi ;*) - yndislegt að hitta alla þessa vini sem maður hefur ekki séð svoooo lengi! Tókst reyndar að detta illilega á rassinn á leiðinni úr einu partýinu í annað... nei, ég var ekki full, það var bara fokking hált... btw þá þarf maður að vera mega fær til að geta dottið á rassinn og hnéð í einu! (skil ekki ennþá hvernig það gerðist en ég var marin á hnénu lengi á eftir...). Held samt að afmælispartýið hennar Benediktu hafi verið skemmtilegasta partýið sem ég fór í á meðan þessari Íslandsdvöl stóð - kannski af því það var svo gaman að kynnast öllum þessum flippuðu vinum hennar ;D
Jájá, annars var ég nú ekki alveg nógu dugleg við að þeytast um og hitta fólk á klakanum, bæði vegna leti og veikinda og... já.. og vegna þess að Tommi gúrka gaf mér fimmtu seríu af 24 í jólagjöf og ég var föst (ásamt svotil allri fjölskyldunni) við sjónvarpið ansi margar klukkustundir af þeim sökum.
Talandi um sjónvarp, Heroes er best. Ef þið vitið ekki hvað ég er að tala um - finnið út úr því. (Nei, það er ekki bara af því að svo margir af gaurunum í þessum þáttum eru hrikalega hot - það skaðar þó ekki!! :P ).
Og já, talandi um hot þá er það andstæðan við Kaupmannahöfn þessa daganna. Það byrjaði að snjóa síðasta þriðjudag (það var hreint og beint ógeðisveður). Danir eru ekki alveg að höndla 20cm af snjó og hefur hálf Danmörk því verið í stöppu síðustu 3 daganna. Ég er ekki alveg að höndla þetta heldur, einfaldlega því ég hata snjó í borgum og held mig því innandyra eins mikið og ég get.
Á þriðjudaginn kom líka annar óvæntur atburður uppá - ég kom heim og fann blómvönd á útidyramottunni minni. Það var umslag með þeim merkt mér og í því skilaboð (á ensku) en ekkert nafn.. Ennþá veit ég ekki hvaða sæta sál sendi þessi blóm en ég vil gjarnan komast að því :)
Í byrjun janúar fór ég og hitti lækni sem gerðist svo djarfur að heimta vöðvasýni úr sköflungnum mínum. Staðdeyfing, gert gat, stórri nál (sem er hol að innan) stungið í vöðvann og þannig bútur rifinn út. Ekki þægilegt get ég sagt ykkur en það varð verra þegar staðdeyfingin fór. Hef þó prófað margt sársaukrafyllra (það er ótrúlegt hvað læknar eru tilbúnir að láta mann ganga í gegnum ef maður er með forvitnilegan vöðvasjúkdóm) þannig þetta var allt í lagi. Verst að þetta skilaði voða litlum niðurstöðum... Þá heimtuðu þeir bara blóð í staðinn og líklega á að senda það út um allar trissur (mögulega til Parísar, Ástralíu og Helsinki) til að skoða dna-ið mitt betur... gaman gaman...
Hjalti og Kaisu kíktu í heimsókn til mín síðustu helgi frá Finnlandi og var alveg frábært að hafa þau hér :) Þau komu á föstudagskvöldi og voru fram á þriðjudagsmorgunn. Sunnudagurinn var virkilega kósí en þá sýndi ég þeim hverfið mitt - set hér með eina mynd sem ég tók af þeim útí kirkjugarði. Er andlega skemmd eftir mánudaginn en þá drógu þau mig á Erótíkursafnið. Nei, ég er ekki tepra - það þarf ansi mikið til að mér blöskri. Það sem dugði til var stuttmynd sem sýndi konu hafa ýmis alltof náin samskipti við hest, svín og hund. Þetta var held ég bara það viðbjóðslegasta sem ég hef nokkur tímann séð :/
Helvítis ungdomshus-fávitarnir eru ennþá með djöfulsins leiðindi og stefnir allt í risastríð hérna þegar lögreglan mun ráðast til atlögu til að rýma húsið. Sjá m.a. hér og svo er e-ð smá hér.
Jiiii, nú ætla ég að hlífa ykkur við meira blaðri í bili! Sleppa því að segja ykkur frá ferðinni í Folketinget (alþingi dana), læknisfræðisafninu, Apparatet að sjá Russell dj-a, blablabla... nennir hvort sem er enginn að lesa meira :D
Endilega kommentið! Langar að vita hvort e-r kíkir hérna inná ennþá! (og hey! Addið mér á Skype! (Smisty))!! ;)
*knús og kram*







7 ummæli:
Komment!
Víhj! gaman að sjá loksins blogg :D Ég vissi nú samt megnið af þessu.. en samt! alltaf gaman að lesa bloggin þín, sama hvað þau eru löng! :)
Knús,
Litla sys
Jæja jámm, mikið að gerast á hverju ári eins og venjulega hjá Salóme. Það er alltaf gaman að lesa þessar færslur þínar, jafnvel þegar þær eru í lengri kantinum.
Farðu vel með þig og flýttu þér að segja hinum frá læknisfræðisafninu ;)
Ps. Hvenær varð ég Tommi gúrka?
Líka gaman að heimsækja þig heim! En ég er með komment 'komment'.. ég dró engan..
Fannst samt plakatið fyrir utan best 'Exhibition of homo sapiens sexlife'
Já gaman að lesa :) Það virðist vera alveg nóg að gera hjá þér. Annars blómin...hummm....en spennandi! Þú verður að reyna að finna útúr því hver hafi sent þau....mjög sætt :)
Þarf að halda áfram að læra....fun....
Hafðu það gott...knús Sigga
Þetta með blómin... ætli Bjögga sé nokkuð að hefna sín eftir grikkinn sem þú gerðir henni? (Gafst henni Pride and Prejudice dvd safnið með dularfullum skilaboðum?)
Trúðu mér Sigga, ég er búin að reyna að finna út úr því :P Hefur ekkert gengið...
Hey systa; Bjögga er einmitt ein af þeim sem eru sterklega grunaðir um þetta (sendi henni nefnilega afmæliskort nýlega og það gæti hafa minnt hana á grikkinn góða og hún ákveðið að það væri kominn tími til að hefna sín) :P
Tommi þú ert Tommi Gúrka eftir að hafa gefið mér súrsaðar gúrkur í afmælisgjöf og síðan jólakort með teiknaðri mynd af súrsuðum gúrkum? Það er óhjákvæmilegt núna að tengja nafið þitt við súrsaðar gúrkur...
Skrifa ummæli