21.10.2006

Freak fest?









Jájá, ég veit að þetta eru slæmar myndir. Er ekki alveg búin að ná tökum á því að taka myndir við slæm birtuskilyrði... með öðrum orðum kann ég voða lítið á myndavélina mína.
Langaði bara að gefa ykkur smá hugmynd um hvernig um er að litast í Tívolí þessa daganna en þar er Halloween þema í gangi (af tilefni haustfrísins). Skrapp þangað í gærkvöldi með Isju þó ég væri eiginlega hálf lasin, vildi ekki missa af því að sjá þetta. Sá miklu fleiri grasker á einu kvöldi en ég hef séð samanlagt um ævina (klikkið á neðstu myndina og tékkið á þakinu).
Þó svo að það hafi verið voða gaman að sjá þetta þá var þetta ekkert ofur ánægjuleg ferð. Aðallega vegna þess að við fengum lítinn frið. Af einhverjum undarlegum ástæðum virðast sumir strákar halda að Tívolí sé "the place" til að "hözzla" stelpur.... hef aldrei heyrt jafn margar hræðilegar pick-up línur á einu kvöldi. Allir saman áttu líka mjög erfitt með að skilja að við höfðum engan áhuga á þeim og eyddum við því helmingnum af tímanum í að forðast þessa tvo verstu. Pirrandi... og sorglegt að horfa uppá.

15.10.2006

Give up yourself unto the moment

Um það bil þrjár vikur liðnar frá síðasta bloggi. Þær hafa verið ótrúlega fljótar að líða!



Ég er í skólanum alla virka daga frá 8:30 til 11:15 og þar sem skólinn er niðri í miðbæ þarf ég að vera farin héðan út kl. 8:00. Það er mjög skrítið og var alls ekki auðvelt fyrstu vikuna þar sem það er ansi langt síðan ég hef þurft að vakna snemma á morgnanna (svona marga daga í röð þ.e.a.s.) og ég er sko ekki morgunmanneskja :P En jáh, blablabla... skólinn er bara rosa fínn! Góðir kennarar og frábær hópur :) Fólk kemur víða að; Afganistan, Taílandi, Póllandi, Mexíkó, Frakklandi, Líbanon, Grikklandi, Litháen, Ítalíu, Ástralíu og Ungverjalandi. Það var líka einn frá Brazilíu en hann þurfti að skipta um bekk eftir fyrstu vikuna og svo var stelpa frá Úkraníu sem þurfti að hætta. Finnst þessi fjölbreytileiki æðislegur því að í öllum umræðum koma fram svo mismunandi sjónarmið af sökum þess hversu ólíkan bakgrunn allir eiga.
Myndirnar sem ég setti á síðuna í síðustu viku eru frá því þegar við hittumst á föstudeginum (sem var frídagur) og borðuðum saman hádegistmat nokkrar af námskeiðinu og svo frá partýinu sem ég hélt um kvöldið.



Annars já, hefur lífið bara mest verið skóli skóli og þetta venulega. Fór reyndar í matarboð heima hjá Guðný og foreldrum hennar sem var alveg yndislegt. Síðasta þriðjudag fór ég svo í mat hjá Söru og síðan héldum við á tónleika með Ryan Adams á Vega. Þessari helgi er ég búin að eyða algjörlega í félagsskap Guðnýjar og Ómars, ætla að gera þeim þann óleik að setja inn nokkrar myndir frá því í gær... muhahaha...



En jáh.. æj, ég er ekki að nenna að vera að blogga... eftir 3 klst ætla ég að vera mætt heima hjá Samiru þar sem verður spjallað, borðað, hlegið og svo var e-ð verið að tala um magadans?? Áður en ég held þangað þarf ég eiginlega að reyna að laga þvottavélina mína... og þvo þvott... og taka smá til... íbúðin mín er full af flöskum... :S Þannig jáh, laterz....


P.S. Hvernig finnst ykkur nýju skórnir mínir?


24.9.2006

Hver á sér fegra föðurland?

Hver á sér meðal þjóða þjóð,
er þekkir hvorki sverð né blóð
en lifir sæl við ást og óð
og auð, sem friðsæld gaf?

Að kvöldi mánudagsins 11. september tók ég þá skyndiákvörðun að skreppa til Íslands. Venjulega er mér mein illa við skyndiákvarðanir og forðast að taka þær en þessi reyndist góð. Þessir fimm dagar sem ég átti á Íslandi voru alveg einstaklega yndislegir og ánægjulegir. Vil nota tækifærið og þakka vinum og vandamönnum kærlega fyrir samveruna :)

*VARÚÐ RITGERÐARFÆRSLA*

Eitt sem ég tók eftir meðan á dvöl minni stóð var hversu græn Reykjavík er! Það er alls staðar gras! Á umferðareyjum, í kringum vegi og auðvitað í öllum görðum. Í Kaupmannahöfn sér maður ekki svona mikið gras! Vissulega eru almenningsgarðarnir og stöku svæði en ekki jafn yfirgnæfandi og heima. Auk þess er grasið ekki svo grænt hér í Kaupmannahöfn í ár eftir hitann sem var í júní og júlí. Í byrjun ágúst var Kongens have t.d. svo til alveg gulbrúnn :S Allavega, þá fannst mér Reykjavík alveg einstaklega græn og falleg, hef aldrei áður hugsað um Reykjavík sem beint fallega borg. Sitjandi í strætó núna í síðustu viku naut ég þess þó bara að sitja og horfa á umhverfið. Sýn mín á Reykjavík hefur breyst.

Ferðin heim (s.s. ferðalagið sjálft) var frekar spes og ekkert sérlega notaleg. Mætti frekar snemma út á flugvöll þar sem miklar tafir höfðu verið við öryggishliðið fyrr í vikunni vegna veikinda starfsfólks og var búist við þeim áfram. Það reyndist þó ekki vera þetta kvöld enda flugið frekar seint (22:50). Var komin gegnum öryggishliðið alveg tveimur tímum fyrr! Úff úff! Var þvílíkt þreytt, sat við barin drekkandi pepsi og maulandi M&M's (sykur sykur sykur) hlustandi á The Arcade Fire og The Smashing Pumpkins til að reyna að halda mér vakandi... var samt ekki auðvelt!
Flugvélin var hálftóm en þó tókst mér einhvern veginn að festast í gluggasæti við hliðina á miðaldra dönskum lesbískum konum sem voru á leið til Íslands á H*rbalife námskeið (vil ekki að þeir sem leiti að þessu orði á google álpist hér inn!!). Sú sem sat við hliðina á mér var með svo stór læri að þau ýttu upp sætisörmunum. Að sökum þreytu var ég ekkert að taka eftir því og notaði arminn samt sem áður... þar til ég tók eftir því að það olli því að hann þrýstist niður í lærið á greyið konunni (afhverju sagði hún ekki neitt?) gaman, gaman!
Í rútunni á leiðinni til Reykjavíkur sat ég svo við hliðina á ungum sænskum rúmasölumanni sem var kominn til Íslands ásamt nokkrum samstarfsmönnum sínum á rúmasöluráðstefnu! Ég var þreytt og komin í svefngalsa og átti mjög erfitt með að fela hversu fyndið mér þótti það. Spjallaði þó við hann svo til alla leiðina (annars hefði ég sofnað) og tókst að móðga hann ekki! ...held ég...
Annars kemur fólk greinilega til Íslands af hinum ótrúlegustu ástæðum, held það mætti alveg nota þetta í handrit á einhverri súrrealískri bíómynd :)
Unnur kom svo og sótti mig niður á BSÍ en ég fékk að dvelja hjá henni þessa daga sem ég var á Íslandi (OG hún skutlaði mér líka upp á flugvöll þegar ég var að fara). Hún er pottþétt krútt mánaðarins. Takk Unnur mín! :*

Hvað gerði ég svo á klakanum?
- Fór í matarboð: -Á föstudeginum hjá ömmu og afa í Hafnarfirðinum. Bara við Benedikta en svo kíkti Nonni frændi við með Védísi frænku og vinkonu hennar.
-Á sunnudeginum var okkur systrum svo boðið að borða hjá Lalla frænda og co. Ívar og kærastan komu líka. Taco og tortillas og pönnukökur í eftirrétt, nammi namm!
-Á mánudeginum var mér boðið í mat hjá Gilla frænda og co. Umræður fóru að mestu fram á ensku þar sem þau eru með ítalskan gest í nokkrar vikur. Þegar hún fór var þó skipt yfir í ástkæra ylhýra og mest rætt um kanínur!
-Á þriðjudeginum vorum við systurnar og Aggi svo boðin aftur til ömmu og afa en í þetta skiptið voru Ívar frændi og kærastan með líka. Mikið var reynt að ná í Ella frænda (hef ekki hitt hann í e-r ár!) en það gekk ekki.
Öll þessi matarboð voru yndisleg og ef gestgjafarnir lesa þetta þá vil ég bara segja: Takk fyrir mig!! :)

- Fór í bíó: - Á föstudeginum fórum við Tommi á Thank you for smoking. Get svo sannarlega mælt með henni sem skemmtilegri gamanmynd :) Finnst hún ekki beint eftirminnileg en alveg stórgóð afþreying samt sem áður.
- Á sunnudeginum fórum við Atli Sig. á Clerks 2. Tæplega hálftíma fyrir sýningu hringdi ég í systur mína til að segja henni af matarboði og þá tilkynnti hún mér að hún, Aggi og e-r vinir þeirra ætluðu að koma og sjá myndina með okkur (e-r: Dóri, Kristó, Kristján og uh... Bippi? rétt munað hjá mér systa? Þetta nafna-óminni mitt er óþolandi!). Korteri fyrir sýningu hringir svo Unnur og spyr hvort ég vilji koma með henni og Orra á An Inconvenient Truth í Háskólabíói. Þegar þau heyrðu að ég væri að fara á Clerks 2 ákváðu þau hins vegar að koma bara með mér í staðinn. Þannig að á korteri stækkaði hópurinn úr 2 í 10, frekar skondið :D
Allavega! Myndin var ÆÐI! Ég hélt ég myndi bókstaflega kafna úr hlátri :) Langar þvílíkt að sjá hana aftur! Ef þið hafið séð Clerks I, hafið nördahúmor og sóðahúmor.... sjáið þessa mynd!! =D

- Sá nýjar íbúðir: - Á föstudeginum sá ég í fyrsta skipti íbúðina hjá Benediktu og Agga. Hún er alveg ofur kózí og svo eru þau með sturtu sem lítur út eins og geimskip! :D
- Á mánudeginum sá ég nýju íbúðina hennar Bjöggu. Hún er alveg mega krúttleg. Notaleg kjallaraíbúð í vesturbænum sem er rosalega sjarmerandi að sökum þess hversu mikið er upprunalegt í henni. Hlakka mikið til að sjá hana aftur þegar búið er að mála og flytja almennilega inn. Held hún eigi eftir að verða rosa sæt :)
- Á þriðjudeginum kíkti ég á nýju íbúðina hennar Söru frænku. Stór íbúð þar sem er hátt til lofts, alveg í miðbæ Reykjavíkur. Algjört æði! Var ekkert smá gaman að kíkja þangað! Bæði vegna þess að það er nú ekki svo oft sem ég hitti Söru heldur líka afþví að þangað komu einnig Unnsteinn frændi og svo Davíð, Eva og sonur þeirra Óliver. Hann er orðinn 11 mánaða en þetta var í fyrsta skipti sem ég fékk að sjá hann. Hann er ekkert smá mikil rúsína! Takkaóður grallari með ofursætt frekjuskarð! Íhhh! :) Þegar Benedikta heyrði að Óliver væri á staðnum kom hún líka brunandi því hún hafði ekki séð hann heldur.
Sara var líka svo sæt að gefa mér nokkrar gamlar Enid Blyton bækur! Var ekkert smá glöð með það en eins og þið sum vitið þá er ég rosalegur nostalgíu safnari. Safna gömlum barnabókum (bara þeim sem ég las sjálf sem krakki þó) og gömlum 80's og early 90's teiknimyndum (á slatta af þeim á DVD) svo e-ð sé nefnt.

- Hitti vini: - Fór með Xibei á kaffihús. - Á KFC með Nonna. - Heimsótti Siggu og fór með henni að sjá aðsetur Hjálparsveitar Kópavogs (mjög áhugavert). - Hékk með Unni og fór með henni í Góða hirðinn og á bókamarkað Eddu (bækur, bækur, bækur bækur!!). - Hékk allan laugardaginn með Sölva og Jóa. Um kvöldið bættust svo í hópinn Arna & Einar, Edda, Leifur & skiptineminn hans og Unnur og þá var pizzuát og spilerí.

Svo svona hitt og þetta... heimsótti ömmu og afa í Kópavogi 2x, var search-uð í 11-11, sótti myndavélina mína til Steina og Auju, etc.

Úff! Vá hvað ég nenni ekki að skrifa meira! Bókafærsla verður að bíða í bili!!

Þrennt sem ég hef að segja samt áður en ég lýk þessari blessuðu ritgerð:
a) Ég byrja á dönskunámskeiði á morgunn. Verð þar alla virka daga frá 8:30-11:15 næstu sex vikurnar, jeij! Vakna á morgnanna, úff!
b) Er búin að bæta við allavega tveimur blogglinkum (á frænkur mínar; Söndru Dögg og Birgittu).
c) Þið ykkar sem hlustið á rokk/metall, tékkið á fyrstu plötu hljómsveitarinnar Shima sem mun koma út á næstunni, "... and for a moment all fell silent". Fyrsta lagið, Coma, er komið í spilun á Xfm, svo þið getið fengið tóndæmi þar :) Þeir eru svo með allavega tvo tónleika á næstunni, skoðið síðuna þeirra ef þið hafið áhuga. (Á maður ekki alltaf að auglýsa smá fyrir vini sína?)

Endilega verið jafn dugleg að kommenta og síðast, var voða glöð með það! :)

4.9.2006

Sumri lokið..



Rúmlega mánuður frá síðustu færslu.... úff púff.


Einhverjir af mínum fáu lesendum heimta bloggfærslu þannig ég hef ákveðið að verða við þeirri bón. Það er samt einhvern veginn alltaf svo erfitt að blogga þegar svona langt hefur liðið á milli :)

Nokkrir punktar um hvað hefur gerst síðastliðinn mánuðinn:
- 16.ágúst fékk ég internettengingu heim og gat því hætt að heimsækja subbulega netkaffihúsið þar sem ég var vön að fara til að svala netfíkn minni. Húrra húrra!
Get ekki sagt að ég muni sakna reykingarstybbunar, svitafýlunnar, mínútuteljarans, hitans, counter strike nördanna, undarlega gamla listamannsins eða gaursins sem lyktaði verr en rotinn fiskur og gekk alltaf um í þröngum svörtum sokkabuxum.

- 18.ágúst fékk ég fallegu nýju fartölvuna mína! Nýju ástina í lífi mínu ;P Reyndar var smá klúður þegar þeir voru að koma með hana og er það bara snarræði Siggu að þakka að ég þurfti ekki að fara alla leið upp í Tåstrup að sækja gripinn! Sigga er því útnefnd Bjargvættur mánaðarins!

- Um miðjan mánuðinn keypti ég þrjár ágætis dvd myndir í ComputerCity á 150dkk og fannst ég gera ágætis kaup. Tveim dögum seinna fór ég í Fona og keypti 8 dvd myndir á 200dkk og fattaði að hin fyrri kaup voru ekkert svo sérstök í samanburði við þetta. Í Fona voru þeir með fullt af æðislegum myndum á 20 eða 30 dkk stykkið! Ekki amalegt.

- Sunnudaginn 13.ágúst komu Sigga vinkona mín og Ásgeir kærastinn hennar hingað til Köben og fengu þau að gista á sófanum mínum til föstudagsins þar sem eitthvað klikkaði með staðinn sem þau ætluðu að gista á. Það var alveg yndislegt að hafa þau hér og vona ég að þau komi fljótlega aftur ;) Um helgina voru þau svo á farfuglaheimili því að þá höfðu bæst í hópinn Halla systir Siggu og Atli vinur Ásgeirs. Við fórum öll saman út að skemmta okkur bæði föstudags og laugardagskvöld og var það svaka stuð :) Á föstudagskvöldinu héldum við okkur að mestu á The Dubliner sem ég var reyndar ekkert að fíla svo vel. Laugardagskvöldið byrjaði með stuttri viðkomu á Stengade 30 en hann var tómur þannig við fórum yfir á Coconut Beach Bar og drukkum ógeðslega sykursæta kokteila og enduðum svo á Rosie McGee's.
Þess má reyndar geta að á föstudagskvöldinu spjölluðum við við ungan íslenskan mann sem býr á götunni hér í Kaupmannahöfn. Viku seinna var þessum sama manni hrinnt fyrir lest eins og þið hafið vísast lesið um í blöðunum og er hann nú kallaður heppnasti maður Danmerkur.

- Helgina 25.-27.ágúst var Fanney Sísí í heimsókn hjá mér. Ég var reyndar að jafna mig eftir einhverja flensudruslu sem var búin að halda mér rúmliggjandi í 3 daga en þrátt fyrir það var helgin mjög fín. Á laugardagskvöldinu dró ég hana með í innfluttningspartý hjá Russell vini mínum en þar átti fólk að mæta uppáklætt sem persónur úr einhverju ævintýri. Þetta var frekar stórt partý, enda stór íbúð (fjögur sem leigja saman auk þess sem Russell og Casper eru með stúdíóið sitt þarna) og því var frekar mikið af skondnum búningum :) Við Fanney fórum sem álfar (ég sver að mér hefur aldrei liðið jafn hálfvitalega í strætó og þegar við vorum á leiðinni þangað... með vængina mína og fiðrildasprotann!!). Fór með flösku af Opal vodkaskotum þangað og vakti það mikla lukku!

- Síðasta föstudag kíktum við Guðný á Iceland Airwaves WarmUp-ið sem var á Lille Vega. Fannst reyndar tónlistin og fólkið takmarkað áhugavert þannig við stoppuðum bara í ca. 2 tíma... héldum svo yfir á Stengade 30 þar sem var mun meira fjör :)

Þetta eru svona hápunktarnir sem ég man eftir. Er annars bara mikið búin að vera að hangsa með vinum mínum hér... það minnkar kannski e-ð á næstunni þar sem háskólinn byrjaði aftur hjá þeim í dag. Hmmm...

Jáh, annars vil ég segja eitt. Mér finnst sjálfri svona persónuleg fréttablogg alveg takmarkað skemmtileg. Ég geri mér grein fyrir því að bloggið mitt er ekkert æðislegt en eins og ég tók fram þegar ég byrjaði að blogga fyrir ári síðan þá er þessi síða fyrst og fremst hugsuð sem fréttasíða fyrir fjölskyldu og vini sem búa í öðrum löndum. Finnst miklu skemmtilegri svona blogg eins og t.d. bloggið hans Sölva þar sem alltaf er skrifað um e-ð áhugavert, komið með pælingar og svo framvegis. Því ætla ég að reyna að koma með svoleiðis færslur inn á milli í framtíðinni... eða kannski bara lauma svoleiðis köflum inn í færslurnar mínar.

Annars ætla ég að segja þetta gott núna þar sem uppáhalds sjónvarpsþátturinn minn er að byrja eftir 10 mínútur (sá eini sem ég fylgist alltaf með). Það er s.s. "Grey's Anatomy", þáttur um skurðlæknanema.. rétt upp hönd sá sem er hissa á að slík sería sé í uppáhaldi hjá líffræðinördinu mér? :D En í alvöru talað, þetta er æðisleg sería með frábærri tónlist líka. Tékkið bara á soundtrackinu ef þið trúið mér ekki! Okkar yndislega Emiíana Torrini er meira segja með lag í þáttunum.

Minnið mig á að skrifa um bækur í næstu færslu... er búin að lesa nokkrar mjög svo góðar í sumar og langar að skrifa um þær...

Ahh.. og þarna, ég gat loksins sett inn restina af myndunum frá Lúxemborg og myndirnar frá Berlín. Endilega kíkið á þær :P


26.7.2006

He who hesitates; masturbates.

Jæja, hef svo sem ekki mikid ad segja en vil adeins bæta upp fyrir bloggleysi undanfarna vikna. Her i Baunalandi heldur vedrid afram ad vera dásamlegt og ég sé fram a ad eg verdi ad fara ad kikja a strøndina. Tha tharf eg nu liklega ad fara fyrst og kaupa mer sundføt en svoleidis hef eg ekki att i 7 ár...
Ibudin er... dasamleg tho enntha se slatti af drasli (mest pappirum) sem liggur utum allt og gerir hana ponsu ruslaralega. Ef hef bara einfaldlega ekki haft mikinn tima i ad sinna henni. Benedikta var her fram a sidasta fimmtudag, tha for ekki mikill timi i tiltekt.. eyddum honum frekar i bæjarrølt og Tivoli med Isju. Sidan var eg med 5 gesti fimmudag til føstudag. Helgin for reyndar i e-a tiltekt en lika i hangs med einum af vinum minum.
Manudagurinn var virkilega skemmtilegur en tha hitti eg Sölva sem er staddur her i Køben i viku. Strikid, Christiania, Nyhavn og Nørrebro lysir deginum agætlega :)
Gærdagurinn.. uff.. eg var alveg buin eftir hann! Hann for i ad leita ad manneskju. Malid er ad thad er kona sem eg thekki (gegnum fjølskylduna) sem byr rett hja mer. Eg bad thessa konu (sem er a sjötugsaldri) um ad geyma aukalykilinn ad gømlu ibudinni minni fyrir nokkrum manudum sidan (t.e.a.s. thegar eg komst ad thvi ad manneskjunni sem geymdi lykilinn fyrir mig adur væri ekki einu sinni treystandi fyrir thvi ad segja sannleikann og væri undirförulli en gódu hófi gegnir). Nu tharf eg hins vegar ad skila lyklunum ad gømlu ibudinni (og thrufti lika ad lana hana fyrr i manudinum) og hef verid ad reyna ad na i thessa konu i heilan manud! Hun svaradi aldrei simanum ne kom til dyra thegar eg reyndi thad... Amma og afi, sem thekkja hana vel, voru ordin alveg vel ahyggjufull um ad e-d hefdi komid fyrir hana. Fjølskyldan min kannast alveg vid dottur hennar en engin var med heimilsfangid hennar ne sima og enginn vissi eftirnafnid sem hun hefdi tekid eftir ad hun giftist. Engir adrir sem vid gatum spurt. Thannig... jah.. eg er undanfarna daga buin ad vera ad leita ad leidum til ad finna hana.
Lokaspretturinn var i gær, tokst ad redda addressu dotturinnar med ad sweet talka nokkra borgarstarfsmenn, utfra heimilsfanginu fann eg simanr. a netinu, utfra thvi nadi eg sambandi vid... barnabarn konunar... sem er svona 11 ara eda e-d, sem sagdi mer ad amma hans væri a spitala og hefdi verid i manud. Labbadi upp a spitala og tokst ad finna hana. Jeij. Dottir hennar ætlar ad redda lyklunum fyrir mig fljotlega (ef eg skila ekki lyklinum tharf eg liklega ad borga svona 30-50.000 isk thvi ad thetta er lykill sem gengur ad ollu a kollegiunni..). Jeij, eg er potthétt spæjari mánadarins! ;)
Jæja.. tonlistin a thessu netkaffihusi er farin ad valda heilaskemmdum og maginn farinn ad gaula thannig eg ætla ad forda mer!
P.S. Thad eru myndir fra fyrstu... 5 dögunum i Lux a myndasidunni minni... en restin er annars vegar föst a minniskortinu minu (thad er bögg med myndavelina mina sem eg nenni ekki ad utskyra] og svo er systir min med helling lika... thannig.. thær koma.. e-r timann. Eg mun hins vegar ekki taka fleiri myndir sjalf i sumar... skildi velina eftir i Luxembourg.
Annad... ef e-r af ykkur sem les thetta er ad koma til Køben er alveg skilda ad lata mig vita :) Sendid mer email eda kommentid her bara. Eg er reyndar EKKI til i fleiri Tivoliferdir.. er komin med vægt ofnæmi fyrir theim... en er game i flest annad ;)

21.7.2006

...

Ups, meira en manudur sidan eg bloggadi :o
Nokkrar astaedur fyrir thvi:
- Ekki haft tima
- Verid a ferdalagi og thar med ekki med adgang ad nettengdri tølvu
- Thegar eg hafi tima og adstødu (kom fyrir ørfau sinnum i Lux) tha var einfaldlega of heitt a efri hædinni (thar sem tølvan er) til ad hægt væri ad sitja vid tølvuna nogu lengi til ad skrifa bloggfærslu.

Er nuna a netkaffi sem er nanast vid hlidina a nyju ibudinni minni (sem er btw ædi!)... er ekki med nettengingu i henni enntha... Ætla ekkert ad fara ad skrifa mikid nuna.. bara svona ad lata vita ad eg er a lifi :P Sidasti manudurinn er buinn ad vera gedveikur :) Bara um fyrsta dag ferdarinnar hefdi eg audveldlega getad (og ætladi) ad skrifa heila færslu... og adra um tjodhatidardaginn i Lux thegar borginn breyttist bara i eitt mega stort party og vip partyid... og audvitad enn adra um Rock a Field hatidina.. Berlinarferdina (fotbolti, søfn og fylleri)... brudkaupid a Jotlandi.. Sigur Rosar tonleikana... fotboltastemmingjuna i Thyskalandi.... nyju ibudina... etc... :D

Hmm hmm.. jah.. thad er nu thad... verdur allt ad bida betri tima. Er ad pæla i hvort eg eigi ad kikja til Islands i lok agust... eda hvort eg eiga bara ad fara til Irlands... eda hvorugt? Held Spann se alveg utur myndinni... Æj... eg er svøng og nenni thessu ekki.. blogga meira seinna.

Vona ad thid hafid thad øll sem best og seud ad njota sumarsins!
chao