15.10.2006

Give up yourself unto the moment

Um það bil þrjár vikur liðnar frá síðasta bloggi. Þær hafa verið ótrúlega fljótar að líða!



Ég er í skólanum alla virka daga frá 8:30 til 11:15 og þar sem skólinn er niðri í miðbæ þarf ég að vera farin héðan út kl. 8:00. Það er mjög skrítið og var alls ekki auðvelt fyrstu vikuna þar sem það er ansi langt síðan ég hef þurft að vakna snemma á morgnanna (svona marga daga í röð þ.e.a.s.) og ég er sko ekki morgunmanneskja :P En jáh, blablabla... skólinn er bara rosa fínn! Góðir kennarar og frábær hópur :) Fólk kemur víða að; Afganistan, Taílandi, Póllandi, Mexíkó, Frakklandi, Líbanon, Grikklandi, Litháen, Ítalíu, Ástralíu og Ungverjalandi. Það var líka einn frá Brazilíu en hann þurfti að skipta um bekk eftir fyrstu vikuna og svo var stelpa frá Úkraníu sem þurfti að hætta. Finnst þessi fjölbreytileiki æðislegur því að í öllum umræðum koma fram svo mismunandi sjónarmið af sökum þess hversu ólíkan bakgrunn allir eiga.
Myndirnar sem ég setti á síðuna í síðustu viku eru frá því þegar við hittumst á föstudeginum (sem var frídagur) og borðuðum saman hádegistmat nokkrar af námskeiðinu og svo frá partýinu sem ég hélt um kvöldið.



Annars já, hefur lífið bara mest verið skóli skóli og þetta venulega. Fór reyndar í matarboð heima hjá Guðný og foreldrum hennar sem var alveg yndislegt. Síðasta þriðjudag fór ég svo í mat hjá Söru og síðan héldum við á tónleika með Ryan Adams á Vega. Þessari helgi er ég búin að eyða algjörlega í félagsskap Guðnýjar og Ómars, ætla að gera þeim þann óleik að setja inn nokkrar myndir frá því í gær... muhahaha...



En jáh.. æj, ég er ekki að nenna að vera að blogga... eftir 3 klst ætla ég að vera mætt heima hjá Samiru þar sem verður spjallað, borðað, hlegið og svo var e-ð verið að tala um magadans?? Áður en ég held þangað þarf ég eiginlega að reyna að laga þvottavélina mína... og þvo þvott... og taka smá til... íbúðin mín er full af flöskum... :S Þannig jáh, laterz....


P.S. Hvernig finnst ykkur nýju skórnir mínir?


4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Listfræðilegi ráðanauturinn minn, nú vantaði mig þig þegar ég varð að ákveða nafn á sýninguna í einum grænum svo að tilkynning kæmist í tæka tíð í Brúna sem er ómissandi rit fyrir íslendinga í Lúx.
:) Ma

Nafnlaus sagði...

By the way..skórnir eru æðislegir :)
MA

Benedikta sagði...

Þessir skór!!! *öfund*

Langar þig ekki bara að skreppa útí búðina og kaupa par handa mér líka? :P

En það er alveg frábært að heyra hvað þú ert bissíj, og já, þú hefur bara gott af því að vakna snemma :D 'Early bird gets the worm'

Salóme Mist sagði...

Takk :D

Benedikta: Hvaða skóstærð notarðu? :D

Bíbí!