4.12.2006

Ör-blogg (haha, eins og ég geti skrifað svoleiðis)



Hæ hó

Hef ekki mikið að segja og er alveg dauðsyfjuð en ákvað að setja inn nokkrar línur.
Taugin er farin að haga sér mun betur og ég byrjaði að fara aftur í skólann síðasta fimmtudag. Þá var ég búin að missa úr 2 vikur út af þessu helvíti sem er frekar mikið þegar tekið er til greina að þetta er aðeins 6 vikna námskeið. Það verður víst að hafa það...
Ekki mikið búið að gerast enda var ég föst heima í tvær vikur og ég hef heldur ekki gert mikið síðan þetta fór að skána. Fór reyndar í frábært matarboð á laugardaginn! Skemmtilegt fólk og fínasti matur. Yumm yumm, ég elska matarboð! =D
Pabbi kíkti í sólarhrings heimsókn á leið sinni til Íslands 22.nóv og mamma kíkti í jafn langa heimsókn á bakaleiðinni þann 26.nóv. Þau fóru s.s. til Íslands yfir helgi til að sjá Benediktu keppa í Ford model keppninni en þar stóð hún sig með prýði!
Það var ekkert smá huggulegt að fá þau hingað og íbúðin mín er ennþá huggulegri núna en áður en þau komu! Löguðum gardínurnar í stofu og svefnherbergi en áður voru þær allt of síðar. Keyptum einnig gardínu fyrir eldhúsgluggann og settum hana upp (ágætt að geta dregið fyrir þegar strákarnir í íbúðinni hérna beint hinum megin við götuna eru með partý... þegar maður getur ekki staðið í eigin eldhúsi án þess að hafa 7 stráka glápandi inn um gluggann og veifandi eins og vitleysinga þá þarf að laga e-ð.... þó það sé frekar krúttlegt).




Ég er komin með málverk í stofuna, það kemur ekkert smá vel út! (Pabbi kom með það frá Lúxemborg þegar hann kom, e-n veginn tókst honum að smooth-talk-a alla starfsmenn flugvallarins sem reyndu að stoppa hann frá því að taka það með í handfarangur... ég vildi að ég hefði þennan hæfileika!) Mátti velja mér eitt af verkunum hennar mömmu til að eiga og ég valdi verk sem kallast Lega. Það er ekkert smá fallegt og stofan breytti algjörlega um svip þegar við hengdum það upp! =)
Ég bjó líka til "póstkortavegg" yfir eldhúsborðinu, hengdi upp hluta af þeim fjöldamörgu póstkortum sem ég hef fengið síðasta árið (þau eru allavega 200 þannig það var kannski tæplega 1/4 af þeim sem endaði á veggnum).



Sama dag og tauginn klemmdist hafði ég líka fengið aðstoð við að setja saman viðbótar bókahillu hérna þannig að ég gat loksins losnað við síðasta fluttningskassann úr stofunni en hann var fullur af bókum og pappírum. S.s. íbúðin mín er ennþá flottari núna en hún var áður (og hún var sko ekki amaleg þá). Er þvílíkt montin af henni! :D

Það styttist í Lúxemborgar og Íslandsferð, hlakka ekkert smá til!

En jáh, ætla hætta þessu þvaðri um ekki neitt...


p.s. takk fyrir öll kommentin við síðustu færslu :*

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Frábært að heyra að þér sé farið að líða smá betur með þessa taug þína. Vonandi verðurðu ekki lengi að batna algjörlega og fara að dansa eins og brjálæðingur.

Farðu vel með þig og haltu áfram að föndra með íbúðina þína. Maður er farinn að hlakka til þess að kíkja á þig.

Sjáumst bráðlega.

Nafnlaus sagði...

Við hlökkum líka til að fá þig til Lúx...óskalisti um hvað á að gera ?
Trier, Metz eða bara chilla við arineld og baka smákökur?
Knús
Ma

Benedikta sagði...

hehe, veistu hvað?? mér tókst líka að rústa taug :D Vaknaði á miðvikudagsmorguninn með geðveikt furðulegan verk í vinstri fætinum.. svona samland af dofa og stingandi verk... rosa skemmtilegt :P fór til Sigurðar og mér tókst víst að klemma taug einhvers staðar í ökklanum... sem leiðir fram í tær og upp í bak... haltra svolítið núna :P

Siggi kallinn skildi samt ekkert í því hvernig ég fór að þessu án nokkurrar hreyfingar... :D ég er greinilega hættuleg í svefni :D:D

En já, hlakka til að sjá þig sys, bara 6 dagar þangað til :D