Ég ætlaði að vera löngu búin að blogga... t.d. um síðustu helgi, nýja dönskunámskeiðið og ýmislegt annað. Síðan á þriðjudag hins vegar, hef ég ekki getað setið mikið og því frekar erfitt að blogga. Ástæðan fyrir því er mikill verkur neðarlega í bakinu og í hægri mjöðm (leiðir oft niður í hægri fótlegg og upp eftir bakinu líka...). Komst svo að því á föstudaginn, eftir að hafa heimsótt lækni og sjúkraþjálfa að ég er líklega með klemmda taug. Það hljómar frekar sársaukafullt ekki satt? Það er það.
Ég hef s.s. bara að mestu verið í rúminu síðustu daga, á risa skömmtum af verkjalyfjum. Á að taka 4 pillur af 3 mismunandi verkjalyfjum... allt í einu. Sem mér finnst nú heldur mikið fyrir litlu mig. Ákvað sjálf að sleppa þessu sterkasta nema á næturna (get ekki sofið án þess). Það er e-ð verkjalyf sem virkar eins og morfín og jáh.. ugh, er ekki sérlega hrifin af því að taka það. Verð gjörsamlega útúr dópuð á að taka það plús aukaverkanirnar líkjast slæmri þynnku :/
Svo má ég lítið sitja, ekkert beygja mig, ekki halla mér til vinstri, etc etc etc... Frekar erfitt að lifa eftir þannig reglum þegar maður býr einn. Hvað gerist þegar maður missir e-ð á gólfið? Þegar maður þarf að þvo þvott?
Jæja, yfir og út í bili.
- da unlucky one
Ég hef s.s. bara að mestu verið í rúminu síðustu daga, á risa skömmtum af verkjalyfjum. Á að taka 4 pillur af 3 mismunandi verkjalyfjum... allt í einu. Sem mér finnst nú heldur mikið fyrir litlu mig. Ákvað sjálf að sleppa þessu sterkasta nema á næturna (get ekki sofið án þess). Það er e-ð verkjalyf sem virkar eins og morfín og jáh.. ugh, er ekki sérlega hrifin af því að taka það. Verð gjörsamlega útúr dópuð á að taka það plús aukaverkanirnar líkjast slæmri þynnku :/
Svo má ég lítið sitja, ekkert beygja mig, ekki halla mér til vinstri, etc etc etc... Frekar erfitt að lifa eftir þannig reglum þegar maður býr einn. Hvað gerist þegar maður missir e-ð á gólfið? Þegar maður þarf að þvo þvott?
Jæja, yfir og út í bili.
- da unlucky one

11 ummæli:
Æji aumingja litla sjúkrapían mín...
*knús sem sér til þess að þú beitir þig ekkert vitlaust*
Þú verður að láta þér batna ef ég á að koma að hitta þig í... Sumar?
Farðu ótrúlega vel með þig.
*knús frá mazda-stráknum-sem-festist-í-snjónnum*
Ojjjj...ég finn til með þér! Get ekki ýmindað mér hversu erfitt það er að vera svonna :(
Láttu þér nú batna sem fyrst elskan mín :) Þú verður orðin eiturhress þegar þú kemur heim um jólin ;) Ohh...ég hlakka svo til að hitta þig og gera eitthvað skemmtilegt :)
Jæja best að halda áfram að gera það sem að maður á að vera að gera þegar það er svona stutt í prófin :/
Hafðu það sem best og farðu varlega! Knús :*
farðu vel með þig stelpa :)
hvað varðar þvottinn.. þá bara platarðu einhvern góðan vin til að sjá um það fyrir þig ;) til þess eru þeir nú.
kv.
kristín sem var einu sinni með þér í mh
Sendi smá skammt ad styrk! Skamm skamm taug! Og ertu tá bara bída eftir ad hún adklemmist? eda hvernig virkar svona... spyr sá sem ekkert veit!
Já, þessar klemmdu tauger eru hreint helvíti. Hef 2var lent í því að klemma taug í hálsi, og fyrra skiptið var fyrir einhverja sýningu sem við héldum í skólanum, þannig að ég kom svolítið fáránlega út þarna á sviðinu.
:/ Fáðu þér bara húsþræl til að gera hlutina f. þig. :P
Takk fyrir öll kommentin, þið eruð bestust :* Líður miklu betur núna!
Tommi: *knús á móti*
Í sumar? Hittumst nú væntanlega þegar ég kem til Íslands í des/jan?? ;)
Sigga: Takk fyrir ofur yndislegt komment :) Hlakka líka helling til að sjá þig! Hvernig væri að taka feitt djamm e-t kvöldið þegar ég er á landinu? Hef í raun aldrei farið á djammið á Íslandi... sem er frekar.. skrítið :P
Gangi þér ofur vel með prófalesturinn *knús í klessu*
Kristín: Yo girl! Langt síðan ég hef heyrt í þér :)
Var svo heppin að pabbi var búin að plana að koma í eins dags heimsókn akkúrat meðan þetta var sem verst og hann sá um þvott og innkaup fyrir mig og alles.. Þannig ég þurfti ekki að nota vinina þó svo alveg nokkrir væru búnir að bjóðast til þess að hjálpa :)
Hjalti: Takk takk! :) Jáhm, þurfti bara að bíða og reyndar líka fara í meðferð hjá sjúkraþjálfa. Biðin var samt upp á von og óvon því stundum lagast svona EKKI! Hef talað við fólk sem var með svona klemmda taug í meira en ár og þurfti bara að lifa við stanslausan sársauka... ekki skemmtilegt það. Ég virðist samt vera heppin, þetta er að lagast og ég er almost back to normal :)
Geiri: Damn! Í hálsinum? Það hljómar nasty! :S Veistu e-ð afhverju þetta gerðist hjá þér?
Úlfr: Hehe, ágætis hugmynd! :P
Já, ég var í glímu við mann sem var áreiðanlega 3x ég, á alla kanta, og hann fleygði mér þannig að ég skall með hálsinn/höfuðið á endann á rúminu, og skall síðan á gólfinu. Ég og mitt líkamlega atgervi ... hah.
Áts.. :S Það er líklega ekki sniðugt að fara í glímu við fólk sem er 3x maður sjálfur að stærð...
Ástæðan fyrir að þetta gerðist hjá mér var líka frekar heimskuleg.. hjálpaði vinkonu minni að flytja þungan kassa... mitt bæklaða bak var ekki sátt við það...
Já ég er sko alveg til í djamm :) Það verður stuð :) En já...hef ekkert merkilegt að segja þannig að hafðu það bara gott :) Heyrumst sæta.
Hæ frænka og takk fyrir "veifið"...
Gaman að geta núna fylgst með þér í Danmörkinni ;*
Skrifa ummæli