Í þessari viku fékk ég loksins danska kennitölu, það þýðir að það hefur verið mikið að gera hjá mér. Vesenast með að stofna bankareikning, kaupa tryggingar, breyta skráningunni minni hjá skólanum og svona ýmisleg skemmtilegheit. En jáh, ég er eiginlega of þreytt til þess að vera að skrifa e-a langa færslu núna (yesss! heyrist í sumum....???) plús það að ég þarf að fara að sofa sem fyrst þar sem ég þarf að vakna á morgunn til að fara í flug. Jáhm, það er loksins komið að því að heimsækja Klakaland aftur :) Stutt heimsókn... bara í 5 daga... en það er allavega e-ð :) Dugir til að hitta fjölskyldu og vini og það er það sem skiptir máli.
Annars fór ég og keypi hluta af því sem ég þarf fyrir næstu "blokk" um daginn. S.s. aðra af bókunum sem ég þarf, bók í lífefnafræði sem er næstum 3 kg á þyngd. Og.... krufningasett! :D Svona lítil sæt dolla... svona eins og pennastokkur að stærð.. og lítur eins út.. en í staðinn fyrir blýant, strokleður og reglustiku inniheldur boxið tangir, skæri, nál og hníf :D :D Hinn áfanginn er s.s. komparativ anatomy... þar mun ég vera að skera í sundur fullt af litlum sætum dýrum.... víj?
Btw Animal planet er orðin uppáhalds sjónvarpsrásin mín! Dýrka suma þættina þar :D
Uhm.. uhm.. í gær... sá ég löggu í nammibúð að vera að velja sér nammi í poka. Í dag labbaði ég framhjá Rundetaarnen og fattaði að mér hafði tekist að fara fram hjá honum áður ÁN þess að fatta að þetta væri hann. Böh, ég ætla að fara að sofa... er alveg óhugnalega þreytt.. og mér er illt í maganum. Nýbúin að borða á kebab staðnum hérna útá horni (max 2 klst síðan), vona að ég sé ekki að vera e-ð veik af því :S Allavega, vonast til að hitta ykkur sem flest núna á næstu 5 dögum... endilega hringið í mig, verð með gamla númerið mitt :) Adios!

6 ummæli:
Ég þorði ekki að borða kebab þegar ég var þarna útí koöben 0.0 Some of them places dont look very sanitary :/
mmm klakar.
Hulda:Hehe, jáhm.. Raggy Dolls lagið er æði! :D Núverandi mynd er úr Teddy Ruxpin eða s.s. Bangsa Bestaskinn :)
Ég ELSKAÐI þá þætti þegar ég var lítill :D
Come dream with me tonight, we´ll go to faraway places(eða e-ð álíka).
Haukur: Ég líka! :D Ég átti líka svona stóra bangsa (Bangsa Bestaskinn og Gorm) sem maður gat sett kassettu og rafhlöður í og þá sögðu þeir sögu og sungu (fylgdi líka bók með). Þeir hreyfðu alveg augun og munninn og allt! Ýkt töff! :D
Atli: Ég fæ öll kommentin sem eru skrifuð hér send á meilið mitt... þannig ég les þau ekki alltaf í samhengi... og þegar ég sá þetta komment þitt þá var ég bara... "hvað er drengurinn að bulla?! var hann að reykja e-ð eða?" Leið smá stund áður en ég fattaði að þetta er texti úr laginu... :P *feel silly*
Btw þú ert algjör plebbi :)
Skrifa ummæli