Jæja, í dag var fyrsti skóladagurinn svo loksins. Búin að kvíða þessum degi í langan tíma! Ég veit ekki með ykkur en mér finnst alltaf erfitt að byrja í nýjum skóla.. allavega ef maður er að byrja í skóla í landi þar sem maður skilur ekki alveg tungumálið. Þegar ég flutti til Frakklands (6 ár síðan) þá var algjör hryllingur að byrja í skólanum þar enda skildi ég varla stakkt orð í frönsku á þeim tíma.
En jáh..
Ég byrjaði daginn á því að vakna geeeeðveikt snemma.. eða s.s. kl. 7. Sem er mjög snemmt að mínu mati þar sem ég hef nánast aldrei þurft að vakna svona snemma í allt sumar. Bara sofið út í 3 mánuði...
En jáh, morguninn var ekki sérlega skemmtilegur. Ég vaknaði alveg handónýt... af nokkrum ástæðum. a) Svaf ekki alveg nógu lengi. b) Dreymdi illa. c) Það var of heitt hérna inni. d) Ég var alltaf að vakna því að ég var að hósta svo mikið.
Ég átti víst eftir að segja ykkur að ég er lasin... eh... kvefið vonda sem ég nefndi í fyrri bloggfærslunni... það fór víst aldrei alveg, bara næstum. Þegar ég kom svo heim úr Rustur á föstudaginn fór það að versna.. og jáh, er orðið frekar slæmt aftur, ekki eins slæmt og það var fyrir sýklalyfin.. en ég er ansi hrædd um að ég þurfi að fara á læknavaktina aftur og fá sýklalyf á ný... jeij... Þessu hefur svo fylgt um helgina hausverkur, sár háls, aum lungu, slappleiki og skemmtilegheit... enn meira jeij! Er svo sem ekkert hissa á að verða veik eftir þessa ferð enda var mikil keyrsla allan daginn, mjög lítill svefn og e-ð af áfengi. Svo varð mér líka oft kalt, sérstaklega á kvöldin því að það var svo mismundandi hlýtt eftir herbergjum og maður var alltaf að flakka á milli. Oft varð drullukalt því þeir sem reyktu skildu allar dyr eftir opnar upp á gátt þegar þeir fóru út að reykja og blahhh...
Allavega, mér tókst samt að drattast á fætur og í sturtu. Gerði tilraun til að borða morgunmat en tókst það ekki þar sem mér var óglatt af stressi (jáh, ég er algjör stresshaus...). Síðan, af því að ég var svo sniðug að gleyma því í gær... þurfti ég að labba út í DTU (skólinn hans Gúnda, 10-15 mín labb?) til að fara í hraðbanka því ég þurfti að hafa pening til þess að geta keypt bækur.
Danir eru nefnilega svo sérlundaðir að flestar búðir, netverslanir og bara allt... taka bara svokallað Dankort (og stundum önnur innlend kreditkort). Ég get ekki fengið svoleiðis fyrr en ég hef skráð mig inn í landið og verið skráð hér í e-n ákveðinn langan tíma þannig ég þarf alltaf að hafa reiðufé á mér. Hér eru svo ekki hraðbankar út um allt eins og á Íslandi þannig að það er stundum vesen.
Allavega, kem svo að þessum blessaða hraðbanka, sem ég hef notað svona 10x áður örugglega... og þá neitar hann bara að láta mig hafa pening! *ýkt móðguð* Veit ekki alveg hvað málið var, e-r tengivilla líklegast þar sem að nóg innistæða var á reikningnum og svoleiðis. Ég var þó svo heppin að hafa visakortið mitt með líka þannig ég gat tekið út á því.... (það er samt drullu dýrt að nota visakort til að taka út úr hraðbönkum, bölvað rán).
Svo tók við labb út á strætóstöð og ca. hálftíma strætóferð niðrí Universitetsparken þar sem skólinn minn er. Fór í bókabúðina ásamt e-m stelpum sem eru með mér á braut og keypti bækurnar sem ég þarf fyrir þennan blessaða efnafræðikúrs. Þær eru 2, stórar og þungar hlussubækur sem er ekki gaman að bera á bakinu :S En en.. svo keypti ég fleira!!! Dagbók, stílabók, plastmöppu... og og og og tilraunaslopp! :D Þarf að eiga svoleiðis fyrir verklegu tímana! Er í honum núna og líður eins og ýkt miklu nördi! :D *hoppskopp*
Svo fór ég í tíma, fyrst verkefnatíma og svo á fyrirlestur. Ekki mikið frásagnavert þar. Eftir tímana var ég svo þreytt að ég ákvað að fara bara beint heim. Var við það að lognast út af á leiðinni samt því að ég var svo þreytt, taskan svo drulluþung og svo var geðveikt gott veður og ég auðvitað í þykkustu peysunni minni svo mér yrði nú örugglega ekki kalt í veikindunum. Ojoj.
Eitt sem ég gleymdi að minnast á í síðustu færslu, ég var stungin af flugu í rustúrnum! :S Ég hef barasta aldrei verið stungin af neinum flugum nema moskítóflugum áður þannig að mér brá frekar mikið! Þetta var alveg drullu vont og ég var með þvílíkan verk í handleggnum allan daginn. Veit ekki hvaða fluga þetta var en ég mun finna út úr því einn daginn, hafa upp á henni og bíta hana á móti! muhahahaha!!!
En jáh, ég bjó til eitt stk sæta myndasíðu fyrir ykkur! :D Þar er ég búin að setja inn örfáar myndir úr Rustur (myndir sem D.N.R. tók, ég var ekki með myndavél sjálf). (Á ég kannski að setja fleiri?) Fljótlega set ég svo þarna inn nokkrar myndir frá ferðinni í dýragarðinn og í Tívolí :) Og kannski mynd af nýja tilraunasloppnum mínum!!! :D *tísta*
http://photos.heremy.com/smist/
Ef e-m leiðist svo alveg rosalega og langar að skoða stundaskránna mína þá er hún hér í pdf skjali http://kl5.ki.ku.dk/~smk/mbm/skema.pdf
Ég er í Hold 2 sem þýðir að á mánudögum og þriðjudögum er ég einungis í skólanum frá 10:15-12. Miðvikudögum og fimmtudögum frá 10:15-17. Föstudögum kl. 9:15-12. Frekar nice stundaskrá me thinks! :D En svo þarf ég auðvitað að læra helling heima.
Jæja, ég er eiginlega of syfjuð til að halda mér vakandi lengur.. er að pæla í að leggja mig smá :P
Annars ætlaði ég bara að segja takk fyrir öll kommentin, það er ekkert gaman að skrifa svona blogg nema að maður fái e-r viðbrögð frá fólki þannig endilega verið áfram dugleg við það :)
Vona að þið hafið það öll sem best!
29.8.2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

9 ummæli:
bloggið þitt er orðið minn skemmtilestur, en fyrst ætla ég að minna þér á að linkið fyrir myndirnar virka ekki, alla vega ekki á minum tölvu og svo er það stundatöflan þín, ekki smá kósý tafla : ). no more komment í bili, þarf að fara að læra, úff :(
xibei
Xibei: Það er nú gaman að heyra! :D Linkurinn á myndirnar virkar hjá mér en ég hef einmitt heyrt að þessi myndasíða virki ekki hjá öllum (e-r var að tala um að þeir sem væru með tengingu hjá Hive gætu ekki séð hana? ég veit ekki hvort það er rétt). Ég skal athuga hvort ég finni betri síðu til að hafa myndirnar á :) Gangi þér vel að læra!! :)
Ég þarf víst að fara að læra líka, langar samt ekki til þess þar sem mér líður ekki sérlega vel :S
Xibei: Hér er annað mynda-albúm :) Vona að þetta virki hjá þér! :)
http://photobucket.com/albums/b39/smist/
ég er svo skotin í stelpunni sem er með putta í munninum á twister myndinni. hún er rosa sæt. en ég er samt svo ósátt við þig salóme. ég vildi sjá myndir af þér, ekki bara naflann á einhverjum fullum dönum! já og það í annað skiptið!!
Æj, þú ert svo kröfuhörð Unnur! Vesen á þér! :)
Sendu mér mynd af flugunni með bitförum!!!
Elska húmorinn þinn
Ma
Vásí! ég verð að fá að sjá mynd af þér í tilraunaslopp! Youre becoming a crazy scientist already!
Ég er alveg viss um að þessi fluga hafi gefið þér súpernáttúrulega krafta! svona eins og kóngulóin í Spider-man... við verðum bara að bíða og sjá.... ^.-
Salóme: ég held það sé alveg sagt með þetta Hive dót. ég er hjá Hive. En er búin að skoða myndirnar með rustur. EN þar eru engar myndir af þér...hmmmm...hmmm...
Xibei
Dikta: Újé! Mig klæjar á bakinu, heldurðu að það séu fluguvængirnir mínir að byrja að vaxa? :D
Xibei: Er með eina mynd úr rusturnum þar sem ég sést almennilega og þar lít ég út eins og mongólíti þannig sú mynd fer ekki hingað :D Ætti að vera bannað að taka myndir af manni þegar maður er að borða...
Skrifa ummæli