26.3.2008

Komin heim frá Túnis

Jæja já. Ég er ekki alveg að nenna að blogga þessa daganna. Kom heim frá Túnis á sunnudaginn en á meðan ég var þar var enginn möguleiki á að komast á netið yfirhöfuð. Núna er komið fram yfir miðnætti svo ég ætla heldur ekki að leggjast í e-r ferðasöguskrif núna heldur bara að láta vita af mér :) Set hér örfáar myndir frá Túnis, margar margar fleiri er að sjálfsögðu að finna á myndasíðunni minni. Vona að þið hafið það sem allra best :*










3.3.2008

Fede ænder begår massevoldtægt

http://politiken.dk/indland/article478599.ece

Massevoldtægt er et fast element i ændernes parringsritual, men når vi fodrer de liderlige gråænder, øger vi riskoen for druknedød blandt hunænder.
Þetta er svona um það bil undarlegasta fyrirsögn og grein sem ég hef nokkur tímann lesið! Check it out.

2.3.2008

Sprenging og eldur um miðja nótt



Kl. ca. 2:13 í nótt heyri ég sprengingu. Af gömlum vana hleyp ég beint út á gang og kíki út um gluggann þar, og viti menn! Þar brennur vörufluttningabíll. Ég get ekki sagt með vissu hvort sprengingin kom þaðan en það var allavega ekki hún sem setti eldin af stað því slökkvulið og lögregla voru nú þegar mætt á staðinn. Þeim gekk frekar greiðlega að slökkva eldinn. Skildi þetta vera tengt 1 árs niðurrifsafmæli Ungdómshússins? Hmmmm ha?

1.3.2008

Mótmælaganga dagsins



Í dag er liðið nákvæmlega eitt ár frá niðurrifi Ungdómshússins. Þótt samkomulag sé loks komið á milli ungmennanna og borgarstjórnarinnar um að ungmennin muni fá nýtt hús til afnota, þá hefur endanlega ákvörðun um hvaða hús það skuli vera ekki verið tekin. Ungmennunum er farið að lengja eftir húsi og mótmælagöngur hafa verið haldnar í hverri viku síðan niðurrifið var (svo ég best viti til).
Í tilefni dagsins í dag var svo efnt til stórrar mótmælagöngu til að minnast gamla hússins og berjast fyrir nýju undir yfirskriftinni "You broke our heart, not our spirit". Samkvæmt síðu Ungdómshússins mættu um 3000 manns í gönguna (eða göngurnar, þær voru tvær - hin fór frá Kristjaníu). Gangan var að mestu friðsæl enda hafði fólk verið hvatt til að taka fjölskylduna með og urðu margir við því að því virtist. Það vakti þó athygli mína að sumir þátttakendur voru grímuklæddir en ég hef engar heimildir fyrir því að þeir hafi gert annað af sér en að mála graffítí á hús (myndir af því á Politiken.dk).

26.2.2008

Hitt og þetta í febrúar



Jumm jumm jumm! Sit hérna og háma í mig hvern Þristinn á fætur öðrum en hún Elín var svo sæt að koma með poka af þeim fyrir mig. Íslenskt nammi er svo gott!
Elín og Guðrún Ágústa eyddu s.s. þarsíðustu helgi hér á sófanum hjá mér. Eins og þið getið séð á myndavídeóinu sem ég setti upp þann 19.febrúar þá var þetta alveg mega skemmtileg helgi. Föstudagskvöldið hefði mátt vera betra, það var e-ð tæp stemming á öllum stöðunum sem við kíktum á um kvöldið en fram að því höfðum við það gott heima hjá mér. Laugardagskvöldið var þeim mun betra. Kíktum á Mexi Bar til að fá okkur Strawberry Daiquiri. Kokteilarnir voru nú ekki jafn svakalega góðir og venjulega en það bætti það upp að eini sæti strákurinn á svæðinu ákvað að bjóða okkur með í partý uppí háskóla... Það var mega gaman. Besta partý sem ég hef farið í leeeengi!
Á sunnudeginum fórum við á Laundromat café og fengum okkur brunch. Get sko alveg mælt með því að fá sér brunch þar (ef maður er svo heppinn að fá sæti). Eini gallinn við þennan stað er að tónlistin er alltaf aðeins of hátt stillt. Þó allavega góð tónlist... Seinnipartinn tókst Guðrúnu svo að plata okkur Elínu í bíó að sjá El Orfanato. Rosalega góð mynd! Söguþráðurinn er rosalega áhugaverður þó svo við höfum fundið eina holu í honum (eftir að hafa rætt myndina fram og tilbaka). Myndin er alls ekki fyrir viðkvæma (ég vil til dæmis ráðleggja elskulegri systur minni frá því að sjá hana) þó svo ég hafi alveg búist við að hún væri verri. Var búin að heyra að fólk stykki uppúr sætunum á stöku stað og svona -sem ég hefði eflaust gert líka hefði ég ekki verið viðbúin (og lokað augunum æði oft). Þetta er samt ekki hryllingsmynd beint, ég myndi allavega eiga erfitt með að skilgreina hana þannig. Spennandi, sorgleg, óhugnaleg... og mjög umhugsunarverð.
Mánudeginum var svo að mestu eytt í Fields þar sem við náðum allar að versla eitthvað. Ég meira að segja keypti mér kápu (búin að vera að leita að svoleiðis lengi!) sem má teljast vel af sér vikið því ég var eitthvað veik. Var með þvílík kulda og hitaköst allan daginn og fór að líða svo illa um fimmleitið að ég stakk af heim í stað þess að fylgja Elínu upp á flugvöll. Satt að segja efaðist ég smá um að ég kæmist alla leið heim hjálparlaust því mér leið eins og það væri að líða yfir mig. Ekki gaman.



Anyhow, fjörið endaði ekki þó Elín yfirgæfi okkur og héldi aftur til Íslands því hann Hjalti hafði líka ákveðið að taka sér frí frá sínu ástkæra Finnlandi og kíkja til Baunaveldis. Hann dvaldi reyndar hjá Sigrúnu og Þóri en þau kíktu öll í heimsókn á þriðjudagskvöldinu og voru hér langt fram á nótt!

Sama dag og Hjalti fór úr landi kom svo Anne vinkona mín frá London. Eins og ég nefndi í öðrum pósti missti ég af partýinu sem hún bauð mér með í á föstudeginum en á sunnudagskvöldinu áttum við rosalega notalegt kvöld hérna heima ásamt Russell. Ég var líka rosa kát að fá loksins DVD myndirnar og geisladiskana sem ég keypti í London í apríl í fyrra en varð að skilja eftir hjá henni þá vegna töskuplássleysis :P Anne dvaldi hér fram á mánudagskvöld en þá flaug hún heim. Áður en hún fór var hins vegar kominn enn einn gesturinn (það er þvílíkt season í gangi núna greinilega) en hann Þorgils frændi hafði óvænt samband og vildi endilega kíkja í heimsókn. Fannst frábært að ná loksins að hitta hann, förumst yfirleitt á mis en ég var erlendis allavega síðasta sumar þegar hann kom (en þá lánaði ég honum bara íbúðina í staðinn).
Í gærkvöldi horfðum við á ágætis mynd sem heitir The Edukators eða Die Fetten Jahre sind vorbei en hún er þýsk og frá árinu 2004. Söguþráðurinn virðist á tímabili ætla að verða fyrirsjáanlegur en er það svo ekki. Þetta er ein af myndunum sem ég hafði keypt í London og voru þau kaup gerð vegna þess að Anne mælti með henni. Ég vil hér með mæla með henni líka.



Anyhow, núna reikna ég með smá gestapásu... hef sagt nei við alveg ótal couchsurfara því ég meika bara ekki fleiri gesti í augnablikinu. Mun þó taka á móti einum í byrjun næstu viku en bara því að þar er gamall kunningi á ferð eða s.s. gaurinn sem var fyrsti couchsurfarinn minn! Verður gaman að sjá hann aftur :)

Annars er alltaf nóg í gangi. Fór í bólusetningu í gær við lifrarbólgu A vegna Túnis-ferðarinnar. Það er svona vissara... Svo vorum við Guðrún Ágústa núna að kaupa okkur miða á SMASHING PUMPKINS tónleikana sem eru á MORGUNN! Hinn daginn stefni ég á að kíkja á háskólakynningu hjá einni eða tveimur deildum og á föstudaginn er svo Couchsurfing matarboð.



Á meðan ég man þá vil ég minnast á að ég fór að sjá Sweeney Todd fyrir nokkrum vikum síðan. Hún var bara nokkuð góð myndi ég segja. Ég er venjulega ekki mikið fyrir söngleiki og er það kannski þess vegna sem ég er ekki búin að bæta henni á listann yfir mínar uppáhalds myndir. Tónlistin var þó vel gerð og ég var raulandi í alveg nokkra daga eftir að sjá myndina. Vel leikin (að sjálfsögðu, bara EÐAL leikarar í þessari mynd), flott sviðsmynd, flott gerð... get í raun ekki kvartað yfir neinu og skil ekki afhverju ég er ekki hrifnari af henni en ég er.



Var að fara í gegnum gamla bloggpósta og fann eitt draft sem ég hef gleymt að klára (í maí í fyrra). Kannski hef ég minnst á þetta í öðrum bloggfærslum en það var allavega þrennt sem ég ætlaði að skrifa um.
Það fyrsta var myndin Venus. Hún er góð og vel leikin, á því leikur enginn vafi en á sama tíma er mjög óþægilegt að horfa á hana. Það er einfaldlega e-ð rangt við að sjá rúmlega sjötugan mann falla fyrir stelpu um tvítugt. Það er óþægilegt að sjá fólk á áttræðisaldri sem kynverur. Mjög óþægilegt. Ef þú heldur að þú getir ekki höndlað það, ekki sjá þessa mynd. Hún er samt mjög sæt.
Svo var það Zodiac. Hún er fín en það er ekkert spes við hana. Hún er ekki eftirminnileg á neinn hátt. Ég hafði gaman af að horfa á hana (þó hún væri ferlega löng) en mér finnst ég hefði ekki misst af neinu með því að sjá hana ekki. Æhj, 158 mínútur er eiginlega of mikið til að eyða í e-a mynd sem er ekki rass eftirminnileg.
Það síðasta er veitingastaðurinn Rosso Pomodoro. Ætlaði að skrifa um hann fyrir rúmlega ári síðan. Bara til að segja að mér finnst hann frekar mikið drasl. Við fórum þangað 5 á sérstöku tilefni, enginn pantaði sér það sama (þó svo flestir hafi fengið sér e-s konar pizzu) en allir fengu mjög óspennandi mat. Þegar maður borgar þetta mikið vill maður ekki fá óspennandi mat. Þjónustan var líka heldur tæp. Svei svei á Rosso Pomodoro.



Svo svona örstutt:
Hairspray er ömurlega leiðinlegt DRASL.
Ratatouille er allt í lagi en ekki jafn góð og ég bjóst við.
The Painted Veil fannst mér mjög góð.
Music and lyrics er frekar léleg en svona rétt svo áhorfanleg.
Waitress er fín. Skemmtilega öðruvísi karakterar.

23.2.2008

Ruslumdrasl




Vúhú, styttist óðum í Túnis-ferðina! :D

Það voru góðu fréttirnar, vondu fréttirnar eru að þessi helgi er ömurleg. Í gærkvöldi var planið að fara í partý með vinkonu minni sem ég hef ekki hitt í næstum ár (hún býr í London). Hefði eflaust verið mjög gaman... En nei, í staðin er ég heima með sáran magaverk og enda á að hringja í læknavaktina kl. 23. Eftir rúmlega tveggja tíma bið kemur læknir hingað, potar e-ð í magann á mér og sendir mig svo upp á spítala því hann grunar að þetta gæti verið botnlangabólga.
Hjúkkur og læknar pynta mig svo til kl. 4 um nóttina en ákveða þá að þetta sé greinilega ekki e-ð bráðalvarlegt. Fékk þá loksins að sofa í 4 heila tíma... vúhú.

Æj, nenni eiginlega ekki að skrifa meira um þetta. Er allavega komin heim, ennþá með vondan magaverk en allt í lagi með mig svo sem. Bispebjerg spítali er drasl samt.