1.3.2008

Mótmælaganga dagsins



Í dag er liðið nákvæmlega eitt ár frá niðurrifi Ungdómshússins. Þótt samkomulag sé loks komið á milli ungmennanna og borgarstjórnarinnar um að ungmennin muni fá nýtt hús til afnota, þá hefur endanlega ákvörðun um hvaða hús það skuli vera ekki verið tekin. Ungmennunum er farið að lengja eftir húsi og mótmælagöngur hafa verið haldnar í hverri viku síðan niðurrifið var (svo ég best viti til).
Í tilefni dagsins í dag var svo efnt til stórrar mótmælagöngu til að minnast gamla hússins og berjast fyrir nýju undir yfirskriftinni "You broke our heart, not our spirit". Samkvæmt síðu Ungdómshússins mættu um 3000 manns í gönguna (eða göngurnar, þær voru tvær - hin fór frá Kristjaníu). Gangan var að mestu friðsæl enda hafði fólk verið hvatt til að taka fjölskylduna með og urðu margir við því að því virtist. Það vakti þó athygli mína að sumir þátttakendur voru grímuklæddir en ég hef engar heimildir fyrir því að þeir hafi gert annað af sér en að mála graffítí á hús (myndir af því á Politiken.dk).

Engin ummæli: