Kl. ca. 2:13 í nótt heyri ég sprengingu. Af gömlum vana hleyp ég beint út á gang og kíki út um gluggann þar, og viti menn! Þar brennur vörufluttningabíll. Ég get ekki sagt með vissu hvort sprengingin kom þaðan en það var allavega ekki hún sem setti eldin af stað því slökkvulið og lögregla voru nú þegar mætt á staðinn. Þeim gekk frekar greiðlega að slökkva eldinn. Skildi þetta vera tengt 1 árs niðurrifsafmæli Ungdómshússins? Hmmmm ha?
2.3.2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

4 ummæli:
Jesús... ekki skil ég hvernig þú meikar að búa í þessu hverfi elsku systa mín...
maður hefur nú smá áhyggjur af þér þarna.. hvað er þetta, 3 skiptið sem kveikt er í fyrir aftan húsið þitt?
Hahahahahha, nei... meira svona eins og tíunda skiptið? :D Í mörgum tilvikum hef ég þó ekki orðið vör við brunana þar sem þeir eru alltaf um miðjar nætur og fyrir aftan hús. Sé bara ruslagáma sem hafa bráðnað niður í litlar klessur næst þegar ég ætla út með ruslið...
Kryddar bara tilveruna að hafa smá axsjón í kringum sig... errrr ;P
Takk fyrir að kommenta :*
úff, mig dreymdi einmitt einhver sækó ungdomshúsmótmæli í nótt - maður er farinn að fá þetta á heilann! ;)
Já Sigrún, ég er ekki hissa á því :) Síðustu tvær nætur hefur mér einmitt dreymt um hryðjuverk.. og í eitt skiptið kom einmitt brennandi vörubíll við sögu. Þarf víst ekki að spurja hvaðan þessir draumar eiga rætur sínar að rekja...
Skrifa ummæli