26.2.2008

Hitt og þetta í febrúar



Jumm jumm jumm! Sit hérna og háma í mig hvern Þristinn á fætur öðrum en hún Elín var svo sæt að koma með poka af þeim fyrir mig. Íslenskt nammi er svo gott!
Elín og Guðrún Ágústa eyddu s.s. þarsíðustu helgi hér á sófanum hjá mér. Eins og þið getið séð á myndavídeóinu sem ég setti upp þann 19.febrúar þá var þetta alveg mega skemmtileg helgi. Föstudagskvöldið hefði mátt vera betra, það var e-ð tæp stemming á öllum stöðunum sem við kíktum á um kvöldið en fram að því höfðum við það gott heima hjá mér. Laugardagskvöldið var þeim mun betra. Kíktum á Mexi Bar til að fá okkur Strawberry Daiquiri. Kokteilarnir voru nú ekki jafn svakalega góðir og venjulega en það bætti það upp að eini sæti strákurinn á svæðinu ákvað að bjóða okkur með í partý uppí háskóla... Það var mega gaman. Besta partý sem ég hef farið í leeeengi!
Á sunnudeginum fórum við á Laundromat café og fengum okkur brunch. Get sko alveg mælt með því að fá sér brunch þar (ef maður er svo heppinn að fá sæti). Eini gallinn við þennan stað er að tónlistin er alltaf aðeins of hátt stillt. Þó allavega góð tónlist... Seinnipartinn tókst Guðrúnu svo að plata okkur Elínu í bíó að sjá El Orfanato. Rosalega góð mynd! Söguþráðurinn er rosalega áhugaverður þó svo við höfum fundið eina holu í honum (eftir að hafa rætt myndina fram og tilbaka). Myndin er alls ekki fyrir viðkvæma (ég vil til dæmis ráðleggja elskulegri systur minni frá því að sjá hana) þó svo ég hafi alveg búist við að hún væri verri. Var búin að heyra að fólk stykki uppúr sætunum á stöku stað og svona -sem ég hefði eflaust gert líka hefði ég ekki verið viðbúin (og lokað augunum æði oft). Þetta er samt ekki hryllingsmynd beint, ég myndi allavega eiga erfitt með að skilgreina hana þannig. Spennandi, sorgleg, óhugnaleg... og mjög umhugsunarverð.
Mánudeginum var svo að mestu eytt í Fields þar sem við náðum allar að versla eitthvað. Ég meira að segja keypti mér kápu (búin að vera að leita að svoleiðis lengi!) sem má teljast vel af sér vikið því ég var eitthvað veik. Var með þvílík kulda og hitaköst allan daginn og fór að líða svo illa um fimmleitið að ég stakk af heim í stað þess að fylgja Elínu upp á flugvöll. Satt að segja efaðist ég smá um að ég kæmist alla leið heim hjálparlaust því mér leið eins og það væri að líða yfir mig. Ekki gaman.



Anyhow, fjörið endaði ekki þó Elín yfirgæfi okkur og héldi aftur til Íslands því hann Hjalti hafði líka ákveðið að taka sér frí frá sínu ástkæra Finnlandi og kíkja til Baunaveldis. Hann dvaldi reyndar hjá Sigrúnu og Þóri en þau kíktu öll í heimsókn á þriðjudagskvöldinu og voru hér langt fram á nótt!

Sama dag og Hjalti fór úr landi kom svo Anne vinkona mín frá London. Eins og ég nefndi í öðrum pósti missti ég af partýinu sem hún bauð mér með í á föstudeginum en á sunnudagskvöldinu áttum við rosalega notalegt kvöld hérna heima ásamt Russell. Ég var líka rosa kát að fá loksins DVD myndirnar og geisladiskana sem ég keypti í London í apríl í fyrra en varð að skilja eftir hjá henni þá vegna töskuplássleysis :P Anne dvaldi hér fram á mánudagskvöld en þá flaug hún heim. Áður en hún fór var hins vegar kominn enn einn gesturinn (það er þvílíkt season í gangi núna greinilega) en hann Þorgils frændi hafði óvænt samband og vildi endilega kíkja í heimsókn. Fannst frábært að ná loksins að hitta hann, förumst yfirleitt á mis en ég var erlendis allavega síðasta sumar þegar hann kom (en þá lánaði ég honum bara íbúðina í staðinn).
Í gærkvöldi horfðum við á ágætis mynd sem heitir The Edukators eða Die Fetten Jahre sind vorbei en hún er þýsk og frá árinu 2004. Söguþráðurinn virðist á tímabili ætla að verða fyrirsjáanlegur en er það svo ekki. Þetta er ein af myndunum sem ég hafði keypt í London og voru þau kaup gerð vegna þess að Anne mælti með henni. Ég vil hér með mæla með henni líka.



Anyhow, núna reikna ég með smá gestapásu... hef sagt nei við alveg ótal couchsurfara því ég meika bara ekki fleiri gesti í augnablikinu. Mun þó taka á móti einum í byrjun næstu viku en bara því að þar er gamall kunningi á ferð eða s.s. gaurinn sem var fyrsti couchsurfarinn minn! Verður gaman að sjá hann aftur :)

Annars er alltaf nóg í gangi. Fór í bólusetningu í gær við lifrarbólgu A vegna Túnis-ferðarinnar. Það er svona vissara... Svo vorum við Guðrún Ágústa núna að kaupa okkur miða á SMASHING PUMPKINS tónleikana sem eru á MORGUNN! Hinn daginn stefni ég á að kíkja á háskólakynningu hjá einni eða tveimur deildum og á föstudaginn er svo Couchsurfing matarboð.



Á meðan ég man þá vil ég minnast á að ég fór að sjá Sweeney Todd fyrir nokkrum vikum síðan. Hún var bara nokkuð góð myndi ég segja. Ég er venjulega ekki mikið fyrir söngleiki og er það kannski þess vegna sem ég er ekki búin að bæta henni á listann yfir mínar uppáhalds myndir. Tónlistin var þó vel gerð og ég var raulandi í alveg nokkra daga eftir að sjá myndina. Vel leikin (að sjálfsögðu, bara EÐAL leikarar í þessari mynd), flott sviðsmynd, flott gerð... get í raun ekki kvartað yfir neinu og skil ekki afhverju ég er ekki hrifnari af henni en ég er.



Var að fara í gegnum gamla bloggpósta og fann eitt draft sem ég hef gleymt að klára (í maí í fyrra). Kannski hef ég minnst á þetta í öðrum bloggfærslum en það var allavega þrennt sem ég ætlaði að skrifa um.
Það fyrsta var myndin Venus. Hún er góð og vel leikin, á því leikur enginn vafi en á sama tíma er mjög óþægilegt að horfa á hana. Það er einfaldlega e-ð rangt við að sjá rúmlega sjötugan mann falla fyrir stelpu um tvítugt. Það er óþægilegt að sjá fólk á áttræðisaldri sem kynverur. Mjög óþægilegt. Ef þú heldur að þú getir ekki höndlað það, ekki sjá þessa mynd. Hún er samt mjög sæt.
Svo var það Zodiac. Hún er fín en það er ekkert spes við hana. Hún er ekki eftirminnileg á neinn hátt. Ég hafði gaman af að horfa á hana (þó hún væri ferlega löng) en mér finnst ég hefði ekki misst af neinu með því að sjá hana ekki. Æhj, 158 mínútur er eiginlega of mikið til að eyða í e-a mynd sem er ekki rass eftirminnileg.
Það síðasta er veitingastaðurinn Rosso Pomodoro. Ætlaði að skrifa um hann fyrir rúmlega ári síðan. Bara til að segja að mér finnst hann frekar mikið drasl. Við fórum þangað 5 á sérstöku tilefni, enginn pantaði sér það sama (þó svo flestir hafi fengið sér e-s konar pizzu) en allir fengu mjög óspennandi mat. Þegar maður borgar þetta mikið vill maður ekki fá óspennandi mat. Þjónustan var líka heldur tæp. Svei svei á Rosso Pomodoro.



Svo svona örstutt:
Hairspray er ömurlega leiðinlegt DRASL.
Ratatouille er allt í lagi en ekki jafn góð og ég bjóst við.
The Painted Veil fannst mér mjög góð.
Music and lyrics er frekar léleg en svona rétt svo áhorfanleg.
Waitress er fín. Skemmtilega öðruvísi karakterar.

23.2.2008

Ruslumdrasl




Vúhú, styttist óðum í Túnis-ferðina! :D

Það voru góðu fréttirnar, vondu fréttirnar eru að þessi helgi er ömurleg. Í gærkvöldi var planið að fara í partý með vinkonu minni sem ég hef ekki hitt í næstum ár (hún býr í London). Hefði eflaust verið mjög gaman... En nei, í staðin er ég heima með sáran magaverk og enda á að hringja í læknavaktina kl. 23. Eftir rúmlega tveggja tíma bið kemur læknir hingað, potar e-ð í magann á mér og sendir mig svo upp á spítala því hann grunar að þetta gæti verið botnlangabólga.
Hjúkkur og læknar pynta mig svo til kl. 4 um nóttina en ákveða þá að þetta sé greinilega ekki e-ð bráðalvarlegt. Fékk þá loksins að sofa í 4 heila tíma... vúhú.

Æj, nenni eiginlega ekki að skrifa meira um þetta. Er allavega komin heim, ennþá með vondan magaverk en allt í lagi með mig svo sem. Bispebjerg spítali er drasl samt.

19.2.2008

16.2.2008

Í gær:



Veit nú satt að segja ekki alveg hvað þessi ganga var fyrir. Skildi ekki borðana þeirra.

Það má hins vegar nefna að í gær var fimmta eða sjötta kvöldið í röð þar sem (annarrar kynslóðar) innflytjendur gengu berserksgang út um alla Danmörku og brenndu meðal annars bíla og endalaust mikið af ruslagámum. Í Kaupmannahöfn var kveikt í 28 bílum, 35 ruslagámum, 14 minni bál voru kveikt á götunum auk þess að 5 minniháttar brunar voru í byggingum. Þetta taldist vera lítið miðað við kvöldin á undan. Á undanförnum dögum hafa þeir bæði brennt t.d. skóla og allavega eitt íbúðarhúsnæði. Allt niður í 12 ára krakkar hafa sést taka þátt í þessu. Afsökunin er víst endurtekin birting Múhammeðsmyndar.

15.2.2008

New York: Þriðji hluti - dagur tvö (28/1)



Að beiðni undursamlegs lesanda þessa bloggs verður núna haldið áfram með ferðasöguna ;P

Það var yndislegt að vakna á hostelinu að morgni þess 28. eftir að hafa loksins fengið að sofa! Þvílíkur munur! :D Við höfðum bara tekið herbergið fyrir eina nótt og ennþá var óvíst hvar við myndum eyða þeirri næstu. Daginn áður höfðum við sent email á Matt, manninn sem við áttum að dvelja hjá þrjár síðustu næturnar og spurt hvort við mættum koma til hans degi fyrr. Við byrjuðum því á að finna e-ð drasl internetkaffi - ekkert svar hafði borist frá honum. Við reyndum að hringja í hann, ekkert svar.... reyndum að hringja í fólk sem við höfðum ætlað að dvelja hjá.... Anyways, á endanum komumst við í samband við Matt og hann sagði að við mættum koma til hans kl. 13.00



Við borðuðum morgunmat á Blimpie og hlógum allan tímann að nafninu. Maturinn var ágætur en kannski heldur bragðlítill (hljómaði miklu betur en hann bragðaðist). Röltum aðeins um hverfið, versluðum í eldhúsáhaldabúð og náðum svo í farangurinn okkar. Ákváðum að taka leigubíl heim til Matt's sem á heima í Chelsea.

Þar fengum við yndislegar móttökur. Matt var að vísu rétt ókominn heim og þar sem hann hafði ekki haft tíma til að láta Trevor vita að við værum að koma degi fyrr... því var Trevor frekar hissa að sjá okkur :) Þrátt fyrir það bauð hann okkur inn og var alveg yndislegur. Það var húsið þeirra líka... !!! Þeir eiga svona "townhouse". Þar eru þeir s.s. sjálfir með fallega íbúð á tveimur hæðum og svo leigja þeir út 2-3 aðrar íbúðir sem eru í húsinu (þeir eru reyndar að reyna að selja húsið núna). Yndislegt yndislegt yndislegt. Matt kom heim rétt eftir að við komum og tók alveg jafn vel á móti okkur.... Þeir sýndu okkur hvar við ættum að sofa og svona. Fengum gestaherbergið sem var með ótrúlega þægilegu queen size rúmi og heilu hafi af koddum! Fengum líka okkar eigið baðherbergi... var bara eins og að vera á hóteli :P

Anyway, þessir yndislegu menn (sem eru btw örugglega sætasta par sem ég hef nokkur tímann hitt) gerðu fyrir okkur lista af fatabúðum í hverfinu sem þeir mæltu með og svo héldum við út. Við heimsóttum slatta af þessum búðum... og komumst a því að:
a) Við værum í dýýýru hverfi
b) Að við værum í THE samkynhneigðra hverfinu í New York (það var seinna staðfest af ferðahandbókinni okkar). Allt afgreiðslufólkið (mennirnir) í búðunum voru svo hýrir að það geislaði af þeim :) Rosalega gaman að prófa að búa í svona hverfi í nokkra daga.
Þetta hverfi var líka ansi mikið fallegra og snyrtilegra en þau sem við höfðum verið í þangað til og greinilega svona aðeins efnameira fólk sem býr þar (miðstétt).


Red Hot Chili Peppers - mynd eftir David LaChapelle

Aðeins eitt sem ég vil nefna úr þessu búðarrölti í Chelsea og það er bók. Í einni af fatabúðunum sem við fórum í rákumst við á ljósmyndabók sem þeir höfðu til sýnis, Artists & Prostitutes: 1985 - 2005. Hún var stór (örugglega allavega svona 40x60 cm hver blaðsíða) og svo töff! Myndirnar eru mjög fríkaðar og margar hverjar heldur klámfengnar. Fólkið sem situr fyrir á þeim er t.d. Björk, David Beckham, Angelina Jolie, Andy Warhol, Dolly Parton, Hilary Clinton, Leonardo DiCaprio, Paris Hilton, Madonna, Pamela Anderson, etc. Voru s.s. ljósmyndir eftir David LaChappelle sem er víst einn frægasti ljósmyndari í heimi. Þið hafið örugglega öll í það minnsta séð sum tónlistarvídeóin sem hann hefur gert. Anyhow, við ákváðum að reyna að finna bækur eftir hann seinna til að kaupa og taka með okkur heim. Þó helst í minni útgáfu.... Seinna í ferðinni komust við að því að eintak af þessari bók kostar $3.500 !!!




Anyhow, eftir að hafa gefist upp á að versla í Chelsea og fengið okkur vonda súpu á e-u kaffihúsi þá heldum við suður. Röltum bara beint í suður og stefndum á 8th Street sem okkur hafði verið sagt að væri góð verslunargata. Skoðuðum allt sem fyrir augu bar á leiðinni og versluðum ogguponsu (fundum ekki mikið). 8th street W var frekar mikið spes, margar búðirnar þarna virtust hafa föt og skó sem eingöngu vændiskonur myndu klæðast held ég (mjög undarlegt). Líka bara eeeendalaust mikið af skóbúðum. Eftir að hafa villst inní K-mart í leit að millistykki héldum við yfir á 8th street East sem var það sem hafði verið mælt með við okkur. Held þetta hafi verið eini staðurinn í New York þar sem mér fannst ekki öruggt að vera. Hálf krípí gata með krípí búðum, eflaust allt í lagi veitingastöðum og mikið af tattústofum og álíka. Því lengra niður sem við gengum því meira krípi varð hún. Þegar út á enda var komið hoppuðum við uppí leigubíl og báðum bílstjórann að setja okkur úr í Chinatown þar sem við ætluðum að reyna að finna stað til að borða.

Er þangað var komið... well, þá fór kvöldið í sandinn. Hittum e-a konu sem var voða vinaleg en sagði að það væri mun betra að skoða Chinatown að degi til (allt væri lokað núna) og betra væri fyrir okkur að stefna á Little Italy og borða þar. Við gerðum það en það er bara ekki svo auðvelt að finna Little Italy, það er svo lítið eftir af því hverfi. Chinatown er smátt og smátt að yfirtaka það. Við fundum það þó á endanum... fengum vondan mat og... jáh... æj... restin af kvöldinu var bara ömurleg. Enduðum á að taka bara leigubíl heim og fara að sofa.

Framhald síðar...