30.1.2007
24.1.2007
Bloggleysi!
Já, hæ þið! Ég hef ekki staðið mig í því að blogga undanfarið.. veit það vel. Er alltaf á leiðinni að bæta úr því en e-n veginn er bara búið að vera svo mikið að gera síðan árið hófst :)
Ég hef heldur ekki tíma núna... kl. 22:30 og ég er dauðþreytt eftir langan og frábæran dag. Fór með Guðrúnu Ágústu í hádegisbíó, síðan á rosalega óhugnalega en áhugaverða sýningu um geðlækningar og enduðum á myndlistarsýningu. Síðan ég kom heim fyrir ca. 4 tímum er ég búin að elda, borða, þvo þvott, tala allt of mikið í símann (hey, það var hringt í mig - ekki öfugt), fylla út spurningalista og sitthvað fleira... á ennþá eftir að læra, vaska upp, taka til etc... en þarf samt eiginlega að drífa mig í háttinn því ég þarf að vakna 6:30 á morgunn.. þannig já, blogg verður að bíða áfram!
En það mun verða bloggað um jólafríið, skemmtileg áramót, bíómyndir (Das Leben der Anderen, The Queen, 200 cigarettes, Eragon, James Bond, Rocky Horror Picture Show, Happy Feet), sóðalega sögu geðlækninga, subbulega bari, hommabari, tónleika (The Magic Numbers, Women and Children og fleiri), drykkju dana á þriðjudagskvöldum, Heroes-fíkn mína, djamm menningu Lúxemborgar, Bítlavegg, vöðvasýni og sársaukann sem þeim fylgir, hversu mikið ég elska ipod-inn minn, kulda, neikvæðni, Chaplin og svo framvegis.
Í sárabætur fyrir stuttaralega bloggfærslu set ég hérna tvær myndir sem voru teknar uh... þarsíðasta laugardag (gerir færsluna pínu ponsu áhugaverðari, errr... eða e-ð). Teknar stuttu áður en að við héldum yfir á Rust og dönsuðum frá okkur allt vit :)

8.1.2007
17.12.2006
Myndir frá því í gærkvöldi og í morgun

Fleiri myndir frá Benediktu
Myndir á Politiken.dk (!)
Myndir á Jyllands-Posten.dk
Þetta er ekki allt frá því í gærkvöldi. Danske Bank útibúið þarna var t.d. ekki svona illa farið í gærkvöldi heldur var því rústað (meira) í nótt. Greinilegt að þeir sem ekki voru handteknir hafa ekki verið í skapi til þess að fara heim? Ég er bara fegin að ekkert virðist hafa verið gert við bygginguna sem ég bý í (Netto búðin meira að segja látin í friði) fyrir utan að það var spreyjað á hana.
Það var skrítið að fara í gegnum hverfið í dag; brotnar rúður út um allt og brunarústir á götunum.

16.12.2006
Riot
Það var allt brjálað í Nørrebro fyrr í kvöld. Aðallega þó við götuna mína, Nørrebrogade, og svo á Jagtvej þar sem Ungdomshuset er. Torgið sem þessar götur mætast á (Nørrebros Runddel) er svo nálægt að ég sé það út um svefnherbergisgluggann minn.
Þannig eru mál að vexti (í stuttu máli) að árið 1982 gaf Kaupmannahafnarborg ungmennum borgarinnar hús við Jagtvej 69. Það hús var notað sem félagsmiðstöð og aðstaða fyrir tónleika, myndlistarsýningar og annað. Þeas. ef þið heyrið það frá þeim. Réttara væri þó að segja að það væri staður þar sem ungir uppreisnaseggir koma til að hella sig fulla. Nágrannar kvarta yfir því að geta aldrei sofið um helgar, allt umhverfis húsið (og bílar og fl.) er þakið í graffítí og megn hlandlykt er umhverfis staðinn eftir hverja helgi. S.s. það er ekki allir jafn ánægðir með þetta blessaða hús.
Árið 2000 ákvað Kaupmannahafnarborg af e-m undarlegum ástæðum að selja húsið sem það gaf 18 árum fyrr. Það var selt til kristilegs félags sem heitir Faderhuset. Síðustu 6 árin eru þeir búnir að berjast fyrir að fá húsið sem þeir eiga með réttu en ungmennin neita að yfirgefa það. Þetta er búið að fara fyrir dómstóla og staðfest var að Faderhuset á réttinn. Ungmennin una þó ekki sátt við þessa niðurstöðu og berjast tilbaka með kjafti og klóm. Í kvöld gengu þau of langt. Ekki í fyrsta skipti sem þau ganga of langt en ég held þetta hafi aldrei verið svona slæmt áður.
Járnstangir, múrsteinar, bálkestir, hjálmar, andlitsgrímur, götuvígi, táragas, slagsmál, málningasprengjur, ólöglegar púðurkellingar, brotnar rúður, slasað fólk og fleira einkennir þennan dag í hverfinu mínu. M.a. brutust ungmennin inn í Kvickly búðina til að stela vörubrettum, pappakössum og fleiru til að nota í bálkesti og í götuvígi. Þau brutu rúður í bönkum og réðust á lögreglubíla og menn.
Við vorum niður í miðbæ þegar þetta byrjaði og vissum ekki af þessu fyrr en við komum að brúnni yfir Søerne - sem var lokuð. Sáum ekkert nema blá blikkandi ljós út um allt. Strætó tók krók yfir að næstu brú og keyrði svo götu sem liggur samsíða Nörrebrogade. Ef litið var til hægri þegar við keyrðum framhjá þvergötum sáust bara fleiri blá blikkandi ljóst... hellingur af þeim! Komumst loks út við Nörrebro station og löbbuðum þaðan heim til mín(ég, Benedikta, Gísli og Aggi). Við sáum ekki svo mikið á leiðinni heim enda voru ólætin alls staðar í götunni nema í þessum enda. Þó hafði greinilega e-ð gengið á þarna fyrr um kvöldið/daginn því að það var alls staðar rusl á götunum og svo voru allar rúður brotnar í Nordea bank sem við löbbuðum framhjá.
Reyndar urðum við aðeins vör við að e-ð var í gangi áður en allt varð brjálað. Síðustu nótt kl. 2:30 var rosalegur hvellur e-r staðar mjög nálægt íbúðinni. Það hefur líklega verið ein af þessum ólöglegu púðurkellingum (her-dæmi e-ð). Þegar við vorum svo á leiðinni niður í bæ uppúr hádegi í dag voru löggur (í vestum og vopnaðar) að stoppa e-ð af fólki á götunni og leita á þeim.
Að minnsta kosti 5 slösuðust e-ð að ráði, þar af 3 löggur. Einn drengur/maður sprengdi af sér fingurnar þegar ein af áðurnefndum púðurkellingum (sem hann var að henda í lögguna) sprakk í höndunum á honum. Getið lesið meira á www.pol.dk
Video 1 á Politiken.dk
Video 2 á Politiken.dk
Bloggfærsla Benediktu um þetta.
Video 3 á YouTube

11.12.2006
Jólin 2005
Eins og mörg ykkar vita eyddum við fjölskyldan, ásamt Agga og ömmu & afa, jólunum 2005 í Suður-Frakklandi. Reyndar ekki bara þar, við fórum einnig saman í Tívolí í Köben, skíðaferð upp í frönsku Alpana og jóladag eyddum við í Mónakó. Með öðrum orðum þá létum við okkur verða hrikalega kalt í Danmörku, sátum í sólinni á ströndinni í Nice, pökkuðum inn jólagjöfunum út í garði (engar yfirhafnir og rauðvínsglas í hönd) í Vallauris, krakkarnir duttu á rassinn í Ölpunum og reyndu að skauta niður litla krakka í Mónakó ;) Ég fór fyrr heim en restin en ég held þau hafi líka skroppið yfir til Ítalíu. S.s. jólafrí í 4 löndum?
Benedikta var loksins að setja e-ð af sínum myndum á netið. Ég fékk leyfi til að setja hluta þeirra hér á bloggið en restina getið þið skoðað á síðunni sem þær eru hýstar á, merkisteinn.is
Ég átti ekki digital myndavél þegar þessi ferð var farin en tók e-ð smá af myndum á gömlu myndavélina mína en þær má sjá hér (ásamt myndum sem teknar voru í SingStar partýi sem ég hélt í Víðihvamminum).
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)