19.11.2006

The only thing that's real... eins og Cash myndi segja?

Ég ætlaði að vera löngu búin að blogga... t.d. um síðustu helgi, nýja dönskunámskeiðið og ýmislegt annað. Síðan á þriðjudag hins vegar, hef ég ekki getað setið mikið og því frekar erfitt að blogga. Ástæðan fyrir því er mikill verkur neðarlega í bakinu og í hægri mjöðm (leiðir oft niður í hægri fótlegg og upp eftir bakinu líka...). Komst svo að því á föstudaginn, eftir að hafa heimsótt lækni og sjúkraþjálfa að ég er líklega með klemmda taug. Það hljómar frekar sársaukafullt ekki satt? Það er það.
Ég hef s.s. bara að mestu verið í rúminu síðustu daga, á risa skömmtum af verkjalyfjum. Á að taka 4 pillur af 3 mismunandi verkjalyfjum... allt í einu. Sem mér finnst nú heldur mikið fyrir litlu mig. Ákvað sjálf að sleppa þessu sterkasta nema á næturna (get ekki sofið án þess). Það er e-ð verkjalyf sem virkar eins og morfín og jáh.. ugh, er ekki sérlega hrifin af því að taka það. Verð gjörsamlega útúr dópuð á að taka það plús aukaverkanirnar líkjast slæmri þynnku :/
Svo má ég lítið sitja, ekkert beygja mig, ekki halla mér til vinstri, etc etc etc... Frekar erfitt að lifa eftir þannig reglum þegar maður býr einn. Hvað gerist þegar maður missir e-ð á gólfið? Þegar maður þarf að þvo þvott?

Jæja, yfir og út í bili.
- da unlucky one

13.11.2006

Helgi í Ebeltoft - myndir































Bloggfærsla kemur seinna, bara myndir núna. 8 af myndunum eru mínar, 5 myndir eru frá Söndru og Sösju og 2 er stolið af síðu klúbbsins/diskóteksins sem við fórum á (sem er hræðilegt).

2.11.2006

Girls just wanna have fun

Eins og þið sjáið hér að neðan var MTV Europe Music Awards í Kaupmannahöfn í kvöld. Haldið á tveimur stöðum, verðlaunaathöfnin sjálf í Bella Center og svo tónleikar á Ráðhúspladsen. Til að fá miða í Bella Center var nauðsynlegt að vera VIP en svo voru líka 1500 miðar gefnir út til fólks sem fór í audition (þurfu að góla og hoppa um eins og vitleysingar í e-r mínútur). Til að fá miða á Ráðhústorgið (það var girt af) þurfti maður að vera heppinn (annað hvort vinna miða eða vera á réttum stað á réttum tíma).

Ég var heppin og vann 2 miða. Hins vegar vill svo skemmtilega til að það er fucking ógeðslega kalt í Kaupmannahöfn núna (surprise, það er nóvember og við erum á norðurlöndunum!). Hefði þetta verið fyrir tveimur dögum eða eftir tvo daga hefði að öllum líkindum verið þolanlegt hitastig en svo var ekki í kvöld. Við Sara fórum og vorum í rúma tvo tíma og gáfumst þá upp. Okkur þykir of gaman að hafa tær og fingur til þess að týma að missa þær/þá fyrir eina helvítis tónleika. Það var annars allt í góðu, við náðum að sjá bestu böndin, Jet og The Killers! :D
Bæði stóðu sig með mestu prýði og var þetta mega gaman!

Annars þarf ég eiginlega að fara að drífa mig í háttinn. Er í prófi í fyrramálið! Var í einu í dag líka og svo er það síðasta á miðvikudaginn í næstu viku. Þannig að í lok næstu viku er þessu námskeiði lokið.... en ég byrja á nýju strax á mánudeginum! Þannig það er voða stutt frí :)

Allt gott að frétta annars... fyrir utan að það er kominn vetur.. ég hata vetur. Langar í mánaðar frí til Taílands eða e-ð. Væri fínt að eyða janúar eða febrúar þar. Eða á Maldaví eyjum.. eða Balí? Mmmmm...

Síðustu helgi fór ég á skemmtilegasta djamm sem ég hef nokkur tímann farið á... Fór út til að kveðja vinkonu sem er að flytja af landi brott.... endaði á Emmu (einum flottasta klúbb Kaupmannahafnar) í fylgd 8 frábærra stráka sem ég hafði aldrei hitt fyrr en s.s. þarna fyrr um kvöldið. Þeir þekktu eigendurna og því fengum við frítt inn og frítt áfengi eins og okkur lysti... ekki slæmt ekki slæmt. Ég var hins vegar alla helgina að jafna mig.... það var ekki jafn æðislegt.

Vegna jólaumræðu sem ég flæktist í um daginn fór ég að pæla í hvað mig langaði í í jólagjöf, það sem er komið á listann minn er:
- Kápu (er með mjög miklar kröfur um hvernig kápu ég vil, hún má ekki vera hvít, svört, grá, brún, gul, bleik né rauð, hún þarf að vera hlý, þægileg og helst ca. hné-síð. (Draumakápan væri mosagræn). Hef so far bara fundið eina (bláa) sem kemur til greina og hún er dýr :/
- SingStar Legends (-og kannski líka SingStar Pop)
- Risk 2010AD
- Mp3 spilara (er að pæla í að gefast upp á að halda i ferðageislaspilarann, hann er svo plássfrekur)
- Postsecret bók
- Geisladiska: of marga til að telja upp! (bara til að nefna e-ð þá langar mig í best of með Ian Dury og best of Black Sabbath... og Revolver með The Beatles).
- Söngvarann úr The Killers (óþarfi að pakka inn)

Góða nótt krúttin mín, vona að þið gefið ykkur nokkrar sekúndur í að kommenta... alltaf gaman að heyra frá ykkur =)

MTV Europe Music Awards Concert 2006 - Rådhuspladsen




















Þetta er hluti af mínum myndum....

Myndirnar hjá Politiken eru að sjálfsögðu mun betri: http://politiken.dk/fotografier/billedhjul_foto/article194917.ece

21.10.2006

Freak fest?









Jájá, ég veit að þetta eru slæmar myndir. Er ekki alveg búin að ná tökum á því að taka myndir við slæm birtuskilyrði... með öðrum orðum kann ég voða lítið á myndavélina mína.
Langaði bara að gefa ykkur smá hugmynd um hvernig um er að litast í Tívolí þessa daganna en þar er Halloween þema í gangi (af tilefni haustfrísins). Skrapp þangað í gærkvöldi með Isju þó ég væri eiginlega hálf lasin, vildi ekki missa af því að sjá þetta. Sá miklu fleiri grasker á einu kvöldi en ég hef séð samanlagt um ævina (klikkið á neðstu myndina og tékkið á þakinu).
Þó svo að það hafi verið voða gaman að sjá þetta þá var þetta ekkert ofur ánægjuleg ferð. Aðallega vegna þess að við fengum lítinn frið. Af einhverjum undarlegum ástæðum virðast sumir strákar halda að Tívolí sé "the place" til að "hözzla" stelpur.... hef aldrei heyrt jafn margar hræðilegar pick-up línur á einu kvöldi. Allir saman áttu líka mjög erfitt með að skilja að við höfðum engan áhuga á þeim og eyddum við því helmingnum af tímanum í að forðast þessa tvo verstu. Pirrandi... og sorglegt að horfa uppá.

15.10.2006

Give up yourself unto the moment

Um það bil þrjár vikur liðnar frá síðasta bloggi. Þær hafa verið ótrúlega fljótar að líða!



Ég er í skólanum alla virka daga frá 8:30 til 11:15 og þar sem skólinn er niðri í miðbæ þarf ég að vera farin héðan út kl. 8:00. Það er mjög skrítið og var alls ekki auðvelt fyrstu vikuna þar sem það er ansi langt síðan ég hef þurft að vakna snemma á morgnanna (svona marga daga í röð þ.e.a.s.) og ég er sko ekki morgunmanneskja :P En jáh, blablabla... skólinn er bara rosa fínn! Góðir kennarar og frábær hópur :) Fólk kemur víða að; Afganistan, Taílandi, Póllandi, Mexíkó, Frakklandi, Líbanon, Grikklandi, Litháen, Ítalíu, Ástralíu og Ungverjalandi. Það var líka einn frá Brazilíu en hann þurfti að skipta um bekk eftir fyrstu vikuna og svo var stelpa frá Úkraníu sem þurfti að hætta. Finnst þessi fjölbreytileiki æðislegur því að í öllum umræðum koma fram svo mismunandi sjónarmið af sökum þess hversu ólíkan bakgrunn allir eiga.
Myndirnar sem ég setti á síðuna í síðustu viku eru frá því þegar við hittumst á föstudeginum (sem var frídagur) og borðuðum saman hádegistmat nokkrar af námskeiðinu og svo frá partýinu sem ég hélt um kvöldið.



Annars já, hefur lífið bara mest verið skóli skóli og þetta venulega. Fór reyndar í matarboð heima hjá Guðný og foreldrum hennar sem var alveg yndislegt. Síðasta þriðjudag fór ég svo í mat hjá Söru og síðan héldum við á tónleika með Ryan Adams á Vega. Þessari helgi er ég búin að eyða algjörlega í félagsskap Guðnýjar og Ómars, ætla að gera þeim þann óleik að setja inn nokkrar myndir frá því í gær... muhahaha...



En jáh.. æj, ég er ekki að nenna að vera að blogga... eftir 3 klst ætla ég að vera mætt heima hjá Samiru þar sem verður spjallað, borðað, hlegið og svo var e-ð verið að tala um magadans?? Áður en ég held þangað þarf ég eiginlega að reyna að laga þvottavélina mína... og þvo þvott... og taka smá til... íbúðin mín er full af flöskum... :S Þannig jáh, laterz....


P.S. Hvernig finnst ykkur nýju skórnir mínir?