31.8.2005
Brjálað að gera!
Ég er búin að vera svo ónýt síðustu daga að ég ákvað að mæta ekki í dæmatímann og á fyrirlesturinn sem voru í dag fyrir hádegi. Þess í stað svaf ég örlítið lengur, reyndi ponsu að læra og tók því með ró. Mætti svo í skólann kl. 12:30 í verklegan tíma. Fékk þar að puða til rúmlega fimm við að blanda lausnir og títra og þannig skemmtilegheit. Fíla tilraunasloppinn í tætlur en get ekki sagt það sama um hlífðargleraugun sem maður þarf ALLTAF að hafa á sér. Ég hata gleraugu! Get ekki einu sinni haft sólgleraugu í meira en hálftíma venjulega og þarna er ég neydd til að hafa risa hlífðargleraugu í rúma 4 klst! :S Augun mín voru ekki sátt... þeim finnst þetta óþægilegt.
Allavega... fór dauðþreytt og banhungruð eftir tímann með strætó niðrí bæ þar sem ég þurfti að kaupa strætómiða til að eiga næstu daga. Gúndi hringdi líka og bað mig að fara í búð.... Ég í búð þegar ég er svöng = ekki sniðugt! Kaupi þá alltaf allt sem ég sé sem mér þykir gott :D Í þetta skiptið keypti ég (fyrir utan það sem ég átti að kaupa) ítalska skinku, heslihnetur, valhnetur, súkkulaðibitakökur... man ekki hvort það var fleira :D Hefði örugglega keypt ennþá meira ef ég hefði ekki keypt mér súkkulaðistykki 5 mínútum áður um leið og ég keypti strætómiðana :P mmmm orange knas Guldbarre! (Jói þú veist hvað ég er að tala um) ;)
Jæja, djö... ég á að vera að læra núna.. ekki blogga. Ætlaði ekkert að blogga í kvöld... en svo hringdi mamma rétt áðan og sagði mér að amma skoðaði alltaf bloggið mitt á hverjum degi :) Mér þótti svo vænt um að heyra það og vildi ekki valda ömmu vonbrigðum þannig ég ákvað að henda inn einni færslu :P En jáh.. nú er ég farin að læra... :D Eða svona.. næstum...
Myndirnar sem ég lofaði koma inn á föstudag eða laugardag (ef e-r hefur áhuga á að sjá þær?)
Goh.. ég nenni ekki að fara að læra efnafræði :S *þreytt*
Knús til ykkar allra (sérstaklega stórt knús til ömmu!) :)
29.8.2005
Vesen með mynda-albúm
Ef e-r hér veit um betri svona mynda-albúms-síðu, endilega láta mig vita! :)
http://photobucket.com/albums/b39/smist/
Fyrsti skóladagurinn
En jáh..
Ég byrjaði daginn á því að vakna geeeeðveikt snemma.. eða s.s. kl. 7. Sem er mjög snemmt að mínu mati þar sem ég hef nánast aldrei þurft að vakna svona snemma í allt sumar. Bara sofið út í 3 mánuði...
En jáh, morguninn var ekki sérlega skemmtilegur. Ég vaknaði alveg handónýt... af nokkrum ástæðum. a) Svaf ekki alveg nógu lengi. b) Dreymdi illa. c) Það var of heitt hérna inni. d) Ég var alltaf að vakna því að ég var að hósta svo mikið.
Ég átti víst eftir að segja ykkur að ég er lasin... eh... kvefið vonda sem ég nefndi í fyrri bloggfærslunni... það fór víst aldrei alveg, bara næstum. Þegar ég kom svo heim úr Rustur á föstudaginn fór það að versna.. og jáh, er orðið frekar slæmt aftur, ekki eins slæmt og það var fyrir sýklalyfin.. en ég er ansi hrædd um að ég þurfi að fara á læknavaktina aftur og fá sýklalyf á ný... jeij... Þessu hefur svo fylgt um helgina hausverkur, sár háls, aum lungu, slappleiki og skemmtilegheit... enn meira jeij! Er svo sem ekkert hissa á að verða veik eftir þessa ferð enda var mikil keyrsla allan daginn, mjög lítill svefn og e-ð af áfengi. Svo varð mér líka oft kalt, sérstaklega á kvöldin því að það var svo mismundandi hlýtt eftir herbergjum og maður var alltaf að flakka á milli. Oft varð drullukalt því þeir sem reyktu skildu allar dyr eftir opnar upp á gátt þegar þeir fóru út að reykja og blahhh...
Allavega, mér tókst samt að drattast á fætur og í sturtu. Gerði tilraun til að borða morgunmat en tókst það ekki þar sem mér var óglatt af stressi (jáh, ég er algjör stresshaus...). Síðan, af því að ég var svo sniðug að gleyma því í gær... þurfti ég að labba út í DTU (skólinn hans Gúnda, 10-15 mín labb?) til að fara í hraðbanka því ég þurfti að hafa pening til þess að geta keypt bækur.
Danir eru nefnilega svo sérlundaðir að flestar búðir, netverslanir og bara allt... taka bara svokallað Dankort (og stundum önnur innlend kreditkort). Ég get ekki fengið svoleiðis fyrr en ég hef skráð mig inn í landið og verið skráð hér í e-n ákveðinn langan tíma þannig ég þarf alltaf að hafa reiðufé á mér. Hér eru svo ekki hraðbankar út um allt eins og á Íslandi þannig að það er stundum vesen.
Allavega, kem svo að þessum blessaða hraðbanka, sem ég hef notað svona 10x áður örugglega... og þá neitar hann bara að láta mig hafa pening! *ýkt móðguð* Veit ekki alveg hvað málið var, e-r tengivilla líklegast þar sem að nóg innistæða var á reikningnum og svoleiðis. Ég var þó svo heppin að hafa visakortið mitt með líka þannig ég gat tekið út á því.... (það er samt drullu dýrt að nota visakort til að taka út úr hraðbönkum, bölvað rán).
Svo tók við labb út á strætóstöð og ca. hálftíma strætóferð niðrí Universitetsparken þar sem skólinn minn er. Fór í bókabúðina ásamt e-m stelpum sem eru með mér á braut og keypti bækurnar sem ég þarf fyrir þennan blessaða efnafræðikúrs. Þær eru 2, stórar og þungar hlussubækur sem er ekki gaman að bera á bakinu :S En en.. svo keypti ég fleira!!! Dagbók, stílabók, plastmöppu... og og og og tilraunaslopp! :D Þarf að eiga svoleiðis fyrir verklegu tímana! Er í honum núna og líður eins og ýkt miklu nördi! :D *hoppskopp*
Svo fór ég í tíma, fyrst verkefnatíma og svo á fyrirlestur. Ekki mikið frásagnavert þar. Eftir tímana var ég svo þreytt að ég ákvað að fara bara beint heim. Var við það að lognast út af á leiðinni samt því að ég var svo þreytt, taskan svo drulluþung og svo var geðveikt gott veður og ég auðvitað í þykkustu peysunni minni svo mér yrði nú örugglega ekki kalt í veikindunum. Ojoj.
Eitt sem ég gleymdi að minnast á í síðustu færslu, ég var stungin af flugu í rustúrnum! :S Ég hef barasta aldrei verið stungin af neinum flugum nema moskítóflugum áður þannig að mér brá frekar mikið! Þetta var alveg drullu vont og ég var með þvílíkan verk í handleggnum allan daginn. Veit ekki hvaða fluga þetta var en ég mun finna út úr því einn daginn, hafa upp á henni og bíta hana á móti! muhahahaha!!!
En jáh, ég bjó til eitt stk sæta myndasíðu fyrir ykkur! :D Þar er ég búin að setja inn örfáar myndir úr Rustur (myndir sem D.N.R. tók, ég var ekki með myndavél sjálf). (Á ég kannski að setja fleiri?) Fljótlega set ég svo þarna inn nokkrar myndir frá ferðinni í dýragarðinn og í Tívolí :) Og kannski mynd af nýja tilraunasloppnum mínum!!! :D *tísta*
http://photos.heremy.com/smist/
Ef e-m leiðist svo alveg rosalega og langar að skoða stundaskránna mína þá er hún hér í pdf skjali http://kl5.ki.ku.dk/~smk/mbm/skema.pdf
Ég er í Hold 2 sem þýðir að á mánudögum og þriðjudögum er ég einungis í skólanum frá 10:15-12. Miðvikudögum og fimmtudögum frá 10:15-17. Föstudögum kl. 9:15-12. Frekar nice stundaskrá me thinks! :D En svo þarf ég auðvitað að læra helling heima.
Jæja, ég er eiginlega of syfjuð til að halda mér vakandi lengur.. er að pæla í að leggja mig smá :P
Annars ætlaði ég bara að segja takk fyrir öll kommentin, það er ekkert gaman að skrifa svona blogg nema að maður fái e-r viðbrögð frá fólki þannig endilega verið áfram dugleg við það :)
Vona að þið hafið það öll sem best!
27.8.2005
Flutt til Danmerkur
Ég ákvað fyrir löngu löngu síðan að ég myndi aldrei byrja að blogga. Á þeim tíma fannst mér blogg leiðinleg og ég nennti næstum aldrei að lesa blogg annarra auk þess sem mér fannst frekar heimskulegt að vera að deila staðreyndum um sitt einkalíf á netið. Síðustu mánuði hefur blogglestur minn hins vegar aukist til muna og hefur álit mitt á bloggsíðum breyst. Ég hefði samt örugglega aldrei farið út í það að blogga sjálf ef það hefði ekki verið fyrir þá staðreynd að ég er nýflutt til Danmerkur og vil leyfa fjölskyldu og vinum að fylgjast svona aðeins með því sem ég er að gera hér auk þess sem þetta minnkar aðeins líkurnar á því að fólk einfaldlega gleymi manni ;)
Ég flaug hingað til Danmerkur fyrir næstum mánuði síðan, nánar tiltekið 3.ágúst (ætlaði að fljúga út 28.júlí en þurfti að fresta brottför um viku). Ég er ekki ennþá komin með húsnæði (og er farin að efast um að ég fái e-ð húsnæði á næstunni, það er bölvað vesen með það) og bý því bara hjá Gúnda í hans litla 12 fermetra kollegíuherbergi í Lyngby (sem er bær rétt fyrir utan Köben, tekur ca. 30 mín fyrir mig að komast í skólann héðan). Þar sem bara ein manneskja má vera skráð á svona eins manns kollegíuherbergi þá hef ég ekki ennþá getað skráð mig inní landið (þarf að hafa heimilisfang til þess). Ég er því ekki ennþá komin með danska kennitölu og er það ansi böggandi. Á meðan ég hef ekki kennitölu geti ég nefnilega ekki stofnað bankareikning og gert hitt og þetta (get ekki einu sinni leigt mér vídeóspólu!).
En jáh.. það sem ég hef verið að bralla hér.... Fyrstu 2 vikurnar gerði ég lítið sem ekkert. Ég hafði planað að eyða ágústmánuði í rölt í miðbænum, Tívolíhangs, strandferðir og fl. en það varð lítið úr því. Ég var nefnilega svo heppin að næla mér í slæmt kvef strax daginn eftir að ég kom hingað. Það hélt áfram að vera slæmt þannig að ég endaði á að þurfa að fara á læknavaktina og fá sýklalyf (kostaði fullt af pening þar sem að ég er ekki skráð inn í landið og því ekki sjúkratryggð hér).
Ég fór reyndar í Bakken með Gúnda, systur minni og vinkonu hennar en þar sem kvefið mitt versnaði bara eftir þá ferð þá tók ég því bara rólega lengi á eftir. Það gerði svosem ekki mikið til því að frá því að ég kom hingað og alveg þar til að mér fór að batna af kvefinu var frekar ömurlegt veður hér, skýjað nánast alla daga! Þegar sólin kom svo loksins notuðum við Gúndi tækifærið og fórum í dýragarðinn! :D Það var mjög gaman (skil ekki fólk eins og systur mína sem finnst dýragarðar leiðinlegir). Gúndi flippaði út í garðinum og tók næstum 200 myndir á nýju myndavélina sína. Daginn eftir fórum við svo í Tívolí með Benediktu og vinkonum hennar (sem eyddu sumarfríinu sínu hér).
Ég komst að því að hausinn minn þolir ekki svo vel Tívolítæki því bæði daginn eftir Tívolí og daginn eftir ferðina í Bakken fékk ég alveg massa hausverk. Ætla samt aftur í Tívoli, annað væri líka sóun því ég keypti mér árskort :D
En jáh, eftir mikið letilíf síðustu vikur þá byrjar skólinn núna á mánudagsmorgunn. Það á eftir að vera áhugavert, öll kennsla á dönsku! Sem betur fer eru bækurnar á ensku þannig ég ætti að gera bjargað mér. Ég kvíði skólanum mun minna núna en ég gerði fyrir viku síðan en það er afþví að síðustu fimm dögum hef ég eytt með fólkinu sem ég verð að læra með.
Á mánudaginn var nefnilega svona kynningardagur fyrir brautina mína. Mætti upp í skóla kl. 9 um morguninn þar sem allur hópurinn (næstum 60 manns) borðaði morgunmat ásamt ca. 10 eldri nemendum. Við erum bara annar árgangurinn í þessu námi, þ.e.a.s. þessi braut byrjaði bara í fyrra. (Fyrir þá sem ekki vita þá er ég að fara að læra Molecular Biomedicine sem ég held að megi þýða sem sameindalíffræði).
Eftir morgunmatinn var farið með okkur í skoðunarferð um bygginguna sem við vorum í (þar er brautin okkar með svona.. félagsaðstöðu (2-3 herbergi þar sem hægt er að borða, læra og svoleiðis)). Þessi bygging heitir Panum og þarna er læknanámið staðsett. Ég verð þarna í kúrsum eftir áramót, í Human Biology tímum þar sem ég þarf meðal annars að vera að skoða lík... mmmm... hljómar spennandi ekki satt? Komst bara að því núna um daginn að ég myndi bæði þurfa að vera að kryfja fullt að litlum sætum dýrum (Komparativ Anatomi kúrs) og svo lík af fólki.... smá sjokk :D
Síðan var labbað með okkur að byggingunni þar sem við verðum að læra fyrstu önnina okkar (smá labb). .. Skjóta því inní að námið mitt er í raun nám í tveimur deildum innan háskólans, bæði í s.s. Raungreinadeild og svo Heilbrigðisdeild (læknadeild). Þess vegna erum við að læra alltaf í mismunandi byggingum. En jáh, í þessari byggingu... Efnafræðibyggingunni fórum við í smá ratleik... og svo út í e-n nafnaleik :P
Síðan var haldið aftur af stað... í þetta sinn lengra labb, að enn annarri háskólabyggingunni... þar borðuðum við hádegismat og fengum fyrirlestra/kynningu frá þeim kennurum sem munu kenna okkur fyrsta árið og síðan var byggingin skoðuð. Því næst rölti allur hópurinn af stað aftur... í þetta sinn út í Kongens Have, stóran almenningsgarð. Þar hlammaði fólk sér í grasið, sóttir voru nokkrir kassar af bjór... og svo hangsaði fólk bara í sólinni og drukkinn bjór í 4-5 tíma. Reyndar voru líka sumir að spila leik... sem gengur út að kasta tréstaukum.... og fella trékubba.... mjög skemmtilegur... en ég veit ekkert hvað hann heitir :D Eftir hangs og bjórþamb hélt fólk niðrí miðbæ þar sem við borðum kvöldmat á veitingastað með mat frá Miðjarðarhafinu (Krít og þar í kring), get ekki sagt að mér hafi þótt maturinn góður :S Eftir það hélt ég og nokkrir aðrir heim á leið en sumir héldu áfram samverunni. Ég var nefnilega bæði dauðþreytt og átti eftir að pakka niður fyrir RUSTUR!
Áður en ég segi frá Rustúrnum ætla ég að skjóta smá hérna inní....
Námið sem ég er að fara í (og allt annað nám í Raungreinadeildinni í Kaupmannahafnarháskóla) er kennt í nýju kerfi núna, blokkakerfi. Það þýðir að það eru s.s. ekki bara tvær annir (eða blokkir) heldur 4. Ég er s.s. í einum kúrs (Almennri efnafræði) frá byrjun september sem lýkur svo með prófi í byrjun nóvember. Þá kemur viku frí og svo er ég í tveimur kúrsum frá byrjun nóvember til loka janúar og svo framvegis. Síðasta blokkin, blokk 4, er frá lok apríl og til loka júní. Mér líst mjög vel á þetta kerfi. Með þessu móti getur maður nefnilega alveg einbeitt sér bara að 1-2 fögum í einu og lokið því.
Fólk þarf að hafa frekar háa meðaleinkunn til að komast inn á brautina sem ég er á (9,3 á danska skalanum sem er ca. 8,1 á þeim íslenska) sem er það sama og þarf til að komast inn í t.d. tannlæknanámið. Flestir sem eru með mér á braut eru því líklega frekar góðir námsmenn.
Jæja, rustur.... Rustur er ferð sem er farin í byrjun fyrsta árs til þess að fólk sem er saman á braut kynnist. Hjá okkur var farið frá þriðjudegi til föstudags, s.s. gist 3 nætur. Kl. 9 um morguninn var fólk mætt upp í skóla. Hópurinn samanstóð af langflestum af þeim tæplega 60 manns sem eru í mínum árgangi og ca. 8 nemendum af eldra árinu sem sáu um að skipuleggja ferðina. Þar að auki voru 5-6 manns af eldri árgangnum sem fóru á undan á staðinn til að hafa tilbúinn mat fyrir okkur við komuna en þessir 5-6 nemendur sáu um matinn fyrir okkur alla ferðina.
Ferðinni var heitið á norð-vestur hornið á Fjóni en þangað er ca. 3 tíma keyrsla. Hópurinn var fluttur þangað í tveggja hæða rútu. Það sem mér fannst áhugavert að sjá var að enginn kom með neitt í rútuna... þeas. ekkert nammi, snakk eða gos... ef þetta hefði verið íslensk skólaferð þá hefðu pottþétt allir verið að maula svoleiðis á leiðinni en ekkert svoleiðis var að sjá þarna (né í allri ferðinni). Það eina sem fólk var með var kannski vatnsflaska og svo voru... að sjálfsögðu... þó nokkrir kassar af bjór um borð.... .
Þegar á staðinn var komið, þurfum við að fara út úr rútunni... á mölina sem var þarna fyrir framan.. og bera farangurinn okkar inn... í einum skó :) Tekinn var annar skórinn af öllum, þeim síðan komið fyrir á rúmunum inni... og þar sem maður fann skóinn sinn.. þar átti maður að sofa. Ég lenti í herbergi með 3 stelpum og tveimur strákum. Staðsetningin þar sem við vorum var frábær! Ef gengið var út um aðaldyrnar.... sá maður ströndina og sjóinn... í svona...30 metra fjarlægð... betra gat það ekki verið. Veðrið var einnig mjög gott... allavega fyrstu 2 daganna... þannig fólk gat.. þegar við höfðum frítíma.. slappað af á ströndinni og spriklað í sjónum :)
Ég veit ekki alveg hvernig ég á að fara að því að lýsa þessari ferð... mikið um spjall, mikið um drykkju, mikið um fíflaskap, mikið um leiki, mikið um hlátur, mikið af vondri danstónlist, mikið djamm,.... þetta var bara rosalega gaman.... til að hafa þetta einfalt... og danir eru yndislegt fólk :) Án þess að vilja móðga einn né neinn þá verð á að segja, að ef þessi ferð hefði verið farin af eingöngu Íslendingum, þá hefði hún aldrei getað verið nærri því jafn skemmtileg. Danir eru bara svo miklu vinalegri en Íslendingar í heildina. Þeir kunna betur að skemmta sér og taka ekki sjálfa sig of alvarlega þannig þeir eru afslappaðri, víðsýnni, yndislegri, opnari, fíflast meira...
Ferðin var mjög vel skipulögð, alltaf e-ð að gerast, mjög góður matur, allt pottþétt. Mikið var um alls konar hópleiki og keppnir þannig fólk neyddist til að vinna saman og kynnast enn betur. Ekki var mikið um svefn hjá flestum... það var alltaf partý og drykkja fram undir morgunn... og svo var morgunmatur milli kl. 9 og 10. Fljótlega eftir morgunnmat var svo alltaf e-ð um að vera þannig að fólk komst ekkert upp með að sofa út.
Það var svo þreyttur hópur sem kom tilbaka til Kaupmannahafnar í gær kl. 16:30, þreyttur en ánægður. Í stað þess að kvíða önninni sem er að byrja (eins og ég gerði), hlakka ég nú gífurlega til :)
Mér líst alveg rosalega vel á þennan hóp af fólki sem ég mun eyða allavega næstu 3 árunum með. Held þetta séu svona ca. 40 stelpur og 20 strákar, sem er bara alveg ágætt. Var smá hrædd um að það yrðu nánast bara stelpur, það virðist nefnilega vera soldið algengt í líffræðifögunum. En jáh, fínasta fólk :)
Þetta er nú orðinn allt allt of löng bloggfærsla... ég lofa að þær munu ekki verða svona langar í framtíðinni! :D Efast eiginlega um að e-r hafi nennt að lesa þetta allt!!! :D En jæja... allavega.. verið dugleg að kommenta.. ég vil sjá komment! Ég sakna ykkar allra sem eruð heima á Íslandi og verð hreinlega móðguð ef þið gefið ykkur ekki svona eins og mínútu í að skrifa komment... mkay? :)
Bæj í bili,
Salóme sem er greinilega með bloggræpu á háu stigi
