20.9.2008

Það er leikur að læra - Frægar tilvitnanir

Núna er fyrsta skólavikan mín búin og ég ætla að deila með ykkur einu verkefni sem við gerðum í fyrsta Text and Context tímanum.

Ég set hérna inn fyrsta hluta af tveimur og ef ég fæ einhver viðbrögð/ágiskanir við þessu þá kannski set ég inn seinni hlutann líka.

Reglurnar eru þær að þið fáið s.s. tilvitnun og eigið að finna út úr því hver mælti þessi orð upphaflega (eða hugsanlega úr hvaða fræga verki þær eru). Í allt eru 5 tilvitnanir í þessum hluta og koma þær allar úr sitthvorri áttinni.
Ef til vill eruð þið rosa klár og þekkið einhverja tilvitnunina, þá endilega gefið svarið. Það er hins vegar bannað að googla, ekkert point í þessu þá.
Ef þið þekkið ekki tilvitnunina þá verðið þið að reyna að finna út úr því. Skoðið hana í samhengi og pælið í hvers konar manneskja væri líkleg til að segja þetta. Komið með ágiskanir út í loftið! Það má líka spurja t.d. "Ég held þetta sé frægur leikari sem mælti þetta, er það rétt?" eða kannski hvort það sé Bandaríkjamaður, hvort viðkomandi sé karlkyns, etc.

Alright, here goes:

1. "I'd rather have a cup of tea than go to bed with anyone - any day". (svar komið frá Grétu)

2. "When a man sits with a pretty girl for an hour, it seems like a minute. But let him sit on a hot stove for a minute - and it's longer than any hour. That's relativity". (svar komið frá Líney Höllu)

3. "I should like to be a horse". (vísbending: kona)

4. "Adultery in your head is committed not only when you look with excessive sexual desire at a woman who is not your wife, but also if you look in the same manner at your wife".

5. "Let there be no violence in religion". (vísbending: úr "verki")

Giskið nú!
:D

5 ummæli:

Benedikta sagði...

Öhh... ég er alveg gjörsamlega týnd í þessu :/ Er ekki góð með svona tilvitnanir... þó að ég sé nokkuð viss að tilvitnun 1. sé kvenkyns... og bresk :)

Nafnlaus sagði...

Hmm.. Kannski eftiherma af þessari sem þú settir númer 1 en það var allavega

''I''d rather have a cup of tea than go to bed with someone - any day''
Boy George

annars no clue:)

Kveðja Gréta

Salóme Mist sagði...

Dudurru! :D

Ég veit ekki hvor útgáfan er rétt en allavega hefur Gréta rétt fyrir sér, nr. 1 er Boy George

Með læt ég fylgja þá vísbendingu að nr. 3 var sagt af konu.

Liney Halla sagði...

Albert Einstein ku eiga heiðurinn af númer 2. Einstaklega góður í að útskýra helflókin fyrirbæri á einfaldan hversdagslegan hátt ;)

Salóme Mist sagði...

Það er að sjálfsögðu rétt, takk fyrir það Líney :)