17.9.2008

3


1.
Síðastliðinn fimmtudag ákváðum við mamma að hætta okkur á Sneak Preview sýningu þrátt fyrir hrylling síðustu sýningar þar á undan. Við gerðum ráð fyrir að fyrst síðasta mynd var svona hræðilega léleg þá hlyti að koma einhver mun skárri núna. Sem betur fer höfðum við rétt fyrir okkur. Nota bene þá tókum við samt sem áður enga áhættu og völdum sæti við ganginn næst útganginum :)
Myndin leit vel út frá fyrstu mínútu og reyndist vera "The Life Before Her Eyes" (2007). Í aðalhlutverkum eru Uma Thurman (Kill Bill) og Evan Rachel Wood (Thirteen) en þær leika í raun sama hlutverkið. Eva Amurri (Saved!) leikur einning mikilvægt hlutverk.
Myndin fjallar um vinkonurnar Diönu og Maureen og það þegar skotárás er gerð í skólanum þeirra. Einnig eru atburðir í lífi þeirra skömmu fyrir skotárásina skoðaðir, sem og afleiðingarnar og framtíðin. Sterk frammistaða leikkvennana er óumdeilanleg og myndatakan er æðisleg! Myndatakan myndatakan myndatakan... hún er það besta við þessa mynd. Öðruvísi og að mínu mati mjög töff. Mikið um svona close up af hlutum í umhverfi sögupersónanna sem kannski skipta ekki máli... en já, það kemur vel út :) Þessi kvikmynd neyðir mann til að hugsa smá til að skilja hana, sem mér finnst tvímælalaust kostur!

Var þessi mynd eitthvað sýnd á Íslandi? Veit það einhver? (Atli, þú ættir nú að vita það!).

2.
Á föstudagskvöldinu var svo vídeókvöld fjölskyldunnar (þeas. þeim hluta hennar sem staðsettur er í Lúxemborg). Við erum með alveg hrúgu af DVDmyndum hérna sem við eigum eftir að sjá og að þessu sinni völdum við úr bunkanum dönsku myndina Kunsten at græde i kor (2006).
Þessi mynd hefur hlotið þvílíkan fjölda af verðlaunum á kvikmyndahátíðum út um allar trissur og fær æðislega dóma nánast alls staðar að. Ég mæli hins vegar með að þið sleppið því að sjá hana.

Það er ekki það að myndin sé ekki góð, hún er bara svo andskoti niðurdrepandi og óþægileg að horfa á. Ég persónulega þoldi ekki helvítis trailerinn sem var sýndur í kvikmyndahúsum Danmerkur á sínum tíma til að kynna þessa mynd. Ég var sko með það á hreinu að þessa vildi ég ekki sjá, hún virkaði mega pirrandi og leiðinleg. Ég hins vegar ákvað að þetta hlytu að vera fordómar í mér þegar ég sá alla þessa góðu dóma. Þvílík mistök, þessi mynd er bleeehrg. Óþægileg, subbuleg, pirrandi, niðurdrepandi, sorgleg, etc. (Reyndar samt góð.) Bara, sleppið henni.

3.
Á laugardagskvöldinu fórum við svo á galakvöld í Fílharmóníuni þar sem Hertoginn og borgarstjórinn voru að sjálfsögðu mættir ;) Þar var að spila enginn annar en Jon Lord!
Fyrir þá sem ekki vita þá var hann annar af stofnendum Deep Purple og meðlimur þeirrar hljómsveitar á öllum starfsárum hennar, allt framtil 2002. Hann var einnig meðlimur í Whitesnake og fleiri hljómsveitum. Auk þess er hann tónskáld og samdi meðal annars verkið Concerto for group and orchestra. Það verk var frumflutt af Deep Purple og The Royal Philharmonic Orchestra í The Royal Albert Hall árið 1969. Reyndar fluttu þeir það svo aftur á sama stað 30 árum seinna en þá með London Philharmonic Orchestra.

En já, það var s.s. þetta sama verk sem við fengum að hlusta á, ásamt fleiri lögum eftir Jon Lord. Með honum á sviði var flottur flokkur listamanna auk sinfóníu Lúxemborgar. Tónleikarnir voru nánast 3 tímar á lengd og á köflum mjög góðir. Sumir partar voru ekki alveg jafn sterkir. Í hléinu drukkum við freyðivín í boði borgarinnar af tilefni 75 ára afmælis tourist info skrifstofu Lúxemborgar sem var verið að halda uppá. Þess má geta að Jon Lord labbaði framhjá okkur og pabbi var alveg að flippa af spenningi enda gamla átrúnaðagoðið hans þar á ferð. (Ég fékk mikið að hlusta á Deep Purple í æsku).
Síðasta lag kvöldsins var Child in time og ef við hefðum ekki setið á efstu svölunum þá hefðum við stokkið upp úr sætunum okkar af gleði yfir að fá að heyra það flutt live. Það má einning minnast á að Jon Lord er 67 ára gamall en tók sig alveg ótrúlega vel út á sviði enda hávaxinn og rosalega virðulegur náungi. Vingjarnleiki hans líka bara einhvernveginn lak út í salinn, þó maður skildi ekki helminginn af því sem hann sagði milli laga þá var ekki hægt annað en að kunna vel við hann.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

#1 og #3 hljóma mjög vel. Alveg awesome vel.

Leitt að heyra um #2.

En hvernig er líðan? Hvað er að ske í Lúxemborg? Maður hefur ekki heyrt í þér lengi girl.

Atli Sig sagði...

Ég hef ALDREI heyrt um mynd nr. 1. Hún hefur fengið litla dreifingu yfir höfuð sýnist mér, sums staðar komið beint á vídjó. Ætli hún komi ekki beint á vídjó á Íslandi fljótlega.

Salóme Mist sagði...

Hmm, skondið.