
Caramel, eða Sukkar banat eins og hún heitir á frummálinu, er líbönsk mynd sem fjallar um 5 konur. Í stuttu máli er hún bara um þeirra daglega líf. Yndisleg mynd en af sökum þess að það vantar allan hasar í hana þá höfðar hún eflaust meira til kvenna. Ég hafði rosalega gaman af að sjá hana, ekki síst vegna þess að ég sá hana með líbanskri vinkonu minni. Það er athyglisvert að sjá hvernig þetta samfélag er rosalega ólíkt okkar. Tæp 60% landsins eru múslimar og tæp 40 eru kristnir. Því verður þetta land eins og e-r rosalega flippuð blanda milli austurs og vesturs. Annars fannst mér líka rosa áhugavert bara að horfa á konurnar. Þeir eru kvenlegar á rosalega ýktan máta. Nota miiikinn farða, ganga með mikið af glingri (stórum armböndum sem hringlar í og þvílíku) og klæða sig mjög áberandi. Samkvæmt því sem vinkona mín segir er þetta bara svona í Líbanon. Fólk gerir rosalega mikið úr útliti sínu og er alltaf uppstrílað!
En já, held það sé ekki hægt að segja mikið frá þessari mynd. Hún er bara þannig. En ég get alveg mælt með henni, allavega fannst mér hún vel þess virði að sjá. Það má nefna að hún var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes í fyrra og hefur síðan verið dreift í yfir 40 löndum. Þar með er hún orðin "þekktasta" líbanska mynd allra tíma.

1 ummæli:
múha! ég bætti úr þessu með linkinn ;)
Skrifa ummæli