Á miðvikudaginn kíkti ég á forsýningu á myndinni Irina Palm. Þessi mynd er gerð árið 2007 og er víst samstarfsverkefni milli Belgíu, Lúxemborgar, Bretlands, Þýskalands og Frakklands. Hún var fyrst sýnd í febrúar í fyrra og hefur síðan þá verið á fjölmörgum kvikmyndahátíðum um allan heim.
Myndin gerist í London og nágrenni og fjallar um hina miðaldra Maggie. Hún er ekkja og á einn son. Eina barnabarn hennar liggur fyrir dauðanum og það eina sem gæti bjargað honum væri ef hann kæmist í læknismeðferð í Ástralíu. Því miður er það svo að aðstandendur þyrftu sjálfur að standa fyrir kostnaðinum við að komast þangað og því standa þau ekki undir. Barnið hefur verið veikt lengi og allir þeirra fjármunir og allt sem þau hafa getað fengið lánað hefur farið í að borga lækniskostnað. Maggie er á barmi örvæntingar og heldur til London til að reyna að fá vinnu - í fyrsta sinn á ævinni. En hver vill ráða miðaldra konu með enga menntun eða reynslu? Eftir dag fullan af vonbrigðum rambar Maggie inn í Soho og þá hefst áhugaverð atburðarás.

Þessi skemmtilega mynd skartar Marianne Faithfull í aðalhlutverki og skilar hún sínu verki vel. Myndin er fyndin án þess að það virðist sem það sé beinlínis ætlunin. Þó þessi mynd komist ekki alveg á lista með mínum uppáhalds þá hafði ég mjög gaman af henni og gæti alveg horft á hana einu sinni enn. Minnir svolítið á Saving Grace þó hún nái ekki að vera alveg jafn frábær og sá gullmoli. Svona, þegar ég skrifa það... þá minnir hún rosalega mikið á Saving Grace... hmmm. En já, kíkið á þessa. Er ekki oft sem ég nánast skræki af hlátri í bíó... sem og allir aðrir.

4 ummæli:
mmmm, hljómar eins og mynd sem ég gæti vel hugsað mér að sjá ;)
Já, þessi hljómar nokkuð áhugaverð.
Erum einmitt að fara í bíó núna kl.9:30, ætlum að sjá The Darjeeling Limited.. á víst að vera voða góð :)
Já mamma, þið pabbi verðið að sjá þessa!!
Vona að þú hafir skemmt þér vel í bíó Benedikta :) Ég var líka í bíó fyrr í kvöld, fór að sjá líbanska mynd með líbanskri vinkonu minni. Skrifa kannski um hana á morgun.
Darjeeling Limited er awesome.
Hef ekki séð þessa Irina Palm en ætli maður tjekki ekki á henni...þegar hún kemur á Laugarásvídjó eftir svona ár.
Skrifa ummæli