7.4.2008

Lönd - Sneak Preview - Afmæli?

LÖND. Á fyrstu þremur mánuðum þessa árs kom ég við í 7 löndum. Mér finnst það bara nokkuð gott. Ég get allavega ekki kvartað yfir að ferðast ekki nóg.

Ísland - Danmörk - Bandaríkin - Lúxemborg - Þýskaland - Túnis - Frakkland



SNEAK PREVIEW. Í Lúxemborg er bíó sem heitir Utopolis. Á hverjum fimmtudegi kl. 22 eru þeir með Sneak Preview sýningu. Þá er s.s. forsýnd einhver bíómynd en enginn veit hvaða mynd þeir eru að fara á fyrr en hún byrjar. Mig minnir nú að ég hafi e-r tímann heyrt af svona sýningum áður, hvort það var á Íslandi eða í Danmörku eða bæði man ég ekki. Hins vegar finnst mér þetta bara rosalega skemmtileg hefð. Foreldrar mínir, vinir þeirra og systir mín fóru á svona sýningu í lok janúar og voru svo heppin að lenda á Juno. Auðvitað féllu þau þar með alveg fyrir því að fara á svona sneak preview og á meðan ég var í Lúxemborg fór ég tvisvar með einhverjum úr fjölskyldunni á svona sýningar.

Fyrri myndin sem ég sá var The Other Boleyn Girl og þrátt fyrir að lýsing á söguþræðinum myndi eflaust ekki hljóma mjög spennandi í ykkar eyrum þá fannst mér hún frábær. Seinni myndin var svo 21 sem ég skemmti mér stórvel yfir! Ekki endilega besta mynd sem gerð hefur verið, við Benedikta erum sammála um að það sé einn stór galli á söguþræðinum, en hún hefur ríkt skemmtanagildi. Ég væri alveg til í að horfa á hana aftur... kannski oftar en einu sinni.... já, örugglega oftar en það. ... og ekki bara af því að aðalleikarinn er sætur :P




AFMÆLI?
Svo var ég að fatta að ég á bráðum afmæli. Christ sko, 22. Anda inn, anda út. Ekki panica. Perkele! Má ég ekki bara vera 17 aftur?


Ég er nú þegar búin að fá tvær afmælisgjafir, æðislega peysu frá foreldrum mínum og svo peysu og pening til að kaupa mér fleiri föt frá ömmu.
Dettur annars ekkert í hug sem mér langar í. Nema jú, ég fann eitt, eftir langa umhugsun! Mig vantar alveg þó nokkra SingStar leiki í safnið og gelgjan ég get náttúrulega ekki lifað við það (jú, okay - það eru nokkrir sem mig langar EKKERT í... t.d. SingStar Bollywood og SingStar Rock Ballads) en já, hmm :) Sem sagt, ef einhver er miður sín og langar rosalega að gefa mér e-ð í afmælisgjöf og veit ekkert hvað - þá er það SingStar -Pop, -Anthems, -Pop Hits eða jafnvel -R&B sem myndi gleðja mitt litla gelgjuhjarta ;P

7 ummæli:

Benedikta sagði...

Tíhíj, Salóne gamlingi :P

En já, Sneak Preview er best, ætlum að halda þessu áfram og fara á fimmtudaginn :)

Fór líka í bíó í gær með heimshornaflökkurunum, kíktum á Dan in Real Life, sem var alveg ágæt, svolítið væmin á köflum en annars allt í lagi :P

Benedikta sagði...

hey, og eitt enn, hvað áttu eiginlega marga SingStar leiki? :P

Salóme Mist sagði...

Búhúhú, já eftir viku verð ég gömul :(

Hmm, ég væri alveg til í að sjá þessa Dan in Real life mynd :)

Og jáh, uh, ég á 6 singstar leiki :P

Unknown sagði...

EF þú ert að verða gömul, hvað er ég þá ? ;)

Nafnlaus sagði...

Hæhæ!
Kíktu inn á www.kop86.bloggar.is - Við erum að halda reuinon úr Kópavogsskóla

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með daginn sæta :) Eigðu góðan dag.... Ætlaru að halda upp á það? Knús Sigga

Salóme Mist sagði...

Mamma: Uh.. ellismellur? ;D

Nafnlaus: Jahá, nú er gott að hafa góða afsökun og búa í Danmörku ;)

Sigga: Takk fyrir það :D Ég og Inger héldum sameiginlega upp á afmælin okkar í gær og það var alveg frábært :)