Fyrir einum og hálfum tíma síðan, kl. 14:45, barst lögreglu og slökkviliði tilkynning um eldsvoða á Nørrebrogade 175. Þess má geta að ég bý á Nørrebrogade 170 sem er ská á móti þessari byggingu. Eldurinn hafði kviknað í íbúð á 5.hæð og þrátt fyrir að hann væri mikill þá tókst að slökkva hann áður en hann barst í aðrar íbúðir. Ekki náðist þó að bjarga öllum, ein manneskja brann inni í íbúðinni.
Á meðan á þessu stóð var ég heima að hangsa og horfa á bíómynd. Ég hafði ekki hugmynd um hvað var að gerast beint fyrir utan gluggann hjá mér!! :S Búandi við þessa götu þá eru alltaf sírenur öðru hvoru og maður er löngu hættur að kippa sér upp við það. Manneskja brann inni í 30 metra fjarlægð frá þar sem ég sat og ég hafði ekki hugmynd um að neitt væri í gangi... undarleg tilhugsun. Svo pásaði ég myndina og fór að tékka á emailinu mínu... og þá var pabbi búinn að senda mér email um þetta. Wtf...

2 ummæli:
Það kom einmitt upp eldur í húsinu skáhallt á móti mínu í gær. Allt tiltækt slökkvilið höfuðborgarinnar og sjúkrabílar fyrir utan gluggann minn. Svo kem ég á netið og les þetta á blogginu þínu. óhugnanlegt.
Vá, freaky tilviljun :S
Skrifa ummæli