14.11.2005

Jáh...

Í dag byrjaði ný önn í skólanum hjá mér. Rosalega skrítið að mæta svona aftur eftir langa fjarveru. Þetta er bara eins og að vera að byrja í þessum skóla aftur þar sem núna er ég í öðrum áföngum, með aðra kennara, í öðrum byggingum,... etc.
Fékk svo hrikalegt stresskast í gærkvöldi (allt of mikið að gera) að ég gat ekkert sofnað og var því hrikalega þreytt í dag. Ekki skemmtilegt svona fyrsta skóladaginn.
Stundaskráin mín er frekar beygluð... útskýri það kannski fyrir ykkur seinna, hef ekki beint tíma í þetta núna.
Annars held ég að það merkilegasta sem ég gerði í dag hafi verið að skoða múslingasæði í 10 milljón króna rafeindasmásjá,
spennandi ekki satt? :) Fram til loka janúar mun ég kryfja dýr þrisvar sinnum í viku. Meðal annars fiska, fugla, skordýr, mús... æj.. man ekki og er of löt til að fletta þessu upp. Er þreytt.
Annars var árekstur hérna útá horni áðan... og rosa slagsmál í kjölfarið víst... fullt af lögreglu og slökkvuliði kallað á staðinn og e-ð... ég var reyndar ekki vitni að þessu sjálf þannig...


Uhm uhm.. hvað ætlaði ég að segja fleira?? Jáh.. það var yndislegt að vera á Íslandi í síðustu viku, rosalega gaman að hitta alla sem ég náði að hitta. Því miður var ekki tími til að hitta alla, tæpir fimm dagar er aðeins of stuttur tími fyrir það. Uhm uhm.. ég var búin að lofa að senda e-r email og e-ð... það getur verið að það tefjist um nokkra daga, það er allt í einu geðveikt mikið að gera hjá mér.

Eitt að lokum.. í gær fór ég í bíó seinnipartinn með norskri stelpu sem er skiptinemi hér. Þar sem tívolíið blasti við okkur þegar við komum út úr bíóinu ákváðum við að kíkja þangað inn (kostar ekkert að kíkja ef maður er með árskort ;) ) Það opnaði nefnilega aftur á föstudaginn. Og váh! váh! váh! hvað það er yndislegt að koma þarna! Þetta er svo allt annað en að koma þarna en á sumrin! Þetta eru bara jólin, þú kemur þarna inn... og þér finnst þú bara vera 7 ára og það sé komið aðfangadagskvöld. Jólaskap, almennilegt jólaskap.. hef ekki komist í svoleiðis í e-r ár... en bara við að labba þarna inn... æj, þið verðið bara að prófa að fara þarna :)



6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

úff.. ég held að ég gæti ekki farið í jóla tívólíið.... Myndi gjörsamlega tapa mér :/
En gleymdu ekki sumir að ég átti afmæli síðasta föstudag????????? ?HA?????????? engin kveðja frá þér nein staðar *greeeeennnj*

Benedikta sagði...

Ohh, öfunda þig systir :P

anyhoo, fæ að sjá þetta allt 21, ræt?

Nafnlaus sagði...

Váá...hvað mig langar í tívolí...

Nafnlaus sagði...

halló!!, ég las bloggið þitt fyrir nokkrum dögum síðan, ég hef, sko!, ekki gleymt þér, sko!,,

það er BARASTA FJANDANS-lega mikið að gera hjá mér,

i´M GOING CRAZYYYYYY!!!!!!, 2 próf þessa viku, fyrirlestur plús próf næsta viku, svo er það bara lokapróf í þar næstu viku"!!!! O M G!!!!

ég vona alla vega að það sé ekki svona hjá þér!

Nafnlaus sagði...

Get sko alveg ímyndað mér að þetta sé flott um jólin!!;) Hef komið þangað tvisvar sinnum og í annað skiptið var ég langt fram á kvöld...ohh það er svo flott:)

Benedikta sagði...

Á ekkert að fara að blogga stelpa?

Hvernig líst þér á Depeche Mode tónleika í feb?

en jamms *stórt knús*

sakna þín :)