15.2.2008

Update

The WeatherPixie
Djerba, Túnis

Í dag virðist vera 18 gráðum heitara á eyjunni Djerba í Túnis en hér í Köben.... Ætti að vera orðið nokkuð notalegt þar eftir mánuð! :D

Annars má nefna að ég tók aðeins til í Bloggara-linkunum hér til hliðar, tók suma út sem ekki höfðu bloggað í meira en ár og bætti nokkrum nýjum við. Þar má meðal annars nefna nýja bloggið hennar Boggu frænku, bloggið þeirra Elsu og Nonna í Lúxemborg og sæta myndabloggið hans Davíðs frænda. Má líka benda á að hún Benedikta hefur verið ansi hreint dugleg að blogga frá Lúx uppá síðkastið.

Rosalega eruð þið löt við að kommenta btw! Takið það til ykkar sem eigið... (s.s. ekki Benedikta, Mamma, Sigga,....)

11.2.2008

Island hærges af vinterstorme

De islandske storme får blæsevejr i Danmark til at ligne fødselsdagsbørn, der puster lagkagelys ud.


Hehehehehehehe!

10.2.2008

New York: Annar hluti - dagur eitt



Ætli það sé ekki best að halda áfram með ferðasöguna!

Um leið og rotturnar létu á sér kræla þessa blessuðu nótt þarna, ákváðum við að það væri ekki séns að við yrðum í þessari íbúð aðra nótt. Það var dálítið vandamál þar sem planið hafði verið að vera tvær í viðbót.

Þegar við fórum á fætur höfðum við kannski náð samtals 3 tíma svefni eða e-ð slíkt. Það er alls ekki gott eftir langt og strangt ferðalag. Hreint út sagt eyðilagði þetta ævintýri fyrsta daginn fyrir okkur að mörgu leiti. Þó ekki öllu leiti :) Við pökkuðum niður og læddumst út þar sem gestgjafinn okkar var ennþá sofandi (hann kom heim úr partýi e-r tíman um morguninn). Við skildum töskurnar eftir en fórum að finna okkur morgunmat og finna svefnstað fyrir næstu nætur.

Við borðuðum feitan morgunmat á e-m stað sem var samblanda af kjörbúð og subbulegum matsölustað. Egg, kartöflur og e-ð sem átti að vera pulsa. Til að gera langa sögu stutta þá fundum við hostel (ég hafði klippt addressuna út úr e-n ferðablaði í Danmörku og tekið með til öryggis) sem var með laust herbergi og ákváðum bara að vera þar næstu nótt. Þá fengjum við allavega örugglega góðan svefn...
Þetta blessaða hostel var Vanderbilt YMCA í 47th street. Við fórum þangað seinnipartinn eftir að hafa rölt e-ð um hitt hverfið og farið á StarBucks og e-ð. Þetta var btw í fyrsta skipti sem Josef prófaði StarBucks! Sóttum líka að sjálfsögðu farangurinn okkar.... Gaurinn var ekki heima þannig við skildum bara eftir miða (og lyklana hans) og sögðumst ekki koma aftur.



Eftir að hafa hvílt okkur aðeins í þessum fínu kojum á hostelinu og farið í sturtu (okkur leið fokking ógeðslega þar til við komumst í sturtu.... 20 tíma ferðalag og nótt í ógeðslegri íbúð... bjakk bjakk) héldum við út til að fá okkur að borða. Göturnar þarna í kring voru nú ekkert þær líflegustu ever og þeir staðir sem við fundum voru allir indverskir og kínverskir og e-ð sem okkur langaði ekkert í akkúrat þá. Við vorum búin að láta okkur hlakka til lengi að fá almennilega bandaríska hamborgara!! (góðir hamborgarar finnast varla í Danmörku). Þannig já, þegar við loksins löbbuðum framhá Wendy's þá ákváðum við bara að borða þar. ÞVÍLÍK MISTÖK! Wendy's er óspennandi. Alveg jafn vont og fokking McDonalds. Verra eiginlega því McDo er allavega með góðar franskar, en ekki Wendy's. Svo var e-r stelpa þarna inni að betla og eftir að við þóttumst ekkert skilja og töluðum bara dönsku þá bölvaði hún okkur í sót og ösku í hvert skipti sem hún labbaði nálægt okkur :D Við áttum hálfpartinn von á því að gengið hennar myndi bíða eftir okkur fyrir utan þegar við kæmum út (sérstaklega því hún heyrði okkur líklega tala ensku áður.... við tölum alltaf ensku saman).



Anyhow, eftir það ákváðum við að fara að skoða Grand Central Station sem var ekki þarna langt frá. Vá hvað sú bygging er falleg að innan! Og hrein, miðað við restina af New York borg :P Við vorum bæði yfir okkur hrifin af þessari lestarstöð (Josef held ég mest bara því hún var svo hrein) og þetta er örugglega bara uppáhalds staðurinn okkar í New York :P



Þegar þarna var komið, kl. ca 9 eða 10 um kvöldið eða e-ð, var ég svo þreytt að ég var að farast. En Josef vildi ekki fara að sofa OF SNEMMA, til að rugla ekki sólarhringnum okkar og neitaði því að fara tilbaka. Hann dró mig áfram að labba e-n "hring" þó mér hafi tekist að leiða hann í burtu frá e-m götum sem mér leist ekkert á. Þegar við komum eins langt og við höfðum planað að fara áður en við myndum snúa við.... sáum við glitta í Times Square. Og auðvitað urðum við að labba þangað... þó svo það væri alveg ágætis labb í viðbót.



Mér tókst að komast þangað og við settumst niður á e-u kaffihúsi í smá stund. Ég veit svo ekki hvort það var ofþreyta eða ofþornun (plús líkaminn að mótmæla ógeðslega matnum af Wendy's) en ég varð bara veik. Rétt svo komst af Times Square áður en ég fór að kúgast og kúgast út í gangstéttarkanti eins og e-r róni. Voða gaman. Staulaðist alla leiðina heim á þrjóskunni einni. Gjörsamlega uppgefin, veik og svo kalt að ég fann ekki fyrir neinum útlimum. Voða voða gaman.

Framhald seinna.

Afríka



Í gærkvöldi fékk ég ansi skemmtilegt símtal frá ástkærum föður mínum. Við fjölskyldan erum víst að fara til Túnis í næsta mánuði! Til eyjunnar Djerba nánartiltekið.

Fyrir 3 vikum síðan hafði ég aldrei komið útfyrir Evrópu (þrátt fyrir að hafa alla ævi ferðast nokkuð mikið með foreldrum mínum) og þótti stórt skref að fara til Norður-Ameríku. Datt sko ekki í hug að önnur heimsálfa myndi svo fljótt bætast á listann og hvað þá að það yrði Afríka. Hef alltaf verið meira spennt fyrir Asíu og Suður-Ameríku en þetta er sko ekki slæmt! Ég get varla setið kyrr ég er svo spennt :P

7.2.2008

Brandari dagsins



Getur einhver sagt mér hvað gengur á í höfðinu á svona fólki?

Dægrastytting



Ef þú ert kvenkyns og leiðist þá mæli ég með því að þú farir inn á Google image search og leitir uppi myndir af einstaklingunum á þessum lista:

Tíu kynþokkafyllstu fótboltamenn í heimi:

  1. David Beckham (LA Galaxy, England)
  2. Thierry Henry (Barcelona, Frakkland)
  3. Freddie Ljungberg (West Ham Utd, Svíþjóð)
  4. Cristiano Ronaldo (Manchester Utd, Portúgal)
  5. Fernando Torres (Liverpool, Spánn)
  6. Paolo Maldini (AC Milan, Ítalía)
  7. Kaká (AC Milan, Brasilía)
  8. Michael Owen (Newcastle Utd, England)
  9. Andriy Shevchenko (Chelsea, Úkraína)
  10. Frank Lampard (Chelsea, England)

Hann var tekinn saman af www.thepeoplesclub.com og birtur á mbl.is undir slóðinni http://mbl.is/mm/folk/frettir/2008/02/07/kynthokkafyllsti_fotboltakappinn/

Persónulega finnst mér nú bara 50% þeirra eiga skilið að vera á þessum lista en það er líklegt að aðrir séu ósammála mér ;P


6.2.2008

Rottur í eplinu



Þann 26. janúar vaknaði ég kl. 6:45, það var kominn tími til að halda af stað til New York.
strætó - metró - flug til Frankfurt - 5 klst bið - flug til New York (8,5 klst) - AirTrain - RailRoad - labb => Í allt ca. 20 klst ferðalag. Erfitt en gekk áfallalaust fyrir sig.

Áfallið kom á leiðarenda. Eftir að hafa séð svefn í hillingum í margar klukkustundir komum við loks heim til sófadýrs sem býr á 28th street á Manhattan (rétt hjá Empire State byggingunni). Mitt fyrsta áfall kom um leið og við opnuðum dyrnar. Tveir langir stigar upp, sá seinni ekki einu sinni með handriði. Fyrir ykkur sem ekki vitið: stigar eru ekki vinir mínir. Ég fæ martraðir um það að detta niður stiga... bæði í vöku og í draumi. Á heldur ekki svo auðvelt með að komast upp þá, sérstaklega ef ekkert er handriðið. En ég átti svo sem hálfpartinn von á erfiðum stigum, þetta var minniháttar vandamál.

Annað áfallið kom svona smátt og smátt þegar við vorum komin upp í íbúðina og áttuðum okkur á því hversu subbuleg hún var. Okkur datt t.d. ekki í hug að fara inn á baðherbergi án þess að fara í skó fyrst og maður hugsaði sig um áður en maður lagði nokkuð frá sér.
Til að gera langa sögu stuttu gátum við nánast ekkert sofið um nóttina þrátt fyrir gífurlega þreytu. Fyrsta orsökin var kuldi. Þrátt fyrir að við svæfum í öllum fötunum, deildum báðum slitróttu teppunum og reyndum að ímynda okkur að við værum á Hawaii... þá var okkur bara allt of kalt til að geta sofið. Önnur ástæðan var að við áttum að sofa á sjúklega óþægilegu aerobed (loftdýnu?). Kom alltaf svona hola í miðjuna þannig sama hvernig maður reyndi að snúa sér þá rúlluðum við alltaf bæði inn að miðju. Mega mega óþægilegt bara í alla staði. Svo var bara þunnt lak ofan á henni og þar sem sjúklega kalt var þarna inni þá leiddi kuldann inn í bakið á manni í gegnum dýnuna. Slitróttu teppin gerðu alveg sitt gagn en hitann leiddi aftur út í gegnum dýnuna.

Eftir margar óþægilegar, kaldar og svefnlitlar klukkustundir á loftdýnunni færðum við okkur yfir á sófann. Ágætis leðursófi sem hefði hentað fínt fyrir eina manneskju. En við vorum tvö og bara með eitt almennilegt teppi í köldu herbergi þannig við urðum að halda hópinn. Í veikri von um einhvern svefn tróðum við okkur tvö í þennan blessaða sófa. Við tökum nú ekki mikið pláss, teljumst víst bæði sem lítil og mjó en það dugði ekki til. Þrengslin voru samt mikil. Þetta var þó skárra en loftdýnan því þarna var okkur ekki jafn kalt.

En... ég átti eftir að nefna síðustu ástæðuna fyrir svefnleysi næturinnar. Einhver tímann um miðja nóttina, svona klukkustund áður en við færðum okkur yfir á sófann... heyrðum við fyrst í rottunum. Eldhúsið var við hliðina á stofunni þar sem við sváfum. Svona meter frá þar sem við vorum með tærnar. Við heyrðum þær koma inn. Hrinda einhverju dóti niður af borði, narta, hlaupa um. Hrukkum svo við við háværa skrækina. Síðan kom allavega önnur þeirra (við höldum að þær hafi verið 2... kannski fleiri) inn í stofuna! Kvikindið var hlaupandi alveg við dýnuna okkar!! Við fríkuðum út og kveiktum ljósið. Kvikindi faldi sig bara undir sófanum þar til við slökktum aftur og virtist nokk sama um nærveru okkar.

Þannig var okkar fyrsta nótt í New York. Framhald á morgunn.