14.10.2008

Mikið að gera

Já, það er nóg að gera þessa dagana. Síðasta vikan og rúmlega það hefur líka verið rough eins og hjá svo mörgum öðrum Íslendingum. Annars er mamma með myndlistaropnun á föstudaginn sem var ákveðin með mjög litlum fyrirvara, þannig það hefur líka verið mikið stress út af því.

Upplýsingar um það eru hér: www.rbenedikta.com
Allir velkomnir á opnun ;)

Skólinn gengur bara vel og það er brjálað að gera. Reyndar aðeins afslappaðra næstu daga en verið hefur, sem betur fer. Er búin að lesa Frankenstein (sem mér fannst æði) og Strange Case of Dr Jekyll and Mr Hyde (var að lesa hana í annað skipti og fannst hún ennþá góð). Bókin um Frankenstein er svo ólík þeim Frankenstein bíómyndum sem ég hef séð að það er fáránlegt. Finnst hræðilegt þegar sögum er breytt svona mikið til að kvikmynda þær. Er varla sama sagan... Er núna að lesa Heart of Darkness og finnst hún leiðinlega skrifuð. Efnið er líka mjög fjarri mínu áhugasviði. Missti af tímanum í dag þar sem fjallað var um hana (er með e-a flensu) en skilst að eftir útskýringar kennarans hafi bókin ekki virst vera svo slæm lengur. Vona að það sé rétt. Þarf síðan að lesa The Scarlet letter um helgina.
Er búin að halda tvo fyrirlestra sem gilda 40% og 50% í sitthvorum áfanganum, sá seinni gekk mjög vel og ég fæ líklega 19 af 20 fyrir hann :D Var í prófi í dag sem gildir 50% af litlum áfanga og það gekk fínt. Hins vegar gekk mér hræðilega í síðustu viku í ritgerðarprófi sem gildir 15% enda var ég þá í sjokki yfir öllum þeim vondu fréttum sem dundu á manni í byrjun þeirrar viku.

Anyhow, vildi bara uppfæra þetta blogg smá. Ætla núna að fara að sofa, nokkrar línur úr Heart of Darkness ættu að sjá til þess að ég sofni strax.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Frábært hvað þér gengur vel, enda bráðgáfuð... og ekki við öðru að búast ;)
Annars virkar þetta mjög spennandi nám hjá þér. Núna dreymir mig um að geta lesið bækur allan daginn... skemmtilesningu þ.e.a.s., ekki skólalesningu :)

Salóme Mist sagði...

Hehehe, takk frænka ;)

Þetta er mjög spennandi nám en því miður erum við ekki bara að lesa skáldsögur daginn út og daginn inn :D Ég þarf að lesa um kennsluaðferðir, málvísindi, sögu og þróun enskunnar og þýða miðaldarensku yfir á skiljanlegt mál. Svo sem ekkert fag leiðinlegt... bara með einn kennara sem nær alveg að drepa 3 fög :S

Til að bæta það upp er ég með alveg besta kennara í heimi sem kennir mér heila 4 áfanga, þar af eru 3 ógeðslega skemmtilegir með fullt af skáldsögum og tengdum bíómyndum :D American Studies I : American Ideas and Ideals, Text and Context og svo Imagining the Future: Utopia and Dystopia. Fyndið að þurfa að horfa á Bridget Jones's Diary, Muriel's Wedding, Frankenstein, X-files, Pride and Prejudice og fleira í skólanum ;P

Hvernig gengur annars með lögfræðina? Alltaf jafn ánægð með það val? ;)

Nafnlaus sagði...

Oh það er svo leiðinlegt að hafa kennara sem skemmir fag, fög í þínu tilviki :S
HAhaha, Muriel´s wedding er ein súrasta mynd sem ég hef horft á. Hún vakti upp svo skrýtnar tilfinningar hjá mér. Mér fannst hún svo "óþægileg" einhvern veginn. Hins vegar er ég alger sucker þegar kemur að Pride & prejudice. Kann hana utan að!

Annars er ég mjög ánægð með lögfræðina. Maður valdi aldeilis rétt fag, nóg að gera hjá lögfræðingum núna :/ Reyndar er samt kominn smá skólaleiði í mig. Kannski frekar útþrá (þörf fyrir tilbreytingu), en ekkert stórvægilegt. Lýsir sér aðallega í leti við heimalestur ;)

Salóme Mist sagði...

Er alveg sammála um að Muriel's Wedding sé óþægileg, hef samt séð hana alveg nokkrum sinnum.

En Pride and Prejudice... ert þú að tala um nýju bíómyndina nokkuð? Mér finnst hún ööööömurleg... sem betur fer virðist kennarinn vera sammála mér og við munum horfa á BBC seríuna frá 1995. Hún er æði :D

Skólaleiði hendir alla e-r tímann held ég, þá er bara að taka sér árs frí eða harka af sér :) Eins og þú segir þá verður örugglega nóga vinnu fyrir þig að hafa þegar þú útskrifast...

Nafnlaus sagði...

NEIIIIII, BBC útgáfuna fyrir mig (ok, þættina). Ég á þá á DVD :D

En merkilegt nokk, þá allt í einu fann ég driffjöðrina og áhugann aftur! Þetta er mun betri tilfinning ;)

KV. Birgitta

Salóme Mist sagði...

Fjúff :D Ég á þá líka á DVD! :D :D :D I luuuuvs them...

Frábært að heyra að þér hafi tekist að hrista skólaleiðann af þér! Go Birgitta! :D