8.1.2008

Janúar



Jæja, þá eru jólin búin og grámyglulegur janúar genginn í garð. Það er svo kalt, svo kalt. Held ég flytji til Hawaii eða Balí.
Jólafríið var ágætt, sumt af því allavega. Sit þó uppi með eitt stykki ökla í ekki svo góðu standi eftir það. Tókst að húrra niður eins og tvær tröppur á annan í jólum og beygla hann e-ð í áttir sem hann á ekkert að fara í. Verður komið í lag fyrir New York.
Það er kalt í Köben. Hef samt haft það gott síðan ég kom tilbaka. Var með stórskemmtilegan couchsurfara í heimsókn í eins og 3 daga og fannst eiginlega bara fúlt að hann skildi ekki vera lengur. Ég hef þó góða bók að lesa (The Girls) og nóg af fólki sem hægt er að bjóða yfir í te og örvænti því ekki.

2 ummæli:

Benedikta sagði...

Öss.. sjáðu bara, það er líka kalt í köben, ekki bara á Ísandi :P

En ég vona að þessi ökkli þinn fari nú að lagast, gengur ekki að hafa þig haltrandi til lengdar :)

Salóme Mist sagði...

Vá shit, ökkli með tveimur k-um? Djö... ég virðist eiga alveg jafn erfitt með að stafsetja þetta orð á íslensku og ensku :S

Held ökklinn sé loksins að koma til... *krossa fingur*