2.9.2007

Bakvið hús



Um kl. 5 í nótt var kveikt í fyrir aftan húsið mitt. Kveikt var í ruslagámunum hjá Netto (sem eru samt læstir inni í e-s konar búri). Þetta varð ágætlega stórt bál og náðu logarnir að minnsta kosti 3 metra hæð. Set að öllum líkindum vídeó af því hérna inn seinna. Ótrúlegt en satt sluppu ruslagámar okkar íbúanna heilir í gegnum þetta og ekki kviknaði í byggingunni heldur... Nýmálaða grindverkið okkar brann þó til kaldra kola ásamt ýmsu öðru. Það hefur ekki munað miklu að kviknað hafi í byggingunni því stór vifta sem er utan á henni þarna er hálf brunnin og hálf bráðnuð... Myndi ekki segja heldur að stiginn sem liggur upp úr kjallaranum okkar sé í nothæfu ástandi núna...



Ah, ég gleymdi að segja afhverju þetta gerðist. Í gær var hálfsárs niðurrifs-afmæli Ungdómshússins. Litlu lúsablesarnir mótmæltu allan daginn (getið séð sýnishorn af því hér fyrir neðan) og svo fór allt til helvítis skömmu eftir miðnætti. Sem fyrr fengu fyrirtæki og verslanir í götunni að finna fyrir því, Irma city var rústað og mér skilst að 7/11, Danske Bank, McDonalds, Kvickly og fleiri hafi ekki sloppið vel heldur. Eldhöf, ofbeldi gagnvart lögreglumönnum, skemmdarverk, brunnir lögreglubílar, etc.



Getið séð áhugaverð vídeó af þessu á http://ekstrabladet.tv/
og myndir á http://politiken.dk/ (fotoserie).

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég skil ekki. Hverju eru þau eiginlega að reyna að fá áorkað með þessu?

Salóme Mist sagði...

Þau vilja fá nýtt Ungdomshus. Í Nörrebro helst. Og frítt.

Nafnlaus sagði...

Jahá. Mig langar líka í sitthvað. Best að fara að kveikja í og brjóta rúður..

Hefur annars einhver í Kaupmannahöfn samúð með þeim lengur? Ég væri löngu farin að hugsa ansi ljótar hugsanir, og gera enn ljótari áætlanir í skjóli nætur.

Salóme Mist sagði...

Nei, held það séu allavega mjög fáir sem hafa e-a samúð með þeim núorðið. Eru allir búnir að fá nóg fyrir löngu síðan. Var einmitt mótmælafundur í gær til að mótmæla aðferðum þeirra. "Volden ud af Nörrebro" og var s.s. skipulagt af þremur íbúasamtökum hér í hverfinu.

Nafnlaus sagði...

Meinarðu ekki.. UPPAFUNDUR? Svona í ætt við hið frábæra slagorð, GET OUT YUPPIES!!
Fórstu á hann?

Salóme Mist sagði...

Eh... nei. Meina það alls ekki. Bara fólk eins og ég sem býr í hverfinu og er orðið dauðþreytt á þessum andskotans hálfvitagangi. Þreytt á að þurfa að borga fyrir skemmdir á húsunum sem við búum í, bílum og hjólum. Þreytt á að geta ekki farið út úr húsi vegna óláta og geta ekki sofið vegna hávaða. Þreytt á að skattapeningarnir okkar fari í endalausar viðgerðir á öllu sem þau skemma.
Ég rétt kíkti í lokinn.

Nafnlaus sagði...

parf ad athuga:)