15.10.2007

Haustfrí í Lúxemborg



Hæ elsku þið

Bloggið mitt er búið að vera ótrúlega leiðinlegt undanfarið. Næstum aldrei bloggað og þá sjaldan að það kemur fyrir er það um þetta leiðinda uppþota-/ungdomshus-mál. Geri mér alveg grein fyrir því að þetta er ekki til fyrirmyndar. Hins vegar er bara svo margt neikvætt búið að gerast síðustu mánuði að ég hef ekki getað hugsað mér að blogga. Mjög margt skemmtilegt líka! En mér finnst ég alltaf þurfa að blogga um allt... eða svona næstum... og þetta neikvæða hefur allt saman verið svona frekar stórtækt og erfitt að sleppa því að minnast á það ef maður ætlaði að blogga yfirhöfuð. Þannig ég bara kom mér aldrei í að blogga. Þá vitið þið það.




Í augnablikinu er ég í haustfríi í Lúxemborg. Veðrið hefur verið ótrúlega yndislegt og það er himneskt að fá svona nokkra daga með fjölskyldunni. Bróðir minn er að vísu fluttur til Íslands og er ekki í haustfríi fyrr en í lok mánaðarins og því ekki með okkur hér. Systir mín er hins vegar hér ásamt Arenu vinkonu sinni (sem átti afmæli í dag - til hamingju!) en þær fara strax á morgunn. Amma er svo hér í mánaðar langri heimsókn.
Við látum fara vel um okkur hérna í nýja húsinu þeirra mömmu og pabba sem er svona næstum ekki íbúðarhæft í augnablikinu! Gifsið á veggjunum á neðri hæðinni er að þorna og byrjað verður að mála húsið núna á miðvikudaginn! Ekki var hægt að kveikja á tölvunni í mesta allan dag því það var verið að leggja rafmagn á staði þar sem slíkt vantaði (ekki gott því ég þurfti eiginlega að læra og tók daginn í dag frá fyrir það).




Þetta er svolítið sérstakt hús. Það var byggt í kringum 1985 eða e-ð svoleiðis en það hefur aldrei neinn búið í því!! Maðurinn sem var að byggja það lést og þeir sem keyptu það vildu ekki selja fyrr en núna. Sumt var óklárað og stíllinn á öllu er mjög 80's. Garðurinn er í algjörri órækt eftir 20 ára vanrækslu. Við búum í herbergjunum á efri hæðinni (sem á þó eftir að mála og svona) en neðri hæðina getum við ekki notað mikið í augnablikinu. Háaloftið er líka stórt og kósí en Benedikta og Arena sofa þar. Þvottahúsið er notað sem eldhús og svo er eldavél út á miðju eldhúsgólfi og borð og stólar í stofunni. That's it.



Líst samt mega vel á húsið. Það er í mjög góðu hverfi og stutt frá öllu. Á neðri hæðinni er eitt svefnherbergi, bílskúr, kyndiherbergi, þvottahús, gangur og svo stórt rými sem er svona samvaxið eldhús, borðstofa og stofa (foreldrar mínir létu brjóta niður vegg sem var þarna á milli). Arinn og alles. Opið út í garð í næstum allar áttir en hann er ágætlega stór. Á efri hæðinni er hjónasvíta með sér baðherbergi, stórt herbergi sem mamma mun nota sem vinnustofu, tvö önnur svefnherbergi og svo baðherbergi. Á háaloftinu er líka baðherbergi (þar er 3ja sturta hússins) og svo verður það notað sem svona sjónvarps- og hugguleita-herbergi.



Anyway, ég ætla að fara að sofa. Set hér nokkrar myndir, eru fleiri inná Flickr síðunni minni. Set alltaf inn myndir þar öðru hvoru þó ég sé ekki að standa mig við bloggið.

Knús og kveðja,
-s

2.9.2007

Bakvið hús



Um kl. 5 í nótt var kveikt í fyrir aftan húsið mitt. Kveikt var í ruslagámunum hjá Netto (sem eru samt læstir inni í e-s konar búri). Þetta varð ágætlega stórt bál og náðu logarnir að minnsta kosti 3 metra hæð. Set að öllum líkindum vídeó af því hérna inn seinna. Ótrúlegt en satt sluppu ruslagámar okkar íbúanna heilir í gegnum þetta og ekki kviknaði í byggingunni heldur... Nýmálaða grindverkið okkar brann þó til kaldra kola ásamt ýmsu öðru. Það hefur ekki munað miklu að kviknað hafi í byggingunni því stór vifta sem er utan á henni þarna er hálf brunnin og hálf bráðnuð... Myndi ekki segja heldur að stiginn sem liggur upp úr kjallaranum okkar sé í nothæfu ástandi núna...



Ah, ég gleymdi að segja afhverju þetta gerðist. Í gær var hálfsárs niðurrifs-afmæli Ungdómshússins. Litlu lúsablesarnir mótmæltu allan daginn (getið séð sýnishorn af því hér fyrir neðan) og svo fór allt til helvítis skömmu eftir miðnætti. Sem fyrr fengu fyrirtæki og verslanir í götunni að finna fyrir því, Irma city var rústað og mér skilst að 7/11, Danske Bank, McDonalds, Kvickly og fleiri hafi ekki sloppið vel heldur. Eldhöf, ofbeldi gagnvart lögreglumönnum, skemmdarverk, brunnir lögreglubílar, etc.



Getið séð áhugaverð vídeó af þessu á http://ekstrabladet.tv/
og myndir á http://politiken.dk/ (fotoserie).

17.8.2007

i'm a banana

Bloggleysi eins og venjulega. Buid ad vera super mikid ad gera. Uff, hef ekki skrifad færslu sidan 10.juli. Well, sidan tha hef eg haft slatta af gestum, skroppid til Sudur-Sjalands eins og thid saud a myndunum, skroppid til Alaborgar, unnid, hostad og hitt sofadyr, bølvad danska rikinu og thessum nyja einkunnaskala i sand og øsku og nu er eg aftur i Alaborg (ad heimsækja Boggu frænku). Thad er svona thad helsta, skrifa betur um thad seinna kannski en vildi adallega lata vita ad eg væri a lifi :) Verdur mega mikid ad gera næstu vikurnar thannig eg ætla ekkert ad lofa bot og betrun i bloggskrifum nuna :P

29.7.2007

Alltaf fjör á Nörrebrogade...

Írak vann The Asian Cup seinnipartinn í dag og fagnaðarlætin voru mikil í Kaupmannahöfn. Greinilega slatti af Írökum sem búa hérna í hverfinu...