10.7.2007

Í rigningu ég syng....



Jæja, best að takast á við bloggletina!

Áfram um Spánarferðina: Eftir þrjá kvalafulla daga á sýklalyfjum hófst ferðin loks fyrir alvöru. (Fékk btw að vita seinna að þetta hafi verið alltof sterk sýklalyf og ekki þau sem á að gefa). Á laugardeginum (23.júní) héldum við Xibei til Girona til að hitta vini mína sem ég hef ekki séð árum saman. Sebastian tók á móti okkur á rútustöðinni, ég þekkti hann varla aftur enda ekki séð hann í 8 ár! Hann er samt ennþá jafn ótrúlega yndislegur! Hann fór með okkur í smá skoðunarferð um Girona. Fórum meðal annars að Girona ljóninu, sagan segir að ef maður kyssir rassinn á því muni maður einhver tímann snúa aftur til Girona. Á leiðinni keyptum við ís sem var alveg mega góður... ég er á því að Spánverjar séu meistarar í að gera ís!



Fórum síðan til að hitta Oriel systur hans (sem ég hef ekki heldur séð síðan 1999) og við fjögur héldum af stað út í þjóðgarðinn sem liggur nálægt borginni. Þar á mamma þeirra hús með auka íbúðum sem eru leigðar út til ferðamanna. Það er nú aðeins styttra síðan ég hitti hana en hún kom í heimsókn til Íslands fyrir nokkrum árum. Þau bjuggu til fyrir okkur sjúúúúklega gott gazpacho (köld tómat/grænmetissúpa) og salat. Xibei fékk reyndar að hjálpa til við matargerðina en mitt verkefni var að borða kirsuber... mmmm :)
Eftir það fórum við Xibei og Sebastian í sjúklega flottu sundlaugina sem þau eru með.... Tókum smá göngutúr um þjóðgarðinn... Átum ótrúlega góðan jarðaberja sorbet ís sem Sebastian bjó til.. Fórum tilbaka til Girona.... Fórum á e-ð festival og hlustuðum á flamenco rumba.... Eftir það tókum við Xibei rútuna tilbaka til Lloret.... gjörsamalega uppgefnar en mega ánægðar með daginn :)
Tókum svo einn hótel-sundlaugar-leti-sunnudag. Mánudeginum eyddum við í Barcelona.... mest megnis í túrista-útsýnis-strætóum en hittum svo Oriel um kvöldið. Hún sýndi okkur meðal annars BarcelonaReykjavik, íslenska bakaríið í Barcelona. Síðasta daginn ætluðum við loksins að fara á ströndina... en veðrið bara var ekki nógu gott... þannig við tókum bara letidag/pakka-niður-dag.... Þegar við héldum frá Spáni aðfaranótt 27.júní voru himnarnir að hrynja...



Það hefur ringt í Kaupmannahöfn nánast alveg síðan ég kom tilbaka. Hef samt haft það mega gott. Var með gesti hérna fyrir Hróarskeldu, fyrst Gunnar Anton og vin hans og síðan systur mína og Agga. Þau voru hér eina nótt áður en þau héldu á Hróarskeldu (það kvöld fórum við á Modest Mouse tónleika á Vega sem voru frábærir). Þau héldu út tvær nætur í drullunni, eða s.s. fram til fimmudagsins þegar hátíðin byrjaði, en þá flúðu þau tilbaka til mín. Þannig þau eru hér á næturna en hafa farið alla daga til Roskilde til að sjá e-ð af tónleikunum. Ég er svo glöð að hafa ekki keypt mér miða....
Ég eyddi helginni á Suður-Sjálandi og á Mön. Það var bara mega notalegt og þar var bara fínasta veður!

Bah, æj... nenni ekki meira bloggi í bili. Laters!

21.6.2007

So far.... different from what expected

Er a Spani. Ferdin gekk mega vel, komumst til Lloret an teljandi erfidleika. Reyndar var reynt ad raena mig i lestinni a leidinni fra flugvellinum en eg stod beljuna ad verki og kom i veg fyrir ad hun naedi e-u.
Erum mega mega anaegdar med hotelid, thad er rosa fint og barasta vel stadsett finnst okkur. Serstaklega midad vid hvad vid borgudum fyrir thad....

Daginn eftir ad eg kom hingad, s.s. i gaer, for eg til laeknis. Nanast allir sem eg umgekkst a medan eg var i Luxemborg fengu streptokokkasykingu i halsinn a medan eda eftir ad eg var thar.... og a manudaginn var eg ordin aum i halsinsum :S Gat ekki farid til laeknis i Koben a manudaginn. So, kemur i ljos.... ad eg hef nad mer i streptokokkasykingu lika. Aedi. Syklalyf, ogedsleg bolgueydandi lyf i vokvaformi... OG BANNDAD AD VERA I SOL! A solarstrond! WTF? Hvad gerir madur tha? Hef s.s. ekki enn komist a strond eda sundlaug... thad verdur ad bida til laugardags.... eda kannski sunnudags thvi ad a laugardag forum vid til Girona ad hitta gamla vini... Solbrunkan verdur lika ad bida :(

Ekki baetir ur skak ad i gaer var eg slopp vegna lyfjana og i dag... thegar vid vorum i verslunarmidstod i Barcelona (ad fordast sol - lyfin valda thvi ad eg fae utbrot ef eg verd i sol) gekk eg i gegnum magakrampahelviti. Var i svona klst ad engjast um og velta thvi fyrir mer hvort ég aetti ad aela a golfid eda leggjast a thad og grenja.... thetta var svo hrikalega sart :/ Thad tharf btw frekar mikid mikid til ad eg ihugi thad ad grenja af sarsauka.
Sjaldan lent svona illa i lyfjum adur... bara einu sinni.... eda kannski tvisvar.

So so, enntha allt eftir... Lobbudum reyndar i gaer (eftir kl 18 thegar ekki var svo sterk sol) nidur a strond og yfir i midbae Lloret. Vid erum nefnilega i rolega partinum sem er adeins utur. Komumst ad thvi ad okkar strond er betri en adalstrondin og ad vig erum ROSALEGA fegnar ad vera a thvi hoteli sem vid erum. Midbaer Lloret er thvileikt havaer, skitugur, fullur af drukknum ungum bretum og bara ospennandi yfir hofud. So so, ja.. og i dag var thjadst og verslad. Keypti mer stutt svart pils! Moi! Truidi thessu? Efast thad.
Ekki svo margt annad... enda veik... ju, eiturgraenan augnskugga (efast um ad thid truid thessu heldur), spaenskt simkort, naerfot... held thad se allt? Ju, og ad sjalfsogdu nokkur postkort, thvi aettu allir vel ad trua :P

En ja, haetta thessu kjaftaedi og fara og ga hvort Cecilia vann i billiard eda ekki... Ciao

17.6.2007

17.júní













Kl. 7:30 í morgun hringdi dyrabjallan en þar var Cecilia (Xibei) komin :)
Lögðum okkur til kl. 10 þar sem hún hafði lítinn sem engan svefn fengið... Uppúr hádegi var stefnan tekin á Tívolí þar sem byrjað var á því að svolgra niður fransk hot dog og kóki. Eftir það var farið beint í Dæmonen, stóra rússíbanann. Ekki svo sniðugt, okkur var báðum illt í maganum í margar klukkustundir á eftir.
Eftir fleiri tæki, fjör og notalegheit í ágætis veðri fórum við í Build a bear... og þá byrjaði að rigna! Og svo kom þrumuveður! En þá vorum við komnar í skjól á kaffihúsi Metropol bíósins (sem ég tilnefni hér með besta bíó Kaupmannahafnar). Sáum Becoming Jane sem mér fannst barasta vera ágætismynd. KFC og svo haldið heim. Læt fylgja með nokkrar myndir :)

15.6.2007

Diary of a mad(wo)man



Ég kom heim til Danmerkur í gær eftir tveggja vikna dvöl í Lúxemborg og Þýskalandi. Stoppa þó ekki lengi við hér því á þriðjudaginn fer ég með Ceciliu (Xibei) til Spánar. Verð þar til 27.júní en verð svo í Danmörku allavega út júlí að taka við gestum! Ágúst er hins vegar óplanaður ennþá...

Hmm, ég hef varla bloggað síðan 15.maí.... Seinni hluti maí fór bara í að sinna vinum, sófadýr og að skipuleggja sumarið. Hádegisverðarboð, kvöldverðarboð, hangs og notalegheit - of mikið að gera til að ég hefði tíma í að blogga :P Ég hýsti líka fyrsta sófadýrið mitt -eins og foreldrar mínir vilja kalla meðlimi couchsurfing.com. Það var bara mega gaman og ég er núna forfallin couchsurfer... þó ég vilji frekar hýsa fólk en nota þetta sjálf á ferðalögum.

Lúxemborg var notaleg að venju. Heil fjögur kvöld voru notuð í að spila Risk 2210 A.D. því mér tókst að gera bróður minn, Andra og Nonna (vinnufélaga pabba) gjörsamlega hooked :D Gísli er samt alveg greinilega meistarinn, hann vann 3svar og ég einu sinni. Ég fór líka að hitta sófadýr í Lúxemborg, það var mega gaman - kynntist fullt af fólki og er komin með "local pub" í Lúx sem er meira en ég get sagt ég hafi í Kaupmannahöfn.
Þann 6.júní ókum við svo til Berlínar, vegna umferðarstöppu tók það 11 klst í stað þeirra 8 sem það ætti að taka. Horror í 33°C eða hvað það nú var. Gistum á víetnömsku hóteli þar sem gólfin voru úr marmara og flest annað úr bambus.
Keyrðum svo til Rendsburg í Norður-Þýskalandi þann 9. júní (afmælisdagur mömmu) en sú bílferð var hreint og beint martröð. Nord Art 2007, sýningin sem við ókum alla þessa leið fyrir var hins vegar rosalega flott. Mamma er með tvö verk á henni og þess vegna lögðum við þessa bílferð á okkur til þess að vera við opnunina. Reiknuðum þó ekki með risa-umferðarteppu, svikum navigation-kerfisins og ónefndum hryllingi. Keyrðum svo heim til Lúxemborgar daginn eftir.

Viðbót:
Daginn eftir að við komum til Lúxemborgar fórum við (ég, foreldrar mínir og bróðir) á Marilyn Manson tónleika í Rockhal. Það var fucking geðveikt! Ég bjóst nú ekki við neinu rosalegu en þetta kom mjög skemmtilega á óvart. Frábær flutningur, skemmtilega fjölbreyttur áhorfendaskari, flott lýsing, gott hljóð og besta af öllu: hann tók slatta af gömlum lögum!! Ég rifnaði næstum af gleði þegar annað lag tónleikana var spilað; Disposable teens. Fyrir þá sem ekki vita þá er það af plötunni Holy Wood sem er frábær -tékkið á henni áður en þið dæmið Marilyn Manson endanlega.
Pabbi fór líka glaður út því þeir tóku uppáhaldslagið hans; Beautiful People. Af svipnum á mömmu að dæma var hún hrifnust af coverinu þeirra af Sweet Dreams en ég gleymdi nú samt að spurja hana.... Við fórum þegar uppklappið byrjaði því þau voru e-ð þreytt og við vildum komast frá svæðinu áður en allir myndu streyma út (höfðum fengið nóg af umferðateppum í bili). Því miður sko, ég hefði alveg viljað sjá meira :/ Möguleiki líka að lagið sem Gísli vildi helst heyra hafi verið spilað þá, coverið af Depeche Mode laginu Personal Jesus.
Btw þá er enginn hljómsveit sem kemst upp með að hafa sviðið ÚBER-SKÆR-BLEIKT gegnum heilt lag og láta rigna niður glimmeri og ekki vera asnaleg - nema Marilyn Manson.

Linkarnir í færslunni vísa flestir í myndir á flickr síðunni minni, endilega tékkið á þeim :)

7.6.2007

Bloggleysi

Hi kruttin min
Er nuna a vietnomsku hoteli i Berlin. Vildi bara lata vita ad eg vaeri a lifi thar sem eg hef ekkert stadid mig i ad blogga....
Hef ekki tima i ad baeta ur thvi nuna, will soon though :P
laterz

15.5.2007

Íslandsskrepp og fleira



Blogga oftar sagði ég?
Hmm, er ekki alveg að standa við það.
Ekki mikið að frétta svosem. Var á Íslandi frá kvöldi 27.apríl og til 6.maí vegna jarðarfararinnar hans afa sem var 30.apríl. Að sjálfsöguðu fóru nokkrir dagar bara í það að vera með fjölskyldunni og var það ósköp notalegt. Náði nú líka að hitta e-ð af vinum þó auðvitað hafi ekki verið nokkur leið að hafa tíma til að hitta allt þetta yndislega fólk sem mér þykir svo vænt um.



Dæmi um það sem brallað var:
- Fór með Huldu, Ingunni og Atla á Hressó eitthvert kvöldið, það var ótrúlega gaman enda eru þau ótrúlega frábært fólk :)
- Spilaði Risk 2210 A.D. (sem ég er nýbúin að kaupa mér) með Jóa og Sölku, það var æðislega skemmtilegt og verður pottþétt endurtekið við fyrsta tækifæri!
- Fór á kaffihús með Xibei og við létum okkur detta í hug að kíkja kannski á e-a sólarströnd saman í lok júní, vonandi verður e-ð af því! Rakst líka á Þorgils frænda sem var óvænt ánægja, hef ekki séð hann í áraraðir!
- Heimsótti Fanney Sísí en heim til hennar finnst mér alltaf ótrúlega kósí að koma, næstum eins og að koma heim bara :)

- Hitti Örnu, svo Tomma og loks Séamus á kaffihúsinu Vor. Frábært að hitta þau að sjálfsögðu.

- Sigga bauð mér út að borða í hádeginu einn daginn á Culiacan, takk fyrir það ;* Alltaf svo gaman og kósí að hanga með henni :)

- Fór í stutta heimsókn til Nonna og Siggu Maju og fékk að sjá litlu sætu stelpuna þeirra sem fæddist í apríl. Er ekki frá því að það fari Nonna bara vel að vera pabbi ;P

- Hitti Guðrúnu Ágústu niðrí bæ og við tókum langt spjall inni á Quiznos. (Sakna þess rosalega að hafa hana ekki í Danmörku núna!)




Svo var líka ýmislegt skemmtilegt brallað með fjölskyldunni:
- Matarboð hjá Önnu og Ragga. Svuntan hans Ragga sló í gegn og það var gott að hitta Ingeri aftur.

- Matarboð hjá Sollu og Gylfa. Litlum frænda sem ég hef aldrei hitt áður leist svo rosalega vel á mig að ég slapp ekkert frá því að eyða mestu af boðinu í að leika við hann :)

- Afmæli hjá Sigurbjörgu litlu frænku. Fékk loksins að sjá hinn ofursmáa Lúkas!

- Út að borða á Hornið með Benediktu og ömmu Boggu í boði þeirrar síðarnefndu. Frábær matur! Þær mæla með pítsunum þar og ég get óhikað mælt með lasagna-inu!! Fórum síðan á söngleikinn Leg sem er frábær! Hugleikur Dagsson er snilli :) Amma og Benedikta bókstaflega grétu af hlátri. Kvöldið endaði svo á hangsi heima hjá Benediktu og Agga en við vorum í félagsskap Gutta og Söndru (eh, ég er léleg með nöfn en ég held ég muni þetta rétt) en þau komu að sækja hinn fjöruga Plútó sem er ofursæti svarti labradorhvolpurinn þeirra :) Einnig voru Dóri og Hannes þarna.... Ástæðan fyrir að ég fór þangað var að það átti víst að skora á mig í SingStar en viðkomandi beilaði e-ð á því ;)

- Tónleikar með Emilíönu Torrini og kór Kársnesskóla. Jiiiii hvað þetta voru flottir tónleikar! Æði gæði! Gat ekki annað en dáðst mikið af þessum krökkum.. og að sjálfsögðu hinni frábæru og fallegu Emilíönu. Naut tónleikanna í botn með ömmu og Sædísi frænku.




Síðan ég kom til Danmerkur hef ég voða lítið gert af viti;
- Bölvað rigningunni sem var hérna mán, þri, mið, fim og fös í síðustu viku.
- Bjó til scrapbook úr gömlum tónleikamiðum og fleiru (gaman að eiga en tók endalausan tíma).
- Unnsteinn frændi kom og var í sólarhring, fór með honum í jarðarför en svo eftir það höfðum við það bara kósí og fórum út af borða og versluðum vínylplötur ;P

- Var pyntuð í tvær nætur uppá spítala, e-ð rannsóknardæmi sem ég nenni ekki að útskýra. Eyðilagði mest alla helgina fyrir mér.
- Fór á fótboltaleik í Parken, FC Köbenhavn - Randers FC. Óspennandi leikur en gaman að hafa prófað þetta :)

Núna er ég bara að reyna að plana sumarið, það er ERFITT! Þetta púzzl er ekki alveg að fitta saman... Þið sem eruð að koma til Köben megið gjarnan segja mér aftur hvenær það var sem þið verðið hér. Svo ég geti s.s. fittað því inn í púzzlið að geta hitt ykkur. Eða já, reynt það.

Ætlað að skirfa e-ð meira.... eeeeen látum þetta nægja í bili!
Yfir og út